Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Joyce Wethered – 17. nóvember 2013

Joyce Wethered, Lady Heathcoat-Amory  fæddist 17. nóvember 1901 í Surrey á Englandi og dó í London 1 degi eftir 96 afmælisdag sinn, 1997 í London.  Hún er álitin einn besti kvenkylfingur, sem Englendingar hafa átt. Í dag hefði Joyce átt 112 ára afmæli. Joyce og bróðir hennar Roger, en Roger var T-1 á Opna breska 1921 (hann tapaði síðan í bráðabana), lærðu að spila golf sem smábörn. Joyce vann Britsh Ladies Amateur Golf Championship 4 sinnum (1922, 1924, 1925, and 1929) og var enskur meisari kvenna 5 ár í röð (1920–24). Joyce giftist Sir John Heathcoat-Amory árið 1924 og varð þar eftir titluð Lady Heathcoat-Amorey. Leikur hennar og golfsveifla voru dáð af Bobby Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 16:00

Evróputúrinn: Hápunktar 4. dags í Dubaí – Högg 4. dags – Verðlaunaathöfnin – Myndskeið

Hér á eftir fara myndskeið af hápunktum lokahrings á lokadegi síðasta móts keppnistímabilsins 2013 á Evrópumótaröðinni. Til að sjá hápunkta 4. dags á DP World Tour Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá högg 4. dags á DP World Tour Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá Verðlaunaathöfina á DP World Tour Championship 2013 SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 15:30

Staðreyndir um sigur Stenson

Sænski kylfingurinn Henrik Stenson sigraði í dag lokamót Evrópumótaraðarinnar 2013, DP World Tour Championship á Jumeirah golfstaðnum í Dubaí. Hér eru nokkrar staðreyndir um sigur Stenson: •  Þetta er 8. sigur hans á Evrópumótaröðinni í 277. mótinu sem hann tekur þátt í á Evrópumótaröðinni. • Stenson er efstur á peningalista Evrópumótaraðarinnar, þ.e. The Race to Dubai,  í fyrsta skipti á ferli sínum. • Hann heldur 3. sæti sínu á heimslistanum en minnkar bilið milli sín og Adam Scott sem er í 2. sæti. • Þetta er fyrsta sigur Stenson á Evrópumótaröðinni frá því hann sigraði á SA Open Championship árið 2012. • Þetta er besti árangur hans á Evrópumótaröðinni á 2013 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 12:10

Evróputúrinn: Öruggur sigur Henrik Stenson í Dubaí

Henrik Stenson sigraði í lokamóti Evrópumótaraðarinnar, DP World Tour Championship nú í þessu og var sigur hans aldrei í hættu. Hann lék á samtals 25 undir pari, 263 höggum (68 64 67 64) – Á lokahringnum missti Stenson hvergi högg fékk 4 fugla á fyrri 9 og 2 fugla og glæsiörn á 18.  á seinni 9. Glæsilegt þetta hjá Stenson …. sigur þrátt fyrir þrálát úlnliðsmeiðsli sem hafa verið að hrjá hann að undanförnu!!! Stenson átti 6 högg á Ian Poulter, sem varð í 2. sæti á 19 undir pari, 269 höggum (69 68 66 66) og ljóst að það verður Ian Poulter, sem mun „vera þjónn“ Stenson í kvöld, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 11:30

GA: Opnunarhátíð Golfhallarinnar vel sótt

Í gær var opnunarhátíð í Golfhöllinni á Akureyri í tilefni þess að viðamiklum endurbótum er nú lokið. Vel á annað hundrað manns lagði leið sína í höllina til að skoða það sem í boði er.  Óhætt er að segja að gestir hafi verið hrifnir af því sem fyrir augu bar, enda um frábæra aðstöðu að ræða. Meðal þess sem kylfingar Norðanlands geta glaðst yfir eru Protee golfhermir, Trackman greiningartæki og nýtt glæsilegt púttsvæði.  Þar fyrir utan er aðstaða í boði til að æfa löngu höggin og vippin. Þetta er frábær aðstaða, eins og best verður á kosið. Sjá má nánar um golfherma, verðskrá o.fl. með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 10:30

PGA: English og Karlson leiða eftir 3. dag á OHL Classic

Það eru Robert Karlson og Harris English sem eru í toppsætinu eftir 3. dag á OHL Classic at Mayacoba mótinu í Mexíkó. Báðir eru þeir búnir að spila á 15 undir pari, en eiga 11 holur eftir óspilaðar, en miklar tafir hafa orðið í mótinu vegna rigningaúrhellis. Þriðja sætinu deila Rory Sabbatini og Kevin Stadler á samtals 12 undir pari, hvor, en báðir eiga líka eftir að spila 10 (Sabbatini) og 12 (Stadler) holur. Fimmsta sætinu deila síðan, eins og er,  spænska sleggjan Alvaro Quiros, Chris Stroud og Jason Bohn. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á OHL Classic at Mayacob SMELLIРHÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 09:45

LPGA: Lexi leiðir eftir 3.hring í Mexíkó

Það er Lexi Thompson, sem leiðir eftir 3. dag á Lorenu Ochoa Invitational í Mexíkó eftir 3. mótsdag. Lexi er búin að spila á samtals 13 undir pari, 203 höggum (72 64 67). Forysta Lexi í naum því aðeins 1 höggi á eftir henni er IK Kim frá Suður-Kóreu á samtals 12 undir pari, 204 höggum (70 67 67). Í 3. sæti er síðan nr. 3 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis á samtals 11 undir pari, 205 höggum. Það stefnir því í æsispennandi lokahring hjá stelpunum! Til þess að sjá stöðuna á Lorenu Ochola Invitational mótinu eftir 3. dag í Guadalajara CC, Mexíkó  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 09:30

Glæsileg titilvörn hjá Adam Scott

Nr. 2 á heimslistanum Adam Scott er aldeilis að gera góða hluti heima í Ástralíu. Hann hafði þar til í ár aldrei sigrað á PGA Australian mótinu, sem hann vann síðustu helgi og nú varði hann titil sinn Australian Masters. Hann er semsagt búinn að vinna tvö mót í röð og mótið sem hann vann nú í morgun er hann búinn að sigra á tvö ár í röð. En sigurinn var síður en svo gefinn. Nr. 8 á heimslistanum, bandaríski kylfingurinn Matt Kuchar, sem einnig tók þátt í mótinu veitt Scott mikla keppni lokahringinn. Reyndar var Kuchar yfir þegar 4 holur voru eftir en þegar kom að lokaholunni voru þeir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2013 | 09:00

DP World Tour Championship í beinni

Nú er komið að lokahring á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í Dubaí, DP World Tour Championship. Leikið er á Emirates golfvellinum, á Jumeirah Golf Estates golfstaðnum. Keppendur eru 60 efstu á peningalista Evrópumótaraðarinnar, sem auk þess hafa leikið í 2 af 3 mótum rétt á undan lokamótinu. Sjá má beina útsendingu frá DP World Tour Championship með því að SMELLA HÉR:  Til þess að fylgjast með skori keppenda á skortöflu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 16. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ævarr Freyr Birgisson – 16. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ævarr Freyr Birgisson.  Ævarr Freyr er fæddur 16. nóvember 1996 og er því 17 ára í dag. Ævarr Freyr er í Golfklúbbi Akureyrar (GA) og m.a. kylfingur ársins hjá GA 2011. Hann hefir spilað á Íslandsbankamótaröðinni í piltaflokki 17-18 ára, í sumar með góðum árangri. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Ævarr Freyr Birgisson (17 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Betty Hicks, f. 16. nóvember 1920 – d. 20. febrúar 2011); Barabara Romack, 16. nóvember 1932 (81 árs) – Sjá má eldri afmælisgrein Golf 1 um Barböru Lesa meira