Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2014 | 08:00

Sigurpoki Jason Day

Ástralinn Jason Day vann fyrsta heimsbikarstitil sinn í gærkvöldi þegar hann lagði Frakkann Victor Dubuisson á 23. holu í  WGC-Accenture Match Play Championship. Hér fer listinn yfir þær kylfur sem  Day notaði í The Golf Club at Dove Mountain í Marana, Arizona, þ.e. þetta var í sigurpoka hans: • • • DRÆVER: TaylorMade SLDR (10.5° with a Matrix Ozik TP7HD skafti) BRAUTARTRÉ: TaylorMade RocketBallz (17.5° með Matrix Ozik TP7HD skafti) JÁRN: TaylorMade Tour Preferred MC (2-járn, 2011 edition); Tour Preferred MC (3-PW) með True Temper Project X Rifle 6.5 sköftum) FLEYGJÁRN: TaylorMade ATV (52° og 60° með True Temper Project X Rifle 6.5 sköftum) PÚTTER: TaylorMade Ghost Monte Carlo prototype Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín átti glæsilokahring í Texas upp á 69 högg!

Haraldur Franklín Magnús, GR og Louisiana Lafayette, átti glæsilokahring upp á 3 undir pari, 69 högg á  Bayou City Collegiate meistaramótinu í Houston golfklúbbnum, í Humble,  Texas. Mótið stóð dagana 21.-23. febrúar 2014 og voru þátttakendur eru 87 frá 15 háskólum. Haraldur Franklín lék samtals á 4 yfir pari 220 höggum  (73 78 69) og hafnaði í 46. sæti ásamt 8 öðrum keppendum (og fór upp um 23 sæti eftir lokahringinn).  Haraldur var á 1.-3. besta skori í liði sínu, Louisiana Lafayette, en í liðakeppninni varð Louisina í 13. sæti Axel Bóasson, GK og Mississippi State, lék á samtals 12 yfir pari, 228 höggum  (72 78 78) og hafnaði í 75. sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2014 | 02:30

Heimsmótið í holukeppni 2014: Jason Day sigraði! – Hápunktar úrslitaleiksins

Það var Ástralinn Jason Day sem sigraði Frakkann Victor Dubuisson í úrslitaleiknum um heimsbikarinn í holukeppni. Dubuisson gaf sig ekki auðveldlega,  en Day sigraði með minnsta mun 1&0 og fóru leikar á 23. holu. Þau voru reyndar alveg ótrúleg höggin sem Dubuisson átti og hann virtist alltaf bjarga sig. T.a.m. þegar bolti hans lenti við rætur kaktusar og hann tók fulla sveiflu gegnum hárbeittar kaktusnálarnar og sjónvarpskapal sem fyrir var og hitti inn á flöt u.þ.b. 1 meter frá pinna og bjargaði pari. Á næstu holu sló Dubuisson annað ótrúlega höggið gegnum eyðimerkurrunna og steina og inn á flöt og bjargaði pari. Day hafði sigur á 23. holu þegar hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 18:45

Heimsmótið í holukeppni 2014: Dubuisson vann Els 1&0

Victor Dubuisson er aðeins 1 leik frá því að verða 1. franski kylfingurinn til þess að sigra í heimsmótinu í holukeppni, en hann lagði Ernie Els nú í þessu á Accenture Match Play Championship. Els átti 3 holur á Dubuisson eftir 4 leiknar holur og það leit ekki vel út fyrir Frakkann, sem er 21 ári yngri en Els. En einmitt þegar leit út fyrir að þetta gæti ekki versnað átti Els slæmt chip á 8. holu og Dubuisson minnkaði bilið í 2 holur og síðan í 1 holu á 9. holu. Síðan fór Dubuisson á flug á 11. og 12. holu sem hann vann, en Els var búinn að jafna á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 18:30

Heimsmótið í holukeppni 2014: Day vann Fowler 3&2 – Myndskeið

Jason Day er komin í úrslitin á heimsmótinu í holukeppi á Dove Mountain í Marana. Hann vann Rickie Fowler 3&2. Til að sjá kynningu Golf 1 á Jason Day SMELLIÐ HÉR:  Hér má sjá hápunktana í leik hans og Fowler með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Sverrisdóttir – 23. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Guðrún Sverrisdóttir. Guðrún er fædd 23. febrúar 1955 og er því 59 ára í dag.  Guðrún er í Golfklúbbi Borgarness. Komast má á facebook síðu Guðrúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan Guðrún Sverrisdóttir (59 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hlöðver Sigurgeir Guðnason, GKG 23. febrúar 1957 (56 ára) – hann fór m.a. holu í höggi á æfingahring á Víkurvelli hjá GMS í sveitakeppni 2. deildar eldri karla í ágúst 2012); Gylfi Sigfússon, GR og GV, 23. febrúar 1961 (53 ára); Steve Stricker, 23. febrúar 1967 (47 ára); Michael Campell, 23. febrúar 1966 (48 ára Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Anaïs Magetti (17/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 15. sætinu (voru jafnar í 15.-18. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 undir pari, 359 högg: Anaïs Magetti; Maria Salinas; Isabelle Boineau og Cathryn Bristow, en þar af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 12:15

Heimsmótið í holukeppni 2014: Flott högg GMac á par-3 3. holunni – Myndskeið

Það var Frakkinn Victor Dubuisson, sem sigraði Graeme McDowell (GMac) í 8 manna úrslitum á heimsmótinu í holukeppni í gær, með minnsta mun. Fram að því var GMac búinn að ganga vel á heppni hinna írsku, náði oft með undraverðum hætti töframannsins að halda sér inni í keppninni, en mætti ofjarli sínum í Dubuisson.. GMac átti þó ýmis frábær högg eins og oft gerist á golfhring, jafnvel þó uppskeran sé ekki sigur. Hér má sjá glæsihögg GMac á par-3 3. holunni, en þar setur hann aðhögg sitt um 1 metra frá holu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 12:00

NASCAR kempur sem elska golf – Myndasería

Kevin Harvick, Elliott Sadler, Darrell Waltrip,  Ricky Stenhouse Jr. og Jimmie Johnson eru ekki þekktustu nöfnin í golfinu. Þeir eru miklu stærri hlutabréf í annarri íþróttagrein: NASCAR kappökstrum. NASCAR er stytting á The National Association for Stock Car Auto Racing. Þetta er fjölskyldurekið fyrirtæki sem stendur fyrir kappökstrum og var stofnað af Bill France eldri árið 1947, með höfuðstöðvar á Daytona Beach í Flórída. NASCAR kappar elska að fara hratt og því ættu þeir að vera velkomnir á hvaða golfvelli sem er …. til þess að halda uppi hraða. Og ofangreindir kappar að spila golf. Golf Channel hefir tekið saman myndaseríu yfir 10 þekktustu NASCAR kylfinganna. Til þess að sjá myndaseríu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 11:10

Heimsmótið í holukeppni 2014: Golfsvipmynd 3.umferðar

Golfsvipmynd 3. umferðar á heimsmótinu í holukeppni,  þ.e. föstudagsins 21. febrúar 2014 er sú sem tekin var á lokaflöt Dove Mountain, þegar þeir Ernie Els og Jason Dufner tókust í hendur eftir að Els hafði borið sigurorð af Dufner með minnsta mun 1&0. Eitthvað virðist tapið hafa farið í taugarnar á Dufner en hárið á honum stendur beint upp í loftið eins og á ketti.  Ósigurinn fékk hárin til að rísa á Dufner! Sjá má stöðuna á heimsmótinu í  holukeppni með því að SMELLA HÉR: