Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 15:30

Ogilvy lækkaði skor með því að skipta um pútter

Ástralski kylfingurinn Geoff Ogilvy hefir ekki verið mikið í golffréttum undanfarið, en hann hefir verið í golflegri lægð undanfarin 3 ár. Sjálfstraust hans er þó hægt og bítandi að koma aftur.  Ogilvy tekur sem stendur þátt í Australian Masters og er T-10, 11 höggum á eftir Adam Scott og ólíklegt að hann nái honum. Í miðri keppni gerði hann samt nokkuð sem er fremur óhefðbundið fyrir atvinnukylfinga, hann skipti um pútter…. en það hefir verið til góðs fyrir hann því fyrstu 2 dagana spilaði hann á 71 og 72 höggum en í dag var skorið með nýja pútternum upp á 67 högg!!! Fyrrum nr. 3 á heimslistanum (sem nú er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 15:00

Veðmál Stenson og Poulter

Svona til að krydda hlutina svolítið eru kylfingarnir Ian Poulter og Henrik Stenson með veðmál í gangi í Dubaí, þar sem báðir taka þátt í lokamóti Evrópumótaraðarinnar, DP World Tour Championship. Veðmálið gengur út á að sá sem verður neðar á skortöflunni í Dubaí verði að vera þjónn þess sem er ofar kvöld eitt þegar báðir fara út að skemmta sér saman. (eða eins og segir á ensku: the loser has to serve as waiter for the winner during a night out on the town) „Það er líklegast stærsti hvatinn minn í mótinu að vilja ekki vera þjón í einn dag,“ sagði Stenson m.a. en hann leiðir nú í mótinu. „Nr. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 14:45

Evróputúrinn: Stenson enn efstur fyrir lokahringinn í Dubaí

Henrik Stenson er enn efstur fyrir lokahring DP World Tour Championship í Dubaí. Stenson er búinn að spila á samtals 17 undir pari, 199 höggum (68 64 67). Forysta Stenson er naum því strax í 2. sæti er sigurvegarinn franski í Turkish Airlines Open, Victor Dubuisson, sem oft er kallaður „Mozart“ vegna fallegrar sveiflu sinnar er aðeins 1 höggi á eftir. Dubuisson hefir leikið á samtals 16 undir pari, 200 höggum (71 66 64) og spilar stöðugt betra golf.  Stendur Dubuisson uppi sem sigurvegari annað mótið á Evrópumótaröðinni í röð? Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag DP World Tour Championship  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 14:00

Eiturlyf að verðmæti $11 milljóna haldlögð á golfvelli

Eru golfvellir ekki bestu staðir í heimi? Ferskur ilmur af nýslegnu grasi, gott veður og lyktin af metamfetamíni í loftinu? Bíðum aðeins! En þetta var nú raunin á Kogarah golfklúbbnum í Sydney Australia s.l. miðvikudag þegar  Tactical Operations Unit (TOU) ástralskt eiturlyfjateymi lögreglunnar, haldlagði metamfetamín að andvirði 11 milljóna bandaríkjadala á parkstæði golfvallarins. Fjórir voru handteknir og verða ákærðir fyrir að hafa eiturlyfin í fórum sínum og fyrir ólöglega eiturefnasölu. Tveir af ákærðu keyrðu að sögn hvítum flutningabíl, sem flutti um 10 kíló af „ís“ falið í sjónvarpi í hús sem var þarna nálægt, þegar þriðji maðurinn bættist í bílinn. Þeir þrír keyrðu síðan á golfvöllinn þar sem þeir voru handteknir. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 14:00

Eiturlyf að verðmæti $11 milljóna haldlögð á golfvelli

Eru golfvellir ekki bestu staðir í heimi? Ferskur ilmur af nýslegnu grasi, gott veður og lyktin af metamfetamíni í loftinu? Bíðum aðeins! En þetta var nú raunin á Kogarah golfklúbbnum í Sydney Australia s.l. miðvikudag þegar  Tactical Operations Unit (TOU) ástralskt eiturlyfjateymi lögreglunnar, haldlagði metamfetamín að andvirði 11 milljóna bandaríkjadala á parkstæði golfvallarins. Fjórir voru handteknir og verða ákærðir fyrir að hafa eiturlyfin í fórum sínum og fyrir ólöglega eiturefnasölu. Tveir af ákærðu keyrðu að sögn hvítum flutningabíl, sem flutti um 10 kíló af „ís“ falið í sjónvarpi í hús sem var þarna nálægt, þegar þriðji maðurinn bættist í bílinn. Þeir þrír keyrðu síðan á golfvöllinn þar sem þeir voru handteknir. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 13:00

Rose og GMac gefa Rory ráð

Rory McIlroy hefir átt hræðilegt ár á golfvellinum, eins og allir vita, í ár. Hann er t.a.m. dottinn úr 1. sæti heimslistans niður í 6. sætið. En ekki bara það, hann var nr. 1 á peningalista Evrópumótaraðarinnar í fyrra, en nú er hann bara í 46. sætinu. Nú, eftir 3 spilaða hringi á DP World Championship, er hann í 8.-10 sæti af 60 þátttakendum, móti þar sem hann á titil að verja og ætlaði að slá sér upp svona í lok árs, með sigri.  7 högg munar á Rory og Henrik Stenson, sem leiðir í mótinu. Justin Rose hefir hins vegar trú á Rory. „Að vera með jafnvægi í lífinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 10:45

PGA: Karlson og Stadler efstir eftir 2. dag OHL mótsins

Robert Karlson og Kevin Stadler eru efstir og jafnir á OHL Classic at Mayakoba. Báðir eru búnir að spila á samtals 12 undir pari, 130 höggum; Karlson (63 67) og Stadler (67 63). Flestallir aðrir eiga eftir að ljúka keppni á 2. hring en fresta varð mótinu vegna veðurs (úrhellisrigningar) í gær. Til þess að sjá stöðuna á óloknum 2. hring OHL Classic at Mayakoba SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á OHL Classic at Mayakoba SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 10:30

Jarrod Lyle ánægður

Jarrod Lyle tekur nú þátt í fyrsta móti sínu, Australian Masters, eftir hörkubaráttu við krabbamein. Reyndar greindist hann með krabbamein (þ.e. það hafði tekið sig upp að nýju hjá honum) og varð að leggjast undir hnífinn á sama tíma og dóttir hans, Josi fæddist. Fæðingunni var flýtt svo Jarrod gæti barið fyrsta barn sitt augum áður en hann gengist undir aðgerðina.  Josi hefir reynst góður hvati fyrir Lyle að ná heilsu. Lyle er ánægður þó hann sé ekkert meðal efstu manna í mótinu nú fyrir lokahring Australian Masters. Hann er kominn aftur, hann er aftur farinn að keppa í golfi. Reyndar er Lyle í T-29, búinn að spila á samtals Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 10:00

Scott með 4 högga forystu í Ástralíu

Adam Scott var á 5 undir pari, 66 höggum á 3. hring Australian Masters og er búinn að taka afgerandi forystu, á  fremur vindasömum hring á Royal Melbourne, þar sem hann setti niður 7 fugla. Scott er nú á samtals 14 undir pari, 199 höggum (67 66 66). Í hálfleik leiddi Scott með landa sínum Nathan Holman en er nú einn í 1. sæti; reyndar hefir Scott 4 högga forystu á þá sem næstir koma: Nathan Holman, Vijay Singh, forystumann 1. dags Nick Cullen og Matthew Griffin. Einn í 6. sæti er Matt Kuchar á samtals 9 undir pari, 204 höggum (71 66 67). Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 09:30

Evróputúrinn: Stenson leiðir e. 2. dag

Það er sænski nr. 3 á heimslistanum Henrik Stenson sem búinn er að koma sér í 1. sætið í hálfleik á DP World Tour Championship. Stenson átti besta skor dagsins glæsileg 64 högg, á hring þar sem hann missti hvergi högg, fékk 8 fugla sem hann deildi jafnt niður þ.e. 4 á fyrri 9 og 4 á seinni 9. Samtals er Stenson á 12 undir pari, 132 höggum (68 64) eftir 2. hring. Í 2. sæti er forystumaður 1. dags Alejandro Cañizares, aðeins höggi á eftir þ.e á samtals 11 undir pari, 133 höggum  (66  67). Þriðja sætinu deila síðan sigurvegari Turkish Airlines Open, franski kylfingurinn Victor Dubuisson og Marcus Lesa meira