Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 17:00

GSÍ: Héraðsdómaranámskeið 24. mars-3. apríl

Dómaranefnd GSÍ hefur lokið við að skipuleggja kennslu í golfreglum fyrir komandi golftímabil. Héraðsdómaranámskeið hefst nú í mars og er fyrirkomulag þannig að haldnir verða fjórir fyrirlestrar þar sem farið verður í gegnum ákveðnar reglur í hverjum fyrirlestri. Þegar fyrirlestraröðinni er lokið verður haldið próf. Tveir prófdagar eru í boði og geta þátttakendur valið hvorn daginn þeir þreyta prófið.

Fyrirlestrarnir verða haldnir í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal:

Mánudaginn 24. mars kl. 19:00 – 22:00 (1. fyrirlestur)
Miðvikudaginn 26. mars kl. 19:00 – 22:00 (2. fyrirlestur)
Þriðjudaginn 1. apríl kl. 19:00 – 22:00 (3. fyrirlestur)
Fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 – 22:00 (4. fyrirlestur)

Prófin verða haldin sem hér segir:
Þriðjudaginn 8. apríl kl. 19:00 – 22:00 (5. fyrirlestur og próf)
Laugardaginn 12. apríl kl. 9:30 – 12:00 (5. fyrirlestur og próf)

Á undan prófunum verður stuttur fyrirlestur um störf dómara og almennur fyrirspurnatími, en próftími er 90 mínútur.

Stefnt er að því að senda út alla fyrirlestrana á netinu þannig að þeir verði aðgengilegir fyrir þá sem ekki komast á fyrirlestrana sjálfa.

Þátttökutilkynningar:
Námskeiðið er ókeypis og er opið öllum. Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt eru vinsamlegast beðnir að senda staðfestingu ádomaranefnd@golf.is Eftir þátttökutilkynningu verða sendar leiðbeiningar til þeirra sem tilkynna sig varðandi undirbúning fyrir námskeiðið.