Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2013 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rebecca Flood – 21. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski  kylfingurinn Rebecca Flood.  Rebecca fæddist 21. nóvember 1988 í Coonabarabran New South Wales í Ástralíu og er því 25 ára í dag. Rebecca byrjaði að spila golf 10 ára eftir að hún fylgdist með pabba sínum, sem er eigandi bakarís, spila golf.

Rebecca þakkar fjölskyldu sinni og þjálfara, Gary Edwin fyrir góðan árangur sinn í golfinu, en hún hefir spilað á Evrópumótaröð kvenna (LET) frá árinu 2010. Rebecca stundaði nám við NSW Institute of Sport. Hún kemur frá litla bænum  Coonabarabran í New South Wales (NSW) og þegar hún var að vaxa úr grasi varð hún að keyra í 10  tíma til Sydney a.m.k. 6 sinnum á ári til þess að fara í tíma til þjálfara síns, Gary Edwin á Gullströndinni. Fyrir utan golf segir hún að hún hafi gaman af því að fara í verlsunarferðir, eyða tíma með fjölskyldu og vinum og fara á ströndina.

Til þess að sjá heimasíðu afmæliskylfingsins Rebeccu Flood smellið HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Alexandre Nardy Rocha (frá Brasilíu) 21. nóvember 1977 (36 ára).

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is