Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 09:15

Batman golfbíll

Ef þið eruð í golfi og aðdáendur Batman þá er leitt að þurfa að segja frá því að þið hafið misst af jólagjöf ársins.

Hægt hefði verið að hræða andstæðinga ykkar á golfvellinum með þessum vígalega Batman golfbíl, sem nær allt að 60 km/klst hraða, en búið er að selja hann á eBay fyrir næstum $ 20,000 (u.þ.b. 2 milljónir íslenskra króna).

Framleiðslukostnaður bílsins, sem byggir á Dark Knight kvikmyndum Dan Nolan,  er vel yfir 3 milljónir íslenskra króna, skv. þeim hjá eBay.

Meðal útbúnaðar bílsins eru diskabremsur, stillanleg leðursæti, iPad, glasahaldarar og nokkuð hávær bílflauta.

Seljandi bílsins varð að selja hann til þess að skapa meira pláss hjá sér fyrir önnur verkefni, en fullyrðir að í bilnum séu engir ódýrir plasthlutar og nú verður nýi eigandinn bara að fá sér Batman golfdress í stíl við bílinn!