Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jón Andri Finnsson – 11. mars 2014

Það er Jón Andri Finnsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Jón Andri er fæddur 11. mars 1973 og á því 41 árs afmæli í dag!!! Jón Andri er í Golfklúbbi Reykjavíkur, er þar einn félaga í Elítunn,  lokaðs hóps lágforgjafarkylfinga.  Jón Andri er í sambúð með Ragnhildi Sigurðardóttur, og á eina dóttur. Komast má á facebooksíðu Jóns Andra til þess að óska honum til hamingu með merkisafmæli hér að neðan: Jón Andri Finnsson 11. mars 1973 (41 árs afmæli!!! – Til hamingju!!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Andrew Sherborne, 11. mars 1961 (52 ára);  Brett Liddle, 11. mars 1970 (43 ára); Roger Tambellini, 11. mars 1975 (38 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 17:00

GSÍ: Héraðsdómaranámskeið 24. mars-3. apríl

Dómaranefnd GSÍ hefur lokið við að skipuleggja kennslu í golfreglum fyrir komandi golftímabil. Héraðsdómaranámskeið hefst nú í mars og er fyrirkomulag þannig að haldnir verða fjórir fyrirlestrar þar sem farið verður í gegnum ákveðnar reglur í hverjum fyrirlestri. Þegar fyrirlestraröðinni er lokið verður haldið próf. Tveir prófdagar eru í boði og geta þátttakendur valið hvorn daginn þeir þreyta prófið. Fyrirlestrarnir verða haldnir í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal: Mánudaginn 24. mars kl. 19:00 – 22:00 (1. fyrirlestur) Miðvikudaginn 26. mars kl. 19:00 – 22:00 (2. fyrirlestur) Þriðjudaginn 1. apríl kl. 19:00 – 22:00 (3. fyrirlestur) Fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 – 22:00 (4. fyrirlestur) Prófin verða haldin sem hér segir: Þriðjudaginn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 16:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst tekur þátt í General Hackler mótinu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU taka þátt í General Hackler mótinu, sem fram fer 10.-11. mars 2014 á TPC of Myrtle Beach í Murrels Inlet í Suður-Karólínu. Í mótinu taka þátt 68 keppendur frá 12 háskólum. Eftir fyrri mótsdag deilir Guðmundur Ágúst 44. sætinu í einstaklingskeppninni á 13 yfir pari (79 78). Hann er á 5. og lakasta skori liðs síns og því telur það ekki í liðakeppninni en ETSU liðið er í 3. sætinu í liðakeppninni. Guðmundur Ágúst hefir á þessari stundu þegar spilað 11 holur af lokahring sínum í mótinu og má fylgjast með gengi hans með því að SMELLA HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 13:30

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín og „The Raging Cajuns“ í 3. sæti á Louisiana Classic e. fyrri dag

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“, golflið Louisiana Lafayette, hófu leik i gær á 29. árlega móti Louisiana Classic. Mótið fer fram í Oakborne Country Club í Lafayette, Louisiana og eru þátttakendur  72 frá 12 háskólum. Mótið stendur dagana 10.-11. mars 2014 og verður lokahringurinn því leikinn í kvöld. Haraldur Franklín er búinn að leika á samtals 2 yfir pari (70 76) og er T-29i í einstaklingskeppninni. Í liðakeppninni er Haraldur Franklín á 4. besta skori liðsins og telur það því í  3. sætis árangri The Raging Cajuns! Góður árangur það hjá Haraldi Franklín!!! … sérstaklega á fyrri hring hans í gær  og lokahringurinn er þegar hafinn …. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 04:45

Tiger vitni í einkamáli

Það á ekki af aumingja Tiger Woods að ganga. Ekki nóg með að hann sé að drepast í bakinu, nákvæmlega daginn fyrir að WGC Cadillac Championship var hann stefndur til þess að mæta sem vitni fyrir rétt mánudaginn 17. mars n.k. þ.e. í  Miami-Dade Circuit Court. Um er að ræða einkamál gegn fyrirtæki Tiger, ETW,  og var málið höfðað 2001 vegna samningsbrota. Í Miami Herald stendur þannig eftirfarandi: „Bruce Matthews, íbúi í Suður-Miami og fyrirtæki hans (Gotta Have It Golf Inc.) halda því fram að Woods hafi brotið samning sem gerði ráð fyrir að hann sæji fyrirtæki Matthews fyrir tilteknum fjölda eiginhandaáritanna og ljósmynda.“ „Umbjóðandi okkar er mjög pirraður að ETW Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 21:00

Tiger með Vonn á snekkjunni Privacy eftir slæma gengið á WGC Cadillac Championship

Tiger Woods fór um borð í snekkju sína Privacy með kærustu sinni Lindsey Vonn eftir slæmt gengi hans á WGC Cadillac Championship, á sunnudagskvöldið, á Miami Beach. Vonn hefir oft áður komið um borð í snekkjuna, en þangað hefir Tiger oft leitað afslöppunar og friðar eftir ýmislegt sem á hefir gengið í lífinu. Snekkjan kostaði $ 57 milljónir og var  brúðkaupsgjöf hans til fyrrum eiginkonu sinnar, Elínar Nordegren.  Tiger hélt henni (snekkjunni) þó í skilnaðinum. Lindsey var alla helgina á hliðarlínunni ásamt dóttur Tiger, Sam og horfðu þær á Tiger sem gekk alls ekki sem best en vel fór á með þeim Sam og Lindsey. Tiger lauk WGC Cadillac á einu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 20:30

Afmæliskylfingur dagsins: Taylor Leon ——- 10. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Taylor Leon. Taylor fæddist 10. mars 1987 og á þvi 27 ára afmæli í dag! Taylor var 2 ár í University of Georgia áður en hún gerðist atvinnumaður í golfi 2007, en meðaltalsskor hennar var þá 6. lægsta skor kvenkylfinga í Bandaríkjunum (áhugamanna 72,48). Hún á að baki 2 sigra á LPGA Futures Tour, báða 2007 í CIGNA Golf Classic og Betty Puskar Golf Classic. Besta skorið hennar eru 65 högg. Taylor giftist 11. febrúar 2012, kærasta sínum, Brandon Coutu, sem leikur með Buffalo Bills í bandaríska fótboltanum. Giftingin hafði það m.a. í för með sér að vinkona Taylor, Paula Creamer tók ekki þátt í ISPS Handa Women´s Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 20:15

Bandaríska háskólagolfið: Svart mót hjá Ólafíu Þórunni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest tóku þátt í Darius Rucker háskólamótinu. Mótið stóð dagana 7.-9. mars 2014 og lauk í gær.   Þátttakendur voru 90 frá 17 háskólum. Leikið var á golfvelli Long Cove golfklúbbsins á Hilton Head Island í Suður-Karólínu. Ólafía Þórunn lék á samtals 242 höggum (85 79 78) og varð í 84. sæti í einstaklingskeppninni og á lakasta skori „Deacs“ skólaliðs Wake Forest og tald iþað ekki í 6. sætis árangur liðsins. Svart mót  þetta hjá Ólafíu Þórunni, sem hún vill eflaust gleyma sem fyrst! Næsta mót Wake Forest er í Greensboro 28. mars n.k. Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 20:00

McGinley segir að ekki eigi að gagnrýna sjálfstraust Reed

Paul McGinley fyrirliði Evrópu í Ryder bikarnum sagði að ekki ætti að vera gagnrýninn á sjálfstraust  Patrick Reed (sem mörgum finnst jaðra við sjálfsánægju) sem sigraði á WGC Cadillac Championship í gær. Í viðtali eftir sigur sinn sagði hann m.a. að hann yrði harðast allra, hann sæji sig meðal 5 bestu í heimi og þar fram eftir götunum. Sjálfstraust væri nokkuð,  sem gott væri að hafa í golfi, sagði McGinley. Reed liði sem stendur vel með sjálfan sig og leik sinn og það væri bara gott. Svona væru Bandaríkjamenn bara oft, fullir sjálfstrausts. Hér má sjá álti McGinley um Reed tekið á myndband af Sky Sports SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 11:00

Bandaríska háskólagolfið: Stefanía Kristín og Íris Katla hefja leik á Hilton Head Inv.

Klúbbmeistari GA 2013, Stefanía Kristín Valgeirsdóttir og „The Falcons“ golflið Pfeiffer háskóla og Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og „The Royals“ golflið Queens háskóla hefja leik í dag á Hilton Head Invitational í Suður-Karólínu. Enginn linkur finnst á mótið en Golf 1 verður með úrslit í mótinu um leið og þau liggja fyrir.