Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2013 | 23:30

Afmæliskylfingur dagsins: Chris Wood – 26. nóvember 2013

Christopher James (alltaf nefndur Chris) Wood fæddist 6. nóvember 1987 í Bristol á Englandi og er því 26 ára í dag.

Chris var í  Golden Valley Primary School í Nailsea frá 4-11 ára aldurs, áður en hann byrjaði í Backwell skólanum. Hann byrjaði í golfi mjög ungur, en hafði á þeim tíma alveg jafnmikinn áhuga á fótbolta og stefndi alltaf á að spila með Bristol City Football Club. Hann var félagi í the Long Ashton Golf Club nálægt Bristol 9 ára gamall og við 12 ára aldurinn var forgjöf hans orðin eins-stafs. Chris Wood sigraði English Amateur Order of Merit árin 2007 og 2008.

Hann gerðist atvinnumaður í golfi  um tvítugt, árið 2008. Hann spilar sem stendur á Evrópumótaröðinni en hefir ekki sigrað enn þar. Besti árangur hans er að hafa verið með lægsta skor áhugamanna á Opna breska 2008 á Royal Birkdale golfvellinum og eins varð hann T-3 á þessu elsta risamóti allra risamóta, þegar það var haldið ári síðar á Turnberry.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Louise Parks, 26. nóvember 1953 (60 ára stórafmæli);  John Samuel Inman, 26. nóvember 1962 (51 árs).