Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 20:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sharmila Nicollet – 12. mars 2014

Það er indverska sjarmadísin Sharmila Nicollet, sem spilar á Evrópumótaröð kvenna, sem er afmæliskylfingur dagisns. Sharmila er fædd 12. mars 1991 og á því 23 ára afmæli í dag. Sjá má kynningu Golf 1 á afmæliskylfingnum með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Wallace William „Wally“ Ulrich, f. 12. mars 1921 – d. 7. apríl 1995; Nubohito Sato, 12. mars 1970 (44 ára); W-7 módelið Minea Blomqvist, 12. mars 1985 (29 ára) og Axel Fannar Elvarsson, GL, 12. mars 1998 (16 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfngnum sem og öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 18:00
GA: Jákvæðar horfur á flötunum á Jaðri

Á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar (gagolf.is) er að finna eftirfarandi frétt: Staðan á flötunum upp á Jaðri er bara nokkuð góð. Stærstur hluti flatanna lítur vel út undir klakanum og mikið af grænu sem kemur undan honum þegar hann er brotinn af. Það eru flatir sem ekki fóru nógu góðar inn í veturinn sem aðeins sér á, en það er allstaðar grænt gras á þeim sem er mjög jákvætt. Það má þó búast við því að einhver svæði verði illa farin en við bindum miklar vonir við að þau svæði verði í algeru lágmarki. Steindór vallarstjóri hefur unnið hörðum höndum að því að vetur að halda flötunum við og virðist sú Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 08:53
Er Patrick Reed næsta stórstjarna á PGA Tour?

Er Patrick Reed næsta stórstjarna PGA Tour? Jafnvel þó hann hafi sigrað 3var sinnum á aðeins 7 mánuðum þ.m.t. á heimsmóti s.l. helgi þ.e. Cadillac Championship, þá finnst mörgum Reed ekkert endilega kandídat í framtíðarstórstjörnu á PGA Tour. Menn líta í því samhengi mun fremur til ungra kylfinga á borð við Rory McIlroy, Jordan Spieth og Jason Day, þ.e. að þeir verði stórstjörnurnar næstu 10 árin. E.t.v. líka menn á borð við Harris English og Russell Henley. En eins og staðan er í dag er Reed núverandi sigurvegari Humana Challenge og halar inn sigrum og FedEx Cup stigum, sem veldur öfund eldri og reyndari kylfinga sem ekki gengur eins vel hjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 07:45
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst átti ekki sitt besta mót á General Hackler

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU tóku þátt í General Hackler mótinu, sem fram fór 10.-11. mars 2014 á TPC of Myrtle Beach í Murrels Inlet í Suður-Karólínu. Í mótinu tóku þátt 68 keppendur frá 12 háskólum. Segja má að þetta hafi ekki verið besta mót Guðmundar Ágústs en hann lék á samtals 17 yfir pari, 233 höggum (79 78 76). Óvenjulegt að sá jafngóðan kylfing og Guðmund Ágúst með svo hátt skor! Guðmundur Ágúst var á 5. og lakasta skori liðs síns og því taldi það ekki í liðakeppninni en ETSU liðið varð í 4. sætinu í liðakeppninni. Næsta mót ETSU er Seahawk Intercollegiate í Wilmington, Norður-Karólínu, en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 07:30
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og Queens í 5. sæti og Stefanía Kristín og Pfeiffer í 17. sæti í S-Karólínu

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA og golflið Pfeiffer tóku þátt í Hilton Head Lakes Invitational mótinu í Suður Karólínu, en mótið fór fram dagana 10.-11. mars og lauk því í gær. Þátttakendur voru 89 frá 18 háskólum. Íris Katla lék hringina tvo á samtals 165 höggum (82 83) og varð í 27. sæti í einstaklingskeppninni. Jafnframt var hún á 3. besta skori liðs síns og átti því hlut í 5. sætis árangri The Royals, golfliðs Queens háskóla. Stefanía Kristín var á samtals 183 höggum (91 92) og varð í 80. sæti í einstaklingskeppninni. Hún var á 3. besta skori Pfeiffer liðsins. Golflið Pfeiffer, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 07:00
Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín lauk keppni í 17. sæti á Louisiana Classic

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“, golflið Louisiana Lafayette, luku leik i gær á 29. árlegu móti Louisiana Classic. Mótið fór fram í Oakborne Country Club í Lafayette, Louisiana og voru þátttakendur 72 frá 12 háskólum. Mótið stóð dagana 10.-11. mars 2014. Haraldur Franklín lék á samtals 2 yfir pari (70 76 72) og lauk keppni í 17. sæti í einstaklingskeppninni. Í liðakeppninni var Haraldur Franklín á 2. besta skori liðsins og taldi það því í 3. sætis árangri The Raging Cajuns! Til þess að sjá lokastöðuna á Louisiana Classic SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 06:45
Adam Scott: „Ég þarfnast meiri æfingar“

Eftir vonbrigðaniðurstöðu þar sem Adam Scott deildi 25. sætinu á WGC Cadillac Championship þá finnst Adam Scott að hann þarfnist meiri æfingar ef hann á að verja Masters titil sinn. Scott mistókst að vera undir pari í öllum 4 hringjum sínum í mótinu. Margir af heimsins bestu átti í erfiðleikum með nýja Bláa Skrímslið og aðeins 3 kylfingum tókst að vera undir pari í allri keppninni. „Ég ætla ekkert að spá meira í þessari viku að öðru leyti en því að ég þarfnast meiri æfingar,“ sagði Scott sem var 9 höggum á eftir sigurvegaranum Patrick Reed. „Ég ætla að vinna í þessu venjulega, að gera leik minn skarpari, eins og alltaf,“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 21:30
Opna breska aftur á St. Andrews 2015!

Opna breska risamótið snýr aftur í vöggu golfsins þegar 144. Opna breska fer fram á St. Andrews 16.-19. júlí 2015. Þetta er í 29. sinn sem þetta elsta mót allra risamóti fer fram á Old Course. Louis Oosthuizen er sá síðast sem sigraði Opna breska á St. Andrews, var með 7 högga mun á næsta mann á 16 undir pari, 272 höggum þegar Opna breska fór síðast fram á St. Andrews, 2010. Framkvæmdastjóri R&A Peter Dawson sagði: „Við erum ánægð að tilkynna að Opna breska snýr aftur á hinn sögulega Old Course á St. Andrews, 2015.“ „St. Andrews hefir sanna aftur og aftur að völlurinn er fullkomlega fær um að halda Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 21:00
Steve Williams: „Við Tiger eigum enn eftir að grafa stríðsöxina!“

Í ástralska golfþættinu „Australia’s Fox Sports’ Golf Show“ nú í þessari viku var Steve Williams fyrrum kylfusveinn Tiger Woods, gestur og sagði hann, að hann og nr. 1 á heimslistanum (Tiger) væru enn ekkert sérstakir vinir í dag. „Við höfum ekkert leyst úr neinu milli okkar,“ sagði Willams. „Það hefir verið mikið af ….. hinu, þessu og einhverju öðru….. en stríðsöxin milli okkar hefir ekkert verið grafin.“ Tiger hefir verið í ráshóp með fyrrum kylfusveini sínum, eða réttara sagt vinnuveitanda hans Adam Scott nokkrum sinnum frá því hann rak Williams 2011, nú síðast á WGC Cadillac Championship.“ „Þetta eru bara persónulegir hlutir og skiptar skoðanir um hvernig hlutir fóru fram …. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 11. 2014 | 20:30
Ingunn í sama háskóla og Obama

Á heimasíðu GKG er að finna eftirfarandi gleðifrétt (höfundur Úlfar Jónsson): Ingunn fer í sama háskóla og Obama forseti Ingunn Gunnarsdóttir, afrekskylfingur úr GKG, og meðlimur í afrekshópi GSÍ, fékk inngöngu nú nýlega inn í Columbia háskólann, sem er á Manhattan eyju í New York. Columbia háskólinn er einn af elstu og virtustu skólum Bandaríkjanna. Margir öflugir einstaklingar hafa stundað nám við þennan skóla, þ.á.m. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Ingunn er að ljúka BA námi í Furman háskólanum, og hefur leikið með golfliði skólans þar undanfarin ár. Hvernig kom það til að þú sóttir um í Columbia skólann? „Ég sótti um þetta nám í mikilli bjartsýni, hélt í raun að það Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

