
Chris Kirk baðst afsökunar á ölvunarrausi sínu um langa púttera á Twitter
Eftir að Chris Kirk sigraði á McGladrey Classic 10. nóvember s.l. fór hann á samskiptamiðilinn Twitter og tjáði sig þar drukkinn um langa púttera.
Hann sagðist dást að Adam Scott, sem notar langan pútter og sigraði Australian Masters, en lýsti yfir ógeði sínu á pútter hans og sagði að Scott ætti að skammast sín að nota slíkan pútter.
Kirk ásakaði einnig bandaríska golfsambandið fyrir að setja leikmenn í óþægilega stöðu með því að banna ekki langa púttera strax.
Seinna skrifaði hann m.a.: „Kuch er minn maður, en hverjum borgaði hann fyrir til þess að fá þessa aðferð samþykkta sem löglega?“ (ens. „Kuch is my boy, but who did he pay off to make his method legal?“) Þar var Kirk að vísa til notkun nr. 8 á heimslistanum, Matt Kuchar, á löngum pútterum, sem hann styður í handarkrika sinn.
Chris Kirk er nú búinn að eyða ummælum sínum, baðst afsökunar og tvítaði m.a.: „Allir eiga rétt á skoðunum sínum, en ég fór yfir strikið. Ekki drekka og tvíta!“
- júní. 30. 2022 | 14:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lék á +2 á Italian Challenge Open á 1. degi
- júní. 29. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Egill Ragnar Gunnarsson – 29. júní 2022
- júní. 28. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Freyja Benediktsdóttir – 28. júní 2022
- júní. 28. 2022 | 12:00 GK: Þórdís Geirs fékk ás í Bergvíkinni!!!
- júní. 27. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: David Leadbetter – 27. júní 2022
- júní. 27. 2022 | 06:00 PGA: Schauffele sigurvegari Travelers
- júní. 26. 2022 | 23:30 Evróputúrinn: Haotong Li sigurvegari BMW International Open e. bráðabana v/Pieters
- júní. 26. 2022 | 23:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun sigraði!!!
- júní. 26. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Árni Harðarsson – 26. júní 2022
- júní. 25. 2022 | 22:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun leiðir f. lokahringinn
- júní. 25. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Li Haotong leiðir f. lokahring BMW International
- júní. 25. 2022 | 21:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Andri Þór og Guðmundur Ágúst náðu ekki niðurskurði á Blot Open de Bretagne
- júní. 25. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (26/2022)
- júní. 25. 2022 | 18:00 NGL: Aron Snær varð T-13 á UNICHEF meistaramótinu
- júní. 25. 2022 | 17:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn úr leik í Tékklandi