Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 5. 2013 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Einar Haukur Óskarsson – 5. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Einar Haukur Óskarsson. Einar Haukur er fæddur 5. nóvember 1982 og á því 31 árs afmæli í dag!!!

Einar Haukur byrjaði að spila golf 12 ára gamall. Hann lærði golfvallarfræði í Elmwood College og var vallarstjóri GOB, en flutti sig yfir í Golfklúbbinn Keili árið 2012.

Meðal afreka hans í golfinu er að sigra á 3. stigamóti íslensku mótaraðarinnar 2009. Eins fékk Einar Haukur silfrið á Íslandsmeistaramótinu eftirminnilega í holukeppni 2009, eftir æsilegan úrslitaleik við Kristján Þór Einarsson, GK, (þá GKJ).

Meðal helstu afreka Einars Hauks 2012 var að hann sigraði á 6. og síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar, Símamótinu, í Grafarholtinu.

Í ár, 2013, var Einar Haukur m.a. einn þeirra sem fékk úthlutað styrk úr afrekssjóði kylfinga, Forskoti.

Einar Haukur er kvæntur Guðrúnu Þuríði Höskuldsdóttur.

Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

 

Einar Haukur Óskarsson (31 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar eru:  Marco Crespi, 5. nóvember 1978  (35 ára);  Bubba Watson, 5. nóvember 1978 (35 ára);  …… og ……

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is