Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 11:00
Heimsmótið í holukeppni 2014: Hápunktar 4. umferðar – Myndskeið

Leikir í 4. umferð þ.e. 8 manna úrslitum heimsmótsins í holukeppni voru misjafnir. Þannig höfðu Ernie Els og Jason Day tiltölulega lítið fyrir sigrum sínum, meðan Victor Dubuisson og Rickie Fowler urðu að berjast fyrir sínum sigrum. Dubuisson lék við engan annan en GMac og Fowler tókst á hendur landa sinn Furyk, en báðar viðureignir fóru svo að sigur vannst með minnsta mun. Ernie Els átti stærsta sigurinn vann Jordan Spieth 4&2 og Jason Day fór líka fremur létt með Louis Oosthuizen 2&1. Spieth átti einkum í vandræðum með skapið á sér og sagði að andlega séð hefði hann verið dvergur, eða 13 ára útgáfan af sjálfum sér á vellinum, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 10:00
LPGA: Anna Nordqvist sigraði í Thaílandi

Sænski kylfingurinn Anna Nordqvist, sigraði á Pattaya Old Course, í Siam Country Club, í Chonburi Thailandi, á Honda LPGA Thailand mótinu. Hún var með 4 högga forystu á næstu keppninauta sína þær Michelle Wie og Inbee Park, og eflaust óþægilegt að vera með þær á hælunum. Nordqvist hélt þó haus og vann með 2 högga mun á þá sem varð í 2. sæti nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park. Nordqvist lék samtals á 15 undir pari, 273 (66 72 67 68) meðan Inbee var á samtals 13 undir pari, 275 höggum (71 71 67 66). Í 3. sæti varð skoska golfdrottningin Catriona Matthews á samtals 11 undir pari og í 4. sæti varð Michelle Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 09:45
Bandaríska háskólagolfið: Axel og Haraldur báðir á 78 á 2. hring í Texas

Axel Bóasson, GK og Mississippi State, er búinn að spila á samtals 6 yfir pari, 150 höggum (72 78) 2. dag á Bayou City Collegiate meistaramótinu í Houston golfklúbbnum, í Humble, Texas. Mótið stendur dagana 21.-23. febrúar 2014 og þátttakendur eru 87 frá 15 háskólum. Lokahringurinn verður leikinn í dag. Axel er í 61. sæti, (fór niður um 38 sæti frá deginum áður) sem hann deilir með 7 öðrum keppendum. Axel er á 4. besta skori Mississippi State, sem er í 7. sæti í liðakeppninni og telur skor hans því. Haraldur Franklín Magnús, GR og Louisiana Lafayette, er 1 höggi á eftir búinn að spila á samtals 7 yfir pari, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 09:30
Heimsmótið í holukeppni 2014: Els kominn í undanúrslit

Ernie Els komst áfram í undansúrslit heimsmótsins í holukeppni fremur auðveldlega, í leik þar sem andstæðingur hans, hinn tvítugi Jordan Spieth komst aldrei á flug og var ekki svipur hjá sjón miðað við það sem hann hafði áður sýnt í mótinu. Fyrrum nr. 1 á heimslistanum (Ernie Els) er 44 ára og gæti því verið pabbi Spieth. Hann keppist nú við að verða elsti heimsbikarshafinn í holukeppni. Els komst í forystu þegar á 2. holu, gaf aldrei eftir forystu sína og komst í fjórðungsúrslit í fyrsta skipti í 13 ár. „Ég spilaði tiltölulega stöðugt golf,“ sagði Els, sem vann fyrri af tveimur Opnu bandaríska risamótstitilum sínum árið 1994, þegar Spieth Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 02:00
Heimsmótið í holukeppni 2014: Day mætir Fowler og Els, Dubuisson í 4 manna úrslitum

Nú er lokið 4. umferð á heimsmótinu í holukeppni þ.e. 8 manna úrslitunum. Það liggur ljóst fyrir að Ástralinn Jason Day mun mæta Rickie Fowler frá Bandaríkjunum og Ernie Els mætir Victor Dubuisson. Hér eru úrslitin í heild eftir 4. umferð á heimsmótinu í holukeppni: (Sigurvegarar feitletraðir) Bobby Jones riðill: Jason Day – Louis Oosthuizen – 2&1 Gary Player riðill: Ernie Els – Jordan Spieth 4&2 Ben Hogan riðill: Rickie Fowler –Jim Furyk 1&0 Sam Snead riðill: Victor Dubuisson – Graeme McDowell 1&0 Til þess að sjá úrslitin myndrænt SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2014 | 20:00
Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Spurning: Af hverju heitir golf, golf? Svar: Vegna þess að öll hin 4 stafa orðin voru upptekin. Nr. 2 Kylfingurinn kallaði á einn kaddýinn og sagði: „Ég þarf á kaddý að halda sem getur talið og haldið utan um skorið mitt. Hvað er 3 plús 4 plús 5? „11 herra“ svaraði kaddýinn. „Allt í lagi, þú ert fullkominn í starfið.“ Nr. 3 Hér er einn sem segja verður á ensku: „One day the golf pro at the club was playing golf with three members and on the first tee the first member hits a big hook into the woods on the left and turns and asks the Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2014 | 14:00
Hver er kylfingurinn: Victor Dubuisson?

Victor Dubuisson var ekki stórt hlutabréf í golfheiminum fyrir sigur sinn í Turkish Airlines Open, þann, 10. nóvember 2013. Sigurinn var fyrsti sigur hans á Evrópumótaröðinni. Í ársbyrjun 2013 var hann nr. 139 á heimslistanum, en nú er hann nr. 30 og búinn að ávinna sér sæti á The Masters risamótinu, sem hann hefir aldrei áður spilað í. Gleðin var því mikil hjá Dubuisson eftir sigurinn á Turkish Airlines, enda þó ekki sé nema fyrir þær sakir að hann fær að spila Augusta National, sem er draumur flestra kylfinga. En ekki nóg með það. Dubuisson varð líka um € 850.000,- ríkari (þ.e. u.þ.b. 140 milljónum íslenskra króna ríkari!!!) Nú er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2014 | 13:45
Cheyenne Woods með í Symetra móti

Cheyenne Woods, sem sigraði nú fyrir skemmstu á fyrsta móti sínu á Evrópumótaröð kvenna og ALPG þ.e. áströlsku kvenmótaröðinni, (en báðar mótaraðir stóðu að mótinu) tekur þátt í opnunarmóti Symetra mótaraðarinnar, í Mesa, Arizona, en Symetra mótaröðin er einskonar 2. deild eða stökkbretti á LPGA mótaröðina. Cheyenne spilar þar í boði styrktaraðila, m.a. vegna þess hversu mikla athygli sigur hennar í Ástralíu vakti í Bandaríkjunum. Með henni í ráshóp í gær voru Louise Friberg og Jaclyn Sweeney. Cheyenne spilaði fyrsta hringinn á 3 yfir pari, 75 höggum og er í 81. sæti en 119 keppendur eru í mótinu. Það eru hvorki fleiri né færri en 6 kylfingar sem deila 1. sætinu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2014 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Vijay Singh ——– 22. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Vijay Singh. Hann var mikið í fréttum á síðasta ári vegna notkunar á hjartarhornsspreyi, sem inniheldur ólögleg efni, sem eru á bannlista PGA. Vijay Sing fæddist 22. febrúar 1963 á Lautoka á Fídji og á því 51 árs afmæli í dag!!!! Hann ólst upp í Nadi. Í dag býr hann á Ponte Vedra Beach í Flórída. Um barnæsku sína sagði Vijay eitt sinn við blaðamenn: “Þegar ég var krakki höfðum við ekki efni á golfboltum og við urðum að spila með kókoshnetum. Faðir minn sagði: “Vijay litli, golfkúlur detta ekki úr trjánum, þannig að við fundum okkur “kúlur” sem duttu úr trjánum!” Þegar Vijay var unglingur spilaði hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 22. 2014 | 10:45
GSG: Kirkjubólsvöllur opinn

Á heimasíðu Golfklúbbs Sandgerðis er eftirfarandi fréttatilkynning: „Kirkjubólsvöllur verður opinn um helgina og ástand hans er bara nokkuð gott miðað við árstíma. Við erum byrjuð að bera á sumar brautir og sílamáfurinn er að skila sér heim. Vorið er því að koma hér Suður með sjó og ekki seinna vænna að koma sér í gott golfform fyrir sumarið. Á meðfylgjandi mynd sjáum við hvernig ástandið var fyrir hálfum mánuði og ekki hefur það versnað. Vallargjald aðeins kr. 2.000 og kr. 3.000 fyrir hjón. Opið inn á sumargrín allt árið.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

