Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2014 | 07:30
ALPG&LET: Cheyenne Woods og Stacy Lee Bregman efstar eftir 2. dag Volvik RACV Ladies Masters

Frænka Tiger Woods og fyrrum liðsfélagi Ólafíu Þórunnar í Wake Forest, Cheyenne Woods deilir efsta sætinu á Volvik RACV Ladies Masters, ásamt Stace Lee Bregman frá Suður-Afríku, eftir 2. dag mótsins. Báðar eru þær búnar að spila á samtals 10 undir pari, 136 höggum (69 67). Í 3. sæti hin enska Trish Johnson á samtals 9 undir pari og í 4. sæti eru Camilla Lennarth frá Svíþjóð, á 8 undir pari. Charley Hull og Katie Burnett deila sér síðan 5. sætinu, 3 höggum á eftir forystukonunum á samtals 7 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna á Volvik RACV Ladies Masters eftir 2. keppnisdag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2014 | 07:00
GVS: Stjórnin endurkjörin á aðalfundi

Aðalfundur Golfklúbbs Vatnsleysustrandar var haldinn mánudaginn 27. janúar. Á dagskrá voru venjuleg aðlfundarstörf. Samþykkt var að halda árgjöldum óbreyttum fyrir árið 2014. Æfingaboltar og golfkennsla verða áfram innifalin í árgjaldinu. Aðalfundur veitti stjórn heimild til þess að hefja framkvæmdir við áhalda- og æfingaaðstöðu. Sitjandi stjórn gaf áfram kost á sér fyrir utan Jón Mar Guðmundsson og eru honum þökkuð vel unnin störf. Nýir aðilar í stjórn voru kosnir þeir Hilmar Egill Sveinbjörnsson og Sigurður J. Hallbjörnsson. Ársreikningur félagsins 2013 ber nokkurn keim af blautu sumri 2013. Tekjur á milli ára lækka um 7% sem verður samt að teljast nokkuð góður árangur, miðað við það að félags- og vallargjöld lækkuðu um 11,3%. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 23:30
Afmæliskylfingur dagsins: Alastair Kent —— 6. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er enski kylfingurinn Alastair Kent. Alastair er fæddur í Saddleworth í Englandi 6. febrúar 1970 og á því 44 ára afmæli í dag (Innilega til hamingju!!!) Alastair býr á Íslandi og er félagi í GR og þar að auki Elítunni, 20 manna lokaðs félagsskapar lágforgjafarkylfinga innan GR sem hafa að markmiði að spila golf og hafa gaman. Golf 1 tók nýlega viðtal við Alastair, sem sjá má með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: James Braid, (f. 6. febrúar 1870 – d. 27. nóvember 1950); Benn Barham, 6. febrúar 1976 (32 ára); Izzy Beisiegel, 6. febrúar 1979 (35 ára); spilar í LPGA; Chris Lloyd, 6. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 10:30
GR: Svanhildur efst eftir 4. púttmót GR-kvenna

Nú er 4. púttmóti GR-kvenna lokið en alls eru mótin 8. Alls hafa 147 konur tekið þátt í púttmótaröðinni og 63 tekið þátt í öllum 4 mótunum. Kvennanefnd GR sendi frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: „Spennan í púttmótaröð GR kvenna er að verða óbærileg. Aðeins munar einu stigi á þeim Svanhildi Sigurðardóttur og Sigríði M Kristjánsdóttur en þær hafa skipst á að halda forrystunni síðustu tvær vikurnar. Nú þegar mótaröðin er hálfnuð leiðir Svanhildur með einu stigi, skaust upp fyrir Sigríði í kvöld. Marólína Erlendsdóttir er jöfn Sigríði að stigum og í humáttina á eftir þeim raða aðrar GR konur sér á flottu skori. Það er mjótt á munum og allt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 10:15
GK: Þórdís á toppnum

Miðvikudaginn 29. janúar fór fram 3. púttmót Keiliskvenna. Alls hafa 16 konur lokið þremur hringjum og skipast svona í sæti: 1. sæti Þórdís Geirs 86 pútt 2. sæti Ólöf Baldurs 94 pútt 3. sæti Lovísa Hermanns 95 pútt 4.-7. sæti Anna Snædís, Birna, Guðrún Bjarna og Guðbjörg 97 pútt. Í gær fór 4. púttmót Keiliskvenna fram og verða úrslit birt um leið og þau liggja fyrir. Það er nóg eftir og enn ekkert of seint að byrja og reyna að verða púttmeistari Keiliskvenna! Kvennanefndin vill hvetja konur til að mæta en púttmótin eru kjörinn vettvangur fyrir Keilis-konur að hittast og nýliða til að kynnast sterku og góðu kvennastarfi Keilis!
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 10:00
Robert Karlsson brosir aftur

Saga Robert Karlsson sýnir bara hversu eyðileggjandi golfárarnir geta verið. Daginn fyrir Opna breska 2012 dró Karlsson sig úr mótinu og tvítaði áður en hann dró sig úr mótinu: „Ég hef tamið mér slæmar venjur í leik mínum og rútínu sem ég verð að sinna.“ Þetta var fremur óhefðbundin útskýring. Sannleikurinn var sá að hugur Karlsson var svo truflaður að hann gat ekki einu sinni hafið baksveiflu sína. Hugarferli hans var svo skýjað að eitthvað sem honum hafði verið eiginlegt og eðlilegt frá blautu barnsbeini virkaði bara ekki lengur. Það var því hrein gleði að sjá Karlsson keppa aftur í eyðimörkinni í Dubaí með bros á vör á Dubai Desert Classic. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 09:30
GK: Ekki búist við kalskemmdum

Vallarstjóri golfklúbbsins Keilis skrifaði eftirfarandi á heimasíðu Keilis: „Eins og félagar hafa vafalaust tekið eftir hefur ís og klaki sem lagst hefur á golfvöllinn okkar legið óvenju lengi, eða frá í desember. Starfsmenn Keilis hafa lagt mikla vinnu í að fyrirbyggja kalskemmdir af völdum klakans og hafa mulið, brotið og brætt ís af öllum flötum og teigum þar sem ís lá yfir. Okkur virðist sem það hafi tekist með ágætum og búumst við ekki við miklum skemmdum á yfirborði flata. Nú leggjum við áherslu á önnur svæði sem enn eru undir klaka, t.d. lágpunkta brauta. Reynt verður að þynna klakann eins og hægt er til að hámarka bráðnun þegar loks Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 09:15
ALPG&LET: Burnett og Korda leiða e. 1.dag Volvik RACV Ladies Masters – Cheyenne Woods í 3. sæti

Það eru tvær bandarískar sem leiða á Volvik RACV Ladies Masters, sem hófst í morgun á RACV Royal Pines Resort á Gullströndinni í Queensland, Ástralíu en það eru þær Katie Burnett og Jessica Korda. Sjá má kynningu Golf 1 á Katie Burnett með því að SMELLA HÉR: Sjá má viðtal fréttafulltrúa LET við Korda eftir 1. hring með því að SMELLA HÉR: Þær báðar Burnett og Korda spiluðu 1. hring á 5 undir pari, 68 höggum. Fimm kylfingar deila 3. sætinu þ.á.m. Cheyenne Woods, frænka Tigers, en þær eru allar 1 höggi á eftir forsytukonunum á 4 undir pari, 69 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Volvik RACV Ladies Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2014 | 09:00
Evróputúrinn: Joburg Open mót vikunnar – Molinari og Forsyth í forystu snemma dags

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Joburg Open, sem fram fer í Royal Johannesburg & Kennsington golfklúbbnum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Þeir sem tekið hafa forystuna snemma dags eru ítalski kylfingurinn Edoardo Molinari og Skotinn og „nýliðinn“ á Evrópumótaröðinni Alastair Forsyth. Golf 1 hefir kynnt Forsyth og má lesa kynninguna á „nýja stráknum“ (Alastair Forsyth) með því að SMELLA HÉR: og eins hefir Forsyth þegar vakið athygli á sér með því að rita grein, þar sem hann sagði bilið milli efstu 60 á Evróputúrnum og afgangsins allaf vera að breikka og þeir „nýliðarnir“ hefðu mun færri tækifæri á að spila í mótum. Sjá með því að SMELLA HÉR: Margir hafa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2014 | 20:00
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Isabelle Boineau (15/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 15. sætinu (voru jafnar í 15.-18. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 undir pari, 359 högg: Anais Magetti; Marina Salinas; Isabelle Boineau og Cathryn Bristow. Sú sem Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

