Haukur Örn Birgisson. President of the Icelandic Golf Union. Photo: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 16:30

Haukur Örn í framboð

Haukur Örn Birgisson varaforseti GSÍ hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í komandi forsetakjöri Golfsambands Íslands sem fram fer á golfþingi þann 23. nóvember næstkomandi.

Störf mín fyrir golfhreyfinguna má rekja til ársins 2001 og frá þeim tíma hefur golfíþróttin skipað stórt hlutverk hjá mér, bæði í leik og starfi. Samhliða stjórnarstörfum mínum hjá Golfklúbbnum Oddi árið 2005 var ég kosinn til stjórnarsetu hjá Golfsambandi Íslands en frá árinu 2007 hef ég verið varaforseti sambandsins. Þá hef ég einnig sinnt stjórnarstörfum á vegum Evrópska golfsambandsins, EGA, undanfarin þrjú ár.

Golfíþróttin hefur átt einstaklega góðu gengi að fagna undanfarinn áratug. Fjöldi iðkenda hefur vaxið jafnt og þétt og hafa skráðir félagar í golfklúbbum aldrei verið fleiri. Þennan árangur má þakka óeigingjörnu framlagi ykkar sem starfa í tengslum við íþróttina, oftar en ekki í sjálfboðavinnu. Það hefur verið ómetanlegt fyrir mig að taka þátt í því starfi með ykkur.

Jón Ásgeir Eyjólfsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram sem forseti sambandsins. Ég er afar þakklátur fyrir þá hvatningu sem ég hef fengið til þess að taka við af honum og lýsi mig reiðubúinn, með ykkar stuðningi, til að leiða starf Golfsambands Íslands næstu ár.“

Kær kveðja,

Haukur Örn Birgisson