Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 09:00
GSÍ: Árleg endurskoðun forgjafar

Í upphafi hvers árs eiga klúbbar að framkvæma árlega endurskoðun forgjafar hjá öllum klúbbfélögum. Hér að neðan eru svör við nokkrum algengum spurningum sem kunna að vakna. Hvaða forgjafir verða endurskoðaðar? Í þessari árlegu endurskoðun verða bara virkar forgjafir notaðar (lágmark fjögur gild skor á síðasta ári), og byggja skal á minnst átta forgjafarhringjum yfir tveggja ára tímabil. Forgjafir sem ekki fá endurskoðun eru þær sem eru óvirkar, þ.e.a.s. þrjú gild skor eða færri á síðasta ári. Ekki verður átt við forgjafir frá 36 til 54. Síðan hvenær var farið að endurskoða forgjafir kylfinga árlega? Alveg síðan 1928 hefur árleg endurskoðun forgjafar verið hluti af Evrópska forgjafarkerfinu. En fram til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 08:30
LPGA: Ko og Lee efstar e. 1. dag á Bahamas

Það er hin 16 ára Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi, sem leiðir eftir 1. dag á Pure-Silk Bahamas LPGA Classic mótinu, sem hófst í gær á golfvelli Ocean Club á Paradise Island, á Bahamas-eyjum. Hún deilir 1. sætinu með Meenu Lee frá Suður-Kóreu, en þær báðar léku á 5 undir pari, 68 höggum. „Ég hélt að ég væri að spila miklu betur en skorið sagði til um,“ sagði Ko eftir glæsihringinn. „Ég var á 3 undir pari um miðju hringsins en hélt að ég væri að spila mun betur.“ Þriðja sætinu aðeins 1 höggi á eftir forystukonunum deila hvorki fleiri né færri en 10 kylfingar, þ.á.m. fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, Stacy Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 24. 2014 | 08:00
PGA: Cink leiðir e.1. dag Farmers

Í gær hófst á Torrey Pines í La Jolla, Kaliforníu, Farmers Insurance Open. Eftir 1. dag leiðir bandaríski kylfingurinn og sigurvegari Opna breska 2009, Stewart Cink. Cink lék 1. hring á 8 undir pari, 64 höggum. Í 2. sæti er Gary Woodland, 1 höggi á eftir þ.e. á 7 undir pari, 65 höggum. Þriðja sætinu deila 4 kylfingar á 66 höggum: Jason Day, Tyrone Van Aswegen, Jim Herman og Marc Leishman. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Farmers Insurance Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags Farmers Insurance Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 22:00
Ólafur Björn með örn og á fínu skori á 3. degi í Flórída

Loksins sýndi Ólafur Björn Loftsson, NK sitt rétta andlit í dag á 3. hring úrtökumótsins fyrir Latino América NEC Series. Hann átti fínan hring á Deere Run golfvelli Sun N´ Lake Golf Club í Sebring, Flórída. Ólafur Björn spilaði á 2 undir pari, 70 höggum; fékk glæsiörn (á 10. holu), 2 fugla og 2 skolla og spilaði loks par-5 14. holuna á pari, en undanfarna daga hefir sú hola reynst honum dýrkeypt og hann fengið skramba á hana, báða fyrstu keppnisdagana. Samtals er Ólafur Björn búinn að spila á 10 yfir pari, 226 höggum (76 80 70) og eins og sést er 10 högga sveifla milli 2. og 3. dags hjá Ólafi Birni. Hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 21:15
GS: Kinga – 10 ára – efst á 3. púttmótinu í fl. 18 ára og yngri!

Í Keflavík líkt og í öðrum bæjum um allt land fer fram púttkeppni hjá GS. Keppt er í 3 flokkum: 18 ára og yngri, þeim sem eru með 10 og undir í forgjöf og þeim sem eru með 10 og yfir í forgjöf. Nokkuð sérstakt er að sú sem varð í 1. sæti í flokknum 18 ára og yngri er hin 10 ára Kinga Korpak! Glæsilegt hjá Kingu!!! Hér eru úrslit úr 3. púttmóti GS: 18.ára og yngri: 1. sæti Kinga Korpak 46.högg 2. sæti Birkir Orri 65.högg 3. sæti Geirmundur Eiríksson 66.högg Flokkur 10 og yfir: 1. sæti Sigfús Sigfússon 62.högg 2. sæti Ævar Finsson 69.högg 3. sæti Guðríður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 21:00
Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ——— 23. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins í dag er taíwanski kylfingurinn og 5-faldur sigurvegari risamóta, Yani Tseng (á kínversku: 曾雅妮). Yani fæddist 23. janúar 1989 í Gueishan, Taoyuan í Taíwan og er því 25 ára í dag. Golf 1 hefir áður kynnt afmæliskylfinginn Yani, sem sjá má með því að smella hér: YANI TSENG Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Soffía Margrét Hafþórsdóttir 42 ára afmæli! Valgeir Guðjónsson 62 ára afmæli! Golf 1 óskar afmæliskylfingum dagsins innilega til hamingju með daginn! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 20:15
GR: Svanhildur Sigurðar og Sigríður M Kristjánsdóttir í efstu sætum eftir 2. púttmót GR-kvenna 2014

Það var frábær mæting á annað púttkvöld GR kvenna 2014. Ríflega 110 konur mættu og það virtist engu skipta hvort Ísland væri að keppa við Dani eða ekki, konur mæta og eru með, því þær eru félagsverur og hafa gaman af því að vera saman… og pútta. Völlurinn velgdi sumum dálítið undir uggum, undarleg brot voru í einhverjum brautum sem og erfiðar holustaðsetningar, sem skuldinni verður skellt á, en umfram allt er aðalmálið að mæta og hafa gaman af, spjalla og spá og eignast golfvinkonur. Skorið var mjög flott, mjótt er á munum á efstu konum. Svanhildur Sigurðar og Sigríður M Kristjánsdóttir skutust upp í efstu sætin að loknu þessu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 19:30
Hvaleyrin besti golfvöllur á Íslandi

Hvaleyrarvöllur Golfklúbbsins Keilis hefir nú 3. árið í röð verið valinn besti golfvöllur á Íslandi skv. breska golfvefnum topp100golfcourses@co.uk Nú í ár, 2014, munaði minnstu að hann lenti aftur á meðal topp-100 golfvalla Evrópu, líkt og hann gerði árið 2012. Golfvefurinn hefir valið 10 bestu velli á Íslandi og má sjá mat þeirra með því að SMELLA HÉR: Hér má sjá röð bestu golfvalla á Íslandi skv. topp100golfcourses@co.uk: 1. sæti Hvaleyrarvöllur (GK) 2. sæti Grafarholtsvöllur (GR) 3. sæti Garðavöllur (GL) 4. sæti Hólmsvöllur í Leiru (GS) 5. sæti Urriðavöllur (GO) 6. sæti Vestmannaeyjavöllur (GV) 7. sæti Korpa (GR) 8. sæti Þorlákshafnarvöllur (GÞ) 9. sæti Kiðjabergsvöllur (GKB) 10. sæti Jaðarsvöllur (GA)
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 19:00
Evróputúrinn: Rafa leiðir í hálfleik í Qatar

Mót vikunnar á Evróputúrnum er Commercial Bank Qatar Masters. Það er Rafa Cabrera Bello frá Kanaríeyjum sem leiðir í hálfleik á 13 undir pari, 133 höggum (66 65). Tveimur höggum á eftir forystumanninum er forystumaður gærdagsins George Coetzee frá Suður-Afríku (64 69). Þriðja sætinu deila síðan Steve Webster og Matthew Baldwin frá Englandi og Svíinn Johan Carlson á samtals 10 undir pari hver, 3 höggum á eftir Rafa. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Commercial Bank Qatar Masters SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags Commercial Bank Qatar Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 23. 2014 | 12:00
GK: Þorrablót Keilis á morgun

Þá er komið að árlega Þorrablóti Keilis. Að sjálfsögðu verður það haldið á Bóndadaginn 24. janúar eins og hefð er fyrir í Keili. Húsið opnar klukkan 19:30 og verður boðið uppá ískalt brennivín og hákarl í startið. Fyrir ykkur sem viljið ekki Þorramatinn þá verður pottréttur, þannig að enginn á að svelta. Blótsjóri verður enginn annar enn nýkrýndur forseti GSÍ Haukur Örn Birgisson. Einnig til að halda uppi stuðinu kemur í heimsókn Eyjólfur Kristjánsson stórgolfari og Evrovisonfari. Síðustu ár hefur verið fullt á kvöldið, ekki bíða með að tryggja þér miða. Miðaverð einungis 4500 krónur.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

