Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 15:00

Veðmál Stenson og Poulter

Svona til að krydda hlutina svolítið eru kylfingarnir Ian Poulter og Henrik Stenson með veðmál í gangi í Dubaí, þar sem báðir taka þátt í lokamóti Evrópumótaraðarinnar, DP World Tour Championship.

Veðmálið gengur út á að sá sem verður neðar á skortöflunni í Dubaí verði að vera þjónn þess sem er ofar kvöld eitt þegar báðir fara út að skemmta sér saman. (eða eins og segir á ensku: the loser has to serve as waiter for the winner during a night out on the town)

„Það er líklegast stærsti hvatinn minn í mótinu að vilja ekki vera þjón í einn dag,“ sagði Stenson m.a. en hann leiðir nú í mótinu.

„Nr. 1 Fókusinn er á að verða efstur á peningalista Evrópumótaraðarinnar,“ sagði Stenson. „Nr. 2 er að vinna mótið (DP World Tour Championship) og í þriðja lagi er að ganga úr skugga um að Poulter sé fyrir aftan mig á skortöflunni,“ sagði Stenson. „Við verðum bara að sjá til hvort forgangsröðin breytist á einhverjum tímapunkti mótsins.“

Sem stendur lítur allt vel út fyrir Stenson sem leiðir fyrir lokahringinn þ.e. er í 1.sæti á samtals 17 undir pari, 199 höggum, en Poulter deilir 3. sætinu á samtals 13 undir pari, 203 höggum þ.e. það munar 4 höggum á Stenson og Poulter.  Hins vegar gæti Poulter átt séns ef úlnliður Stenson gefur sig á morgun eða hann á gríðargóðan dag. A.m.k. verður spennandi að fylgjast með hvor þeirra ef nokkur vinnur DP World Tour  Championship eða a.m.k. hvor þeirra þjónar hinum næst þegar þeir fara saman út á lífið!!!