Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2014 | 19:30

Solheim Cup stjörnur á leið til Ástralíu

Tvær af skærustu stjörnum Solheim Cup 2013 eru nú á leið til Ástralíu þar sem þær munu taka þátt í Volvik RACV Ladies Masters, en mótið er nú haldið í 25. sinn.

Þetta eru sænski kylfingurinn Caroline Hedwall og enski táningurinn Charley Hull – en jafnframt taka aðrar stórstjörnur þátt í mótinu þ.á.m. heimakonan og golfdrottningin Karrie Webb,  en auk þess líka Katherine Hull-Kirk, Rebecca Artis, Stacey Keating, Kristie Smith og Lindsey Wright.

Mótið fer fram 6.-9. febrúar n.k. í RACV Royal Pines Resort.

Caroline Hedwall, sem er mikil vinkona og fyrrum skólasystir Eyglóar Myrru Óskarsdóttur, GO,  í Oklahoma skaraði fram úr í Solheim Cup, en hún vann það einstæða afrek að sigra í öllum 5 leikjum sínum.

Eygló Myrra var um tíma á pokanum hjá Caroline s.l. sumar, en Caroline er sem stendur nr. 23 á Rolex-heimslista kvenna og varð í 14. sæti á peningalistanum, þar sem hún vann sér inn um  US$763,104 (eitthvað um 100 milljónir íslenskra króna).

Hedwall elskar Gullströndina og hefir sagt að Ástralía sé uppáhaldsland sitt, þegar kemur að keppnisferðum.

Charley Hull er nýliði ársins á Evrópumótaröðinni 2013 og stóð sig vel í frumraun sinni í Solheim Cup 2013, þar sem hún var í sigurliðinu. Charley hóf ferilinn á því að verða fjórum sinnum í 2. sæti á Evrópumótaröð kvenna auk þess sem hún varð 5 sinnum meðal topp 10 í þeim 14 mótum sem hún tók þátt í 2013. Strax á 1. ári sínu varð hún í 6. sæti á peningalista LET og vann sér inn € 135.994 (u.þ.b. 20 milljónir íslenskra króna).  Charley þyrstir í að sigra nú í ár, 2014 og verður gaman að fylgjast með hvort henni tekst það!