Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 11:00

Hver er kylfingurinn: Gary Woodland?

Gary Woodland leiðir á Farmers Insurance Open fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í kvöld, 26. janúar 2014.  Hver er kylfingurinn Gary Woodland? Það mætti svara því svo til að Woodland sé uppáhaldskylfingur stigameistara Íslandsbankamótaraðarinnar í piltaflokki 2013; Arons Snæs Júlíussonar, og af þeim á 3. hundrað viðtala sem Golf 1 hefir tekið við íslenska kylfinga, þá er Aron Snær sá eini sem sagt hefir Woodland vera uppáhaldskylfing sinn. Gary Woodland er fæddur 21. maí 1984 í Topeka, Kansas og er því 29 ára. Hann er 1.85 m og 91 kg. Woodland komst á PGA Tour eftir að hafa landað 14. sætinu í úrtökumóti fyrir mótaröðina 2010 m.ö.o.  hann varð T-11 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 08:00

ALPG: Joanna Klatten sigraði á NSW Open með nýju vallarmeti 63 höggum!

Það var franski kylfingurinn Joanna Klatten, sem sigraði á New South Wales Open –  og það með stæl – hún spilaði lokahringinn á 9 undir pari, 63 höggum, sem var nýtt vallarmet í Oatlands golfklúbbnum í New South Wales. Samtals spilaði Klatten á 16 undir pari, 200 höggum  (70, 67, 63). Klatten sem er nr. 158 á Rolex-heimslista kvenna sagði að sér liði æðislega eftir sigurinn og að völlurinn hefði fullkomlega hentað leikstíl hennar. „Ég vissi að ég væri að hefja lokahringinn 3 höggum á eftir sem er ekkert, sérstaklega á þessum velli. Það er hægt að vera aggressívur hérna og aðstæðurnar voru frábærar og mér fannst ég hafa stjórn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 07:00

LPGA: NY Choi leiðir fyrir lokahringinn á Bahamas

Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu leiðir fyrir lokahringinn á Pure Silk Bahamas LPGA Classic. Hún er búin að spila á samtals 15 undir pari, 204 höggum (79 68 66). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er bandarísk-mexíkanska stúlkan Lizette Salas, sem enn er á höttunum eftir 1. sigri sínum á LPGA. Þriðja sætinu deila síðan Paula Creamer og Jessica Korda á samtals 12 undir pari, 207 höggum þ.e. 3 höggum á eftir Choi. Þrjár deila 5. sætinu þ.á.m. fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, Stacy Lewis og sex deila 8. sætinu þ.á.m hin 16 ára Lydia Ko og Michelle Wie. Til þess að sjá stöðuna fyrir lokahring Pure Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 05:15

PGA: Gary Woodland efstur e. 3. hring Farmers

Það er Gary Woodland sem leiðir fyrir lokahring Farmers Insurance Open mótsins, sem fram fer í Torrey Pines, í La Jolla, Kaliforníu. Woodland er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 208 höggum (65 73 70). Í 2. sæti aðeins 2 höggum á eftir eru þeir Marc Leishman frá Ástralíu og Jordan Spieth frá Texas. Til þess að sjá stöðuna fyrir lokahring Farmers Insurance mótsins, sem leikinn verður í kvöld SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Torrey Pines SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 22:00

PGA: Tiger á 79 höggum – spilar ekki á sunnudag

Nr. 1 á heimslistanum, Tiger Woods, byrjar árið 2014 illa. Hann var við keppni á Farmers Insurance Open á Torrey Pines, í  La Jolla, Kaliforíu, en spilaði 7 holur á 9 yfir pari og lauk 3. hring nú rétt í þessu á 79 höggum – sem er hæsta skor hans á Torrey Pines og munar 2 höggum á næstversta skori hans. Þetta leiðir til þess að hann nær ekki niðurskurðinum eftir 54 holur í fyrsta sinn á ferlinum. Þegar Tiger kláraði nú áðan var aðeins Michael Block á verra skori á hann af þeim 81 sem keppa á 3 hring Farmers Insurance mótsins. Eftir 54 holur verður skorið niður í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 19:55

Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Á geðveikrahæli sér vakthafandi læknir þrjá geðveika, sem hlaupa um með kústum, meðan að sá fjórði stendur hlæjandi hjá. Læknirinn spyr þann hlæjandi að því hvað eiginlega sé um að vera og fær sem svar eftirfarandi: „Ég dró upp lítinn krítarhring á gólfið og lofaði viðkomandi eftirréttnum mínum, sem fyrstur setti niður pútt. Nr. 2 Hér má sjá skemmtilegt myndskeið af manni sem fer í golf snemma morguns …. en hættir síðan við vegna veðurs SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 18:45

Evróputúrinn: Sergio Garcia sigraði á Qatar Masters

Það var spænski kylfingurinn Sergio Garcia, sem stóð uppi sem sigurvegari á Commercial Bank Qatar Masters. Hann lék á samtals 16 undir pari líkt og Finninn Mikko Ilonen og því varð að koma til bráðabana milli þeirra, sem Garcia sigraði í, á 3. holu bráðabanans. Ilonen varð því að láta sér lynda 2. sætið, líkt og Garcia fyrir ári síðan þegar Chris Wood fékk örn á lokaholuna og stal sigrinum frá Garcia og George Coetzee. Sigurinn var Garcia því einstaklega sætur. Samtals lék hann sem segir á 16 undir pari, 272 höggum (71 67 69 65) og hlaut í verðlaun € 305,232. Sjá má lokastöðuna á Commercial Bank Qatar Masters með því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ari Gylfason ——— 25. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Ari Gylfason. Ari er fæddur 25. janúar 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Ari býr í Sandgerði og er félagi í GSG – Hann varð m.a í 3. sæti í 1. flokki á Meistaramóti GSG, 2013 og gengur yfirleitt vel í opnum mótum. Ari er í sambúð með Maríu Guðmundu Pálsdóttur og á 3 börn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Ari Gylfason (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  William Thomas Andrade, 25. janúar 1964 var í Wake Forest (50 ára stórafmæli!!!);  Lynnette Teresa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 13:00

10 athyglisverðustu æðisköstin í golfi

Yfirleitt þykir atvinnumönnum í golfi miður þegar félagar þeirra missa stjórn á sér úti á golfvelli. Ró- og jafnlyndi þykir meðal höfuðkosta góðs kylfings.  Góður kylfingur tekur slæmu höggunum eða slæmu gengi af jafnaðargeði og veit að það kemur alltaf dagur á eftir þann slæma! Pádraig Harrington, er þó e.t.v. undantekningin sem sannar regluna. Hann tjáði sig um það við Irish Golf Desk að sér þættu geðluðrur og æðisköst samspilara sinna oft bara fyndin og nefndi sérstaklega tilvik sem átti sér stað í Opna breska 2007, í Carnoustie, þegar Richie Ramsay var eitthvað óánægður með tilveruna. Harrington sagðist hafa sett niður pútt  sitt á fyrstu holu en Ramsay missti púttið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2014 | 12:00

Golfútbúnaður: Golfbolir Nike hannaðir af og fyrir Rory

Á meðfylgjandi myndum má sjá nýjustu Nike golfbolina, sem Rory McIlroy átti sjálfur þátt í að hanna. Sjá má nýju Nike golfbolina með því að SMELLA HÉR: