Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 11:00
LPGA: Korda leiðir e. 2. dag á Bahamas

Það er bandaríski kylfingurinn Jessica Korda sem tekið hefir forystu á 2. degi Pure Silk Bahamas LPGA Classic mótinu. Jessie er búin að spila á samtals 11 undir pari, 135 höggum (69 66). Í 2. sæti er hinn nýtrúlofaði bleiki pardus, Paula Creamer, sem er aðeins 1 höggi á eftir Korda. Um hringinn sinn fína sagði Korda m.a.: „Það hvessti um leið og við vorum búnar að tía upp. Þetta fór úr fallegu, sólríku veðri, með smá vindi og skýjum í hvirfilbyl. Það var erfitt þarna úti. Ég á við þetta var svolítið andlega lýjandi vegna þess að maður varð að gefa allt í hvert högg. Paula (Creamer) hélt mér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 10:00
Nýir SNAG leiðbeinendur útskrifast

Þann 17. janúar s.l. bættist öflugur hópur við sístækkandi hóp SNAG golf leiðbeinenda og voru margir hinna nýju leiðbeinenda langt að komnir. Þannig mættu t.a.m. Arnar Freyr Þrastarson frá Golfklúbbi Siglufjarðar (GKS) og Sigbjörn Þorgeirsson frá Golfklúbbi Ólafsfjarðar (GÓ), sem og Hugrún Elísdóttir frá Golfklúbbnum Vestarr í Grundarfirði (GVG). Í Grundarfirði verður boðið upp á SNAG kennslu í grunnskólanum og er verkefnið myndarlega styrkt á Grundarfirði. Leiðbeinendanámskeiðið var haldið í Hraunkoti, Hafnarfirði og hafa nú alls 40 SNAG leiðbeinendur útskrifast hér á landi. Golf 1 óskar nýju leiðbeinendunum góðs gengis við að útbreiða golfið á Íslandi! Á meðfylgjandi hópmynd vantar Björgvin Sigurbergsson og Torfa Magnússon.
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 09:00
PGA: Spieth efstur e. 2. dag Farmers

Það er Jordan Spieth sem leiðir í hálfleik á Farmers Insurance Open mótinu í La Jolla, Kaliforníu. Hann er búinn að spila á samtals 10 undir pari, 134 höggum (71 63) og átti glæsihring og lægsta skor í gær, 63 högg, á hring þar sem hann skilaði skollalausu skorkorti, með 9 fuglum og 9 pörum. Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Spieth er forystumaður 1. dags; sigurvegari Opna breska 2009: Stewart Cink. Enn öðru höggi á eftir er Belginn Nicolas Colsaerts á samtls 8 undir pari og síðan deila Marc Leishman og Billy Horschel 5. sætinu á samtals 7 undir pari, hvor – 3 höggum á eftir Spieth. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 22:15
Evróputúrinn: Steven Webster og Rafa Cabrera-Bello leiða eftir 3. dag í Qatar

Það eru Englendingurinn Steven Webster og Kanarí-eyingurinn Rafa Cabrera-Bello, sem leiða fyrir lokahringinn í Doha golfklúbbnum á Commercial Bank Qatar Masters. Báðir eru þeir Webster og Cabrera-Bello búnir að spila á samtals 12 undir pari, 204 höggum; Webster (65 69 70) og Cabrera-Bello (66 65 73). Þriðja sætinu deildu þeir Adrien Saddier, Thorbjörn Olesen og Thomas Aiken, aðeins 1 höggi á eftir hver á samtals 11 undir pari, hver. John Daly átti því miður slakan 3. hring upp á 77 högg, en hann deilir 44. sæti ásamt 8 öðrum kylfingum, þ.á.m. nr. 1 í Evrópu Henrik Stenson og fyrrverandi nr. 1 á heimslistanum, Martin Kaymer. Sjá má stöðuna eftir 3. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 22:00
Golf fær 4.000.000 í afreksstyrk frá ÍSÍ

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands samþykkti, fimmtudaginn 23. janúar 2014, tillögur stjórnar Afrekssjóðs ÍSÍ að úthlutun fyrir árið 2014. Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals rúmlega 96 milljónum króna. Til Afrekssjóðs ÍSÍ bárust umsóknir frá 26 sérsamböndum. Hljóta þau öll styrk að þessu sinni vegna 37 landsliðsverkefna, 19 liða og vegna verkefna 38 einstaklinga. Sótt var um styrki til sjóðsins vegna verkefna 92 einstaklinga að þessu sinni og er aðeins hluti þeirra verkefna styrktur sérstaklega. Framlag ríkisins til Afrekssjóðs ÍSÍ fyrir árið 2014 hækkaði í 70 m.kr., en var árið áður 55 m.kr. og árið 2012 var framlag ríkisins 34,7 m.kr. auk þess sem að styrk vegna undirbúnings fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 21:00
Ólafur Björn með góðan lokahring í Flórída

Ólafur Björn Loftsson, NK, átti annan góðan hring í dag, en þetta var síðasti dagur úrtökumótsins fyrir Latino América NEC Series. Ólafur Björn endurtók leikinn frá því deginum áður, þ.e. lék á 2 undir pari, 70 höggum, á Deere Run golfvelli Sun N´ Lake Golf Club, í Sebring, Flórída. Hann fékk 5 fugla og 3 skolla og hefði verið óskandi að hann hefði spilað alla 4 daga úrtökumótsins svona, þá er ekki sökum að spyrja hann hefði verið í einu toppsætanna í mótinu…. þar sem hann á heima!!! Samtals lék Ólafur Björn á 8 undir pari, 296 höggum (76 80 70 70). Sem stendur er Ólafur Björn í 56. sæti af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 13:00
Alex Salmond forsætisráðherra Skotlands gagnrýndur fyrir of háa Ryder Cup hótelreikninga

Alex Salmond, forsætisráðherra Skota, er maður með ákveðnar skoðanir á ýmsu tengdu golfi. M.a. er hann ötull talsmaður að konur eigi að eiga rétt á við karla að ganga í hvaða golfklúbb sem er. Golfklúbbar ættu að hans mati að gæta jafnræðis hvað þetta atriði snertir. Hann mætti m.a. ekki á Opna breska s.l. sumar á Muirfield í mótmælaskyni, þar sem klúbburinn leyfir konum ekki að gerast félagar í klúbbnum, einn fjölmargra klúbba Skotlands, sem enn halda í þessa fornfálegu reglu. Það nýjasta varðandi Alex Salmond er að hann sætir gagnrýni í skoska þinginu af hálfu Johanns nokkurs Lamont verkalýðsforingja, fyrir að hafa gist í hóteli í Bandaríkjunum (The Peninsula í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir – 24. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Jóhanna Dröfn Kristinsdóttir, GO. Hún fæddist 24. janúar 1962. Jóhanna Dröfn hefir átt fast sæti fyrir hönd Golfklúbbsins Odds í kvennasveit GO og hefir tekið þátt í mörgum sveitakeppnum GSÍ á undanförnum árum, var m.a. í sveit GO sem vann 2. deild kvenna 2005. Af mörgu er að taka í golfferli Jóhönnu Dröfn en hún hefir sigrað í mörgum opnum mótum vann m.a. ára-mót GO 2009. Jóhanna Dröfn hefir setið stjórn í GO. Jóhanna er dóttir Kristins Sigurpáls Kristjánssonar og á eina dóttur Lilju Valþórsdóttur. Eins er Jóhanna Dröfn systir Dóru Kristínar í GHD. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kim Saiki Maloney, 24. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 10:00
1 árs giftingarafmæli Morgan Pressel

Bandaríski LPGA kylfingurinn Morgan Pressel giftist fyrir ári síðan Andrew Bush. Giftingin fór fram í Palm Beach í Flórída og stóð veislan í 3 daga. Sjá má myndir frá giftingu Pressel og Bush með því að SMELLA HÉR: Smellið endilega á „Read More“ en þá opnast á PDF skjal frá tímaritinu glæsilega um brúðkaup insideweddings.com en þar eru gullfallegar myndir frá þessum besta degi í lífi Pressel. Hér að neðan má sjá kynningu greinarhöfundar á Morgan Pressel, sem iGolf birti með góðfúslegu leyfi greinarhöfundar á afmælisdegi Pressel 23. maí 2010: „Bandaríski kylfingurinn Morgan Pressel er fædd 23. maí 1988 og er því 22 ára í dag. (INNSKOT: Ath!!! Greinin er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 09:30
Áströlsk golffrímerki

Ástralir eru mikil golfþjóð. Því liggur það nærri að á frímerkjum þeirra séu myndir sem tengjast golfíþróttinni – sú sem hér fylgir hér að ofan er útgefin fyrir 25 árum – 1989. Spurning hvenær við fáum íslensk golffrímerki? Golfíþróttin er nú einu sinni 2. vinsælasta íþróttagrein á Íslandi! Hér að neðan má sjá fleiri áströlsk golffrímerki og eru golffyrirmyndirnar: golfskór, golfgripið, forsetabikarinn og golfbolti og kylfur:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

