Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 15:30

Úr framboðsræðu Hauks Arnar Birgissonar, forseta GSÍ

Haukur Örn Birgisson var kjörinn forseti GSÍ á Golfþingi Íslands s.l. laugardag, 23. nóvember 2013. Hann fékk 5 mínútur til þess að halda framboðsræðu og í henni kom m.a. eftirfarandi fram: Haukur Örn hóf mál sitt á því að þetta væri í fyrsta sinn í sögu GSÍ, sem kosið væri um forseta Golfsambandsins. Hvað sig persónulega varðaði þá væri hann starfandi hæstaréttarlögmaður, sem ætti konu og 2 börn og hefði starfað lengi í golfi. Hann kæmi úr Golfklúbbnum Oddi en ætti aukaaðild að Golfklúbbnum á Flúðum. Hann hefði verið í nokkur ár í stjórn GO og síðan í stjórn GSÍ í 8 ár. Eins hefði hann setið í stjórn EGA Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 14:00

Úr framboðsræðu Margeirs Vilhjálmssonar

Margeir Vilhjálmsson, fyrrum framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur bauð sig fram til forseta GSÍ, á móti fyrrum sitjandi varaforseta GSÍ, kjörtímabilið 2011-2013 og núverandi forseta GSÍ Hauki Erni Birigssyni á Golfþingi Íslands, höldnu af GSÍ s.l. laugardag, 23. nóvember 2013. S.s. allir vita sigraði Haukur Örn í kosningunni með 120 atkvæðum gegn 29 atkvæðum Margeirs og er því réttkjörinn, nýr forseti GSÍ. Margeir hefir nú kært kosninguna og freistar þess að fá hana dæmda ógilda. Rök hans fyrir þeirri ákvörðun eru að kjörnefnd, sem skipuð var og í áttu sæti Elsa Valgeirsdóttir, formaður GV, Garðar Eyland, GR og Ingi Þór Hermannsson, formaður GO; hafi á þinginu, fyrir kosninguna mælt með Hauki Erni í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 11:00

Paulina Gretzky veitir verðlaun á AMA

Paulina Gretzky, kærasta Dustin Johnson,  sló í gegn á AMA (American Music Award)  þ.e. bandarísku tónlistarverðlaunahátíðinni, sem fram fór s.l. sunnudagskvöld. Skv. viðtali við tímaritið Maxim´s þá er Paulina búin að setja eigin frama í tónlistinni á bið. Söngkonan Miley Cyrus tróð upp og söng og vakti mikla lukku m.a. vegna þess að í tónlistarmyndbandinu þar sem hún syngur er ekki hún heldur syngjandi kisa.  Þetta sló í gegn m.a. hjá besta leikmanni í bandaríska ruðningsboltanum, James LeBron sem tvítaði: „Miley Cyrus er með frábæra rödd. Hún getur sungið. Skrúfaðu bara fyrir stælana svolítið og þú vinnur!!!“ En víkjum sögunni aftur að Gretzky. Hún og söngkonan Ciara veittu stórkylfingnum Justin Timberlake Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 07:00

Draumur Day um að verða nr. 1

Undanfarin ár hafa verið erfið fyrir Jason Day og jafnvel á þessu ári sleppur hann ekki við áföllin þó að þessu sinni séu þau utan vallar, en hann missti nú um daginn 8 ættingja sína í fellibyl á Filipseyjum, en þaðan er móðir hans. Á honum hefir lítið borið síðan að hann sigraði á Byron Nelson Championship árið 2010 og varð síðan í 2. sæti á ýmsum stórmótum s.s. Masters 2011 og Opna bandaríska. Þeim mun meiri var gleði Day að sigra nú um helgina í ISPS Handa heimsmótinu, í Melbourne, Ástralíu, en hann sigraði bæði í einstaklings- og liðakeppninni…. og ekki skemmdi fyrir að sigurinn vannst á heimavelli. Við þennan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 21:00

Golf sem meðal við sambandsslitum

Við höfum öll heyrt því fleygt að golf geti komið bestu samböndum í spennitreyju (okkur hér á Golf 1 líkar ekki við slíkar sögur), en getur golfleikurinn líka læknað brostið  hjarta?  Svo virðist vera raunin hjá Bruce Jenner. Tengt efni: Myndir af uppáhalds frægu kylfingunum okkar  Svo sem fram kom í  People Magazine   er þessi fyrrum gullverðlaunahafi á Ólympíuleikunum og föðurmynd raunveruleikaþáttanna  Keeping up with the Kardashians,  á E! í ágætis formi þrátt fyrir nýlegan skilnað frá eiginkonu sinni til 22 ára, Kris. Svo segir a.m.k. sonur Jenner, Brody og aðspurður hvað valdi góðu skapi föður hans segir Brody að það skaði ekki í þessu sambandi að golf sé enn hluti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 19:30

Bubba spilaði á 81 höggi

Nú eru flestir kylfingar á stærstu mótaröðunum komnir í frí, eða svo til, flestir verja tíma með fjölskyldum sínum, eru að prófa nýjar kylfur fyrir næsta tímabil eða bara slappa af frá leiknum. Nú á að slaka á og skemmta sér svolítið í golfi og það er enginn, sem skemmtir sér betur á golfvellinum en Bubba Watson. Hann var að leika sér á Pelican Hill golfklúbbnum í síðasta mánuði með aðeins einn 20° blending, 3 golfbolta í vasanum og nokkra vini og var Bubba að reyna að spila völlinn með 1 kylfu. Þetta er ekki alveg eins og „Tin Cup“ og 7-járnið en þetta er frábær leið til þess að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 13:45

Rory náði samkomulagi við Oakley utan réttar

Rory McIlroy hefir náð samkomulagi við fyrrum styrktaraðila sinn Oakley utan réttar og eru báðir aðilar afar ánægðir með þau málalok. Oakley hafði þegar hafið mál gegn Rory fyrir samningsbrot en Rory hafði lofað að auglýsa föt og sólgleraugu frá fyrirtækinu, en stökk síðan yfir til Nike. Í sameiginlegri yfirlýsingu er staðfest að málinu sé nú lokið. Rory sagði m.a.: „Ég hef alltaf átt í framúrskarandi vinnusambandi við fulltrúa Oakley og ég er mjög ánægður að málinu sé nú lokið.“ Pat McIlvain, talsmaður Oakley Sports Marketing, sagði f.h. fyrirtækisins: „Við erum ánægðir að málinu gegn Rory er nú lokið. Við höfum átt gott samband við Rory sem Oakley sendiherra. Hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhann Adolf Oddgeirsson og Art Wall – 25. nóvember 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir, Arthur Jonathan Wall, Jr., alltaf kallaður Art Wall og Jóhann Adolf Oddgeirsson. Art Wall fæddist 25. nóvember 1923 í Honesdale, Pennsylvaníu og hefði því orðið 90 ára í dag hefði hann lifað. Hann stundaði nám við Duke University og útskrifaðist 1949 sem viðskiptafræðingur. Á atvinnumannsferli sínum vann hann 24 sinnum, þar af 14 sinnum á PGA. Af 14 titlum sínum á PGA vann hann 4 árið 1959, en það ár var hann valinn leikmaður ársins á PGA og hlaut Vardon Trophy fyrir lægsta meðaltalsskor. Eins var hann efstur á peningalistanum það ár með verðlaunafé upp á   $53,167.50 sem er eitthvað í kringum  $360.000,- uppreiknað á gengi dagsins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 09:00

Upplýst: Hvernig Elin Nordegren komst að framhjáhöldum Tiger

Upp komst um framhjáhöld Tiger Woods árið 2009 vegna SMS-skilaboða sem Elín Nordegren sendi, skv. nýjum heimildarmönnum Daily Mail. Sænska módelið fyrrverandi á að hafa tekið síma Tiger þegar hann var í djúpum svefni undir áhrifum svefnlyfja, á Þakkargjörðarnótt fyrir 4 árum. Elín fór þá í gegnum skilaboð á farsíma eiginmanns síns og tók upp á því að senda hjákonu Tiger, Rachel Uchitel, SMS, þar sem hún þóttist vera Tiger. Skv. The Daily Beast varð Elín, 33 ára, fyrst tortryggin eftir að hún las grein í National Enquirer á Þakkargjörðarhátíðinni 2009, þar sem því var haldið fram að eiginmaður hennar héldi framhjá henni með Uchitel. Þannig að Elín ákvað að leggja gildru fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 08:30

Luke Donald varði titil sinn á Dunlop mótinu í Japan

Luke Donald, 35 ára, sigurvegari á peninglistum beggja vegna Atlantsála 2011 vann fyrsta sigur sinn á árinu nú í lok nóvember þ.e. í gær  á Dunlop Phoenix mótinu. Hann var með 2 högga forystu yfir  Kim Hyung-Sun frá Suður-Kóreu fyrir lokahringinn. Á lokahringnum  náði Donald 7 fuglum og 2 skollum og krækti sér þar með í $400,000  á samtals 14 undir pari, 270 höggum. Hann átti í lokin 6 högg á Kim, sem lauk því keppni á 8 undir pari, 276 höggum og Japaninn Shingo Katayama varð í 3. sæti á samtals 7 undir pari, 277 höggum, eftir 4 hringi á hinum 7,027 yarda langa par-71 velli Phoenix Country Club vallarins. „Ég Lesa meira