Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jósefína Benediktsdóttir – 4. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Jósefína Benediktsdóttir.  Jósefína fæddist 4. febrúar 1958 og á því 56 ára stórafmæli í dag. Jósefína er í Golfklúbbi Siglufjarðar (GKS) og varð m.a. ásamt eiginmanni sínum Þorsteini Jóhannssyni, klúbbmeistari GKS 2011.

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið:

Jósefína Benediktsdóttir (56 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag: Helmut Stolzenwald  (f. 4. febrúar 1901 – d. 5. febrúar 1958) Hann var einn af frumkvöðlum að stofnun GHR árið 1952 og forystumaður í klúbbnum fyrstu árin. Helmút fæddist í Þýskalandi en fluttist til Íslands 1924 og settist þá að í Vestmannaeyjum. Sonur hans er Rúdolf Stolzenwald); John Byron Nelson Jr., f. 6. febrúar 1912 – d. 26. september 2006;  Heather Stirling, 4. febrúar 1977 (37 ára); Alex Haindl, f. 4. febrúar 1983 (31 árs) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is