Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 17:10
Valdís Þóra bætti sig um 5 högg á 3. hring!

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tekur þátt í úrtökumóti fyrir sæti á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Úrtökumótið fer fram á Royal Golf Dar Es Salam vellinum í Rabat, Marokkó. Í dag var 3. hringurinn leikinn og bætti Valdís Þóra sig um 5 högg frá því í gær og lék besta hring sinn í mótinu til þessa, þ.e. var á 3 yfir pari, 76 höggum, á hring þar sem hún fékk 3 fugla og 6 skolla. Samtals er Valdís Þóra búin að leika á 16 yfir pari, 235 höggum (78 81 76). Eftir 3 leikna hringi er Valdís Þóra í 18. sæti og langt því frá örugg áfram. Hún verður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 13:00
Nedbank Golf Challenge í beinni

Annað móta á Evrópumótaröðinni nú um helgina er Nedbank Golf Challenge og fer fram í Gary Player CC í Sun City, Suður-Afríku. Margir af bestu kylfingum Evrópu spila í mótinu m.a. nr. 1 Henrik Stenson. Sá sem leiðir mótið í hálfleik er Jamie Donaldson frá Wales. Margir góðir sækja þó að honum og þar fremstir í flokki eru Daninn Thomas Björn, Thaílendingurinn Thongchai Jaidee og Bandaríkjamaðurinn Ryan Moore. Sjá má beint frá mótinu með því að SMELLA HÉR: Fylgjast má með á skortöflu með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 12:30
Evróputúrinn: Stuart Manley í forystu fyrir lokahring Hong Kong Open

Það er Wales-verjinn Stuart Manley sem er í forystu fyrir lokahring Hong Kong Open. En forysta hans er naum aðeins 1 högg skilur hann að og Indverjann Shiv Kapur og Englendinginn Wade Ormsby. Golf 1 er að kynna nýju strákana sem fengu kortin sín á Evrópumótaröðina í gegnum Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya golfvellinum, í Girona, Spáni, 10.-15. nóvember s.l. Stuart Manley er einn af þeim, en hann tók 10. kortið og var sá eini frá Wales til þess að komast í gegnum Q-school að þessu sinni…… ….. og nú er hann þegar í baráttunni um fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröðinni – það skiptir engu hvort sigurinn er hans á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 12:00
Golfvellir í Sviss (4/102): Montreux í Aigle

Icelandair býður nú upp á beint flug til Genfar í Sviss og nú opnast frábært tækifæri fyrir íslenska kylfinga að spila einhvern hinna frábæru 102 golfvalla í Sviss. Hér verður enn einn golfvöllurinn kynntur sem ekki er beinlínis í Genf, en einn helsti golfvöllurinn sé ekki ætlunin að leigja sér bíl eða taka lest eða rútu og ferðast í um 1 – 1 1/2 klst. fjarlægð frá Genf í gullfallegu umhverfi og spila golf þar, er sá fyrsti sem kynntur var hér: Golf Club de Genève – sjá grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR: Í dag verður flottur völlur kynntur sem er á hinum enda Genfarvatns og það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 11:30
GR: Saga hlýtur háttvísibikarinn

Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Saga Traustadóttir hlýtur viðurkenninguna í ár en Saga er margfaldur Íslandsmeistari í golfi í unglingaflokkum og hefur unnið sér inn sæti í unglingalandsliði kvenna með árangri sínum. Saga uppfyllir allar þær væntingar sem gerðar eru til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 09:00
Helen Alfredsson rekin fyrir óviðeigandi ummæli um skoska þyrluslysið

Enn berast fréttir af því að golfíþróttin tengist skelfilega sorglegu þyrluslysinu, sem átti sér stað um síðustu helgi í Glasgow, Skotlandi, þar sem 9 létust og a.m.k, 32 slösuðust. Slysið tengdist golfíþróttinni fyrst þannig að ástralski kylfingurinn Steve Elkington var með ósmekklega brandara um slysið, sem fór skiljanlega verulega fyrir brjóstið á skoskum fjölmiðlamönnum, sem margir hverjir voru fljótir að svara fyrir sig s.s. Golf 1 greindi frá. Sjá með því að SMELLA HÉR: Nú berast enn fréttir um óviðeigandi sagnir kylfinga um slysið, en í þetta sinn voru viðbrögðin snörp. Hin sænska Helen Alfredsson, sem var að lýsa Omega Dubai Ladies Masters mótinu fyrir OSN Sports var rekin í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 08:00
Stærsta golfinnanhúsaðstaða í Moskvu

Stærsta innanhúsgolfaðstaða í Rússlandi opnaði í Krasny Oktyabr menningahúsinu í Moskvu í októberlok s.l. Nýja innanhús golfæfingasvæðið hefir hlotið nafnið City Golf og nær yfir 700 fermetra svæði, en á því eru m.a. 10 golfhermar, 50 fermetra púttsvæði, pro shop og Troon Golf golfkennsla jafnt fyrir börn sem fullorðna. Krasny Oktyabr, er lítil eyja í miðri Moskvu á móti Kreml og þar var áður til húsa súkkulaðiverksmiðja, sem nú hefir orðið að víkja fyrir golfíþróttinni, sem er í mikilli sókn í Moskvu. Opið er í nýju aðstöðunni frá 8 á morgnum til miðnættis. Svona golfinnanhúsaðstöður til æfinga á vetrum eru grundvallaratriði í að árangur náist og þær vantar sárlega hér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 07:45
LET: Stacy Lewis enn efst í Dubai

Það er nr. 3 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis, sem er í forystu eftir 3. dag Omega Dubai Ladies Masters, sem fram fer á Emirates golfvellinum í Dubaí. Stacy Lewis er búin að leika á samtals 11 undir pari, 205 höggum (70 65 70). Í 2. sæti er thaílenski kylfingurinn Pornanong Phatlum, á samtals 9 undir pari, 207 höggum (68 70 69). Þrjár deila síðan 3. sætinu: Vikki Laing, Diana Luna og Carlota Ciganda allar á samtals 6 undir pari, 210 höggum, hver. Til þess að fylgjast með stöðunni á Omega Dubai Ladies Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 07:30
PGA: Tiger á 62 og efstur í Kaliforníu

Tiger Woods hefir 2 högga f0rystu á forystumann 1. dags, Zach Johnson, eftir frábæran 2. hring á Northwestern Mutual World Challenge móti sínu í Sherwood CC, í Thousand Oaks, Kaliforníu. Tiger er samtals búinn að spila á 11 undir pari, 133 höggum (71 62) og er 9 högga sveifla hjá honum milli hringja. Með 62 höggum sínum, þar sem Tiger missti hvergi högg en var með 10 fugla, jafnaði hann vallarmetið á golfvelli Sherwood CC. Skyldi 6. sigur hans á árinu vera í uppsiglingu? Zach Johnson er eins og segir 2 höggum á eftir á samtals 9 undir pari, 135 höggum (67 68). Í 3. sæti er síðan Matt Kuchar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2013 | 07:00
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Kevin Phelan (11/27)

Kevin Phelan er síðasti strákurinn í 17.-21. sæti á lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór í Girona á Spáni, 10.-15. nóvember 2013, sem kynntur verður hér, því hinir 4 strákarnir sem deildu því sæti hafa allir verið kynntir til sögunnar. Það eru: Andreas Hartö, Daníel Brooks, Thomas Pieters og Lucas Bjerregaard. Lokaskor Phelan var eins og hinna samtals 10 undir pari, 418 högg (73 67 68 71 70 69) og hlaut hann € 2.440,- Phelan var eini Írinn sem náði inn á Evrópumótaröðina að þessu sinni og einn af aðeins 6 sem spilaði sig í gegnum öll 3 stig undanúrtökumótanna, til þess að komast þangað. Kevin Phelan er fæddur 8. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

