Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 22:45

LET: Hudson og Walker efstar e. 1. dag Lalla Meryem Cup

Samhliða Trophée Hassan II mótinu hjá körlunum fer fram Lalla Meryem mótið hjá konunum á Evrópumótaröðinni í Marokkó. Það eru tvær sem eru í forystu eftir 1. dag: Sophie Walker og Rebecca Hudson, en báðar eru frá Englandi.  Þær léku báðar á 66 höggum.   Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Lalla Meryem Cup SMELLIÐ HÉR:  


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 22:30

Tiger dæmdur til að borga $ 668.000,-

Kviðdómur dæmdi fyrirtæki  Tiger Woods, ETW, til þess að greiða $668,000 til fyrirtækis vegna samningsbrota kom fram í Miami Herald í gær. Gotta Have It Golf Inc. og eigandi þess fyrirtækis Bruce Matthews, sem býr í Suður-Miami höfðuðu einkamál vegna þess að fyrirtæki Tiger stóð ekki við samning um afhendingu á tilteknum fjölda ljósmynda og eiginhandaáritanna skv. ákvæðum í samningi milli aðila frá 2001.  Miami-Dade County Circuit Court komst að þeirri niðurstöðu að ETW bæri skaðabótaábyrgð vegna ósanngjarnra viðskiptahátta. Eric Isicoff, lögmaður Matthews, sagði í  the Herald  að vextir myndu auka bæturnar sem skjólstæðingur hans fengi í u.þ.b. $1.3 milljónir; Matthews fer jafnfram fram á meira en $1 millijón (u.þ.b. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 22:15

Jamie Donaldson fær takmarkaðan keppnisrétt á PGA Tour

Jamie Donaldson hefir þegið sérstakan tímabundinn keppnisrétt á PGA Tour í Bandaríkjunum, það sem eftir er keppnistímabilsins. Wales-verjinn (Donaldson) varð í 2. sæti í WGC Cadillac Championship á Doral og hlaut að launum  $763,000. Sú niðurstaða þýðir að Donaldson fær keppnisrétt þar sem hann hefir þegar tekið fram úr þeim lægsta sem komst á túrinn á stigum, frá síðasta keppnistímabili. Donaldson, 39 ára, sem sigrað hefir tvívegis á Evróputúrnum, er sem stendur efstur á peningalista Evrópumótaraðarinnar. Þetta þýðir líka að Donaldson er í góðri stöðu að komast í Ryder Cup liðið, en hann er hógvær „það er langur vegur í Ryder Cup“ sagði hann. „Það er fullt af góðum mótum sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 22:00

Evróputúrinn: Cañizares á 62 og efstur e. 1. dag í Marokkó

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Trophée Hassan II mótið sem fram fer í Golf du Palais Royal, í Agadír, Marokkó dagana 13.-16. mars. Eftir 1. mótsdag leiðir Spánverjinn Alejandro Cañizares en hann lék á 10 undir pari, 62 höggum. Hann fékk 11 fugla og 1 skolla. Englendingurinn Seve Benson er fast á hæla Cañizares á 9 undir pari og þeir Magnus Carlsson og Connor Arendell koma þar á eftir á 7 undir pari, 65 höggum! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Trophée Hassan II SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 21:00

GSG: Hægt að spila golf í Sandgerði … á sumargrínum!

Vorið er komið víst á ný …. eru menn farnir að syngja í Sandgerði! Snjórinn er farinn af Kirkjubólsvelli og völlurinn opinn inn á sumargrín eins og alltaf. Ekkert betra en að drífa sig í helgarbíltúr í Sandgerði og taka einn hring…. enda ótrúlegt hvað völlurinn er alltaf góður! Vallargjald kr. 2.000 og 3.000 fyrir hjón. Vinsamlegast greiðið vallargjaldið í skálanum eða á reikning GSG 0542-26-1563. Kennitala 420289-1549.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 20:00

Ernie Els: „Ég kann ekki við snáka“

Fjórfaldi risamótssigurvegarinn Ernie Els sagði að hann kynni ekki við snáka en hann myndi glaður taka eitrið út The Snake Pit. The Snake Pit er uppnefni síðustu 3 hola á Copperhead velllinum í Innisbrook og mótsstaður Valspar Championship, móti vikunnar á PGA, þar sem verðlaunafé nemur $ 5,8 milljóna Reyndar heita síðustu 3 holurnar í höfuðið á ólíkum en mjög hættulegum snákum – sú 16. nefnist Moccasin; sú 17. Rattler og sú síðasta (18.) Copperhead.  In fact, the three holes are made up of three different and dangerous snakes – 16th is named the Moccasin, the 17th Rattler and the last Copperhead. Els tekur þátt í 5. sinn í mótinu og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Jónasson – 13. mars 2014

Það er Benedikt Jónasson, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Benedikt er fæddur 13. mars 1957 og  því 57 ára í dag. Benedikt er í Golfklúbbi Keilis í Hafnarfirði og má oft sjá hann spila á Hvaleyrinni á sumrin. Hann er kvæntur Ingveldi Ingvarsdóttur. Aðrir frægir kylfingar sem afmæli eiga í dag eru:  Andy Bean, 13. mars 1953 (61 árs); Graeme Storm, 13. mars 1978 (36 ára); Maria Beautell, 13. mars 1981 (33 ára) ….. og …. Ari Magnússon F. 13. mars 1992 (22 árs) Professionails Gelneglur Aldís F. 13. mars 1982 (32 árs) Ríkharð Óskar Guðnason F. 13. mars 1985 (29 ára) Sturla Höskuldsson F. 13. mars 1975 (39  ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 06:30

Poulter hefði ekki átt að taka Matsuyama fyrir á Twitter

„Það er aðeins til einn Ian Poulter,“ segir í Ryder Cup slagorði. En svo virðist sem þeir séu á stundum tveir! Annars vegar er það Poulter, stjarnan, sem laðar að áhorfendur hvar sem hann spilar, er skemmtilegur í viðtölum, er sá sem allir líta upp til vegna þess að saga hans er saga velgengni, á stundum á golfvellinum, en svo sannarlega í viðskiptum þar sem hann hefir komið ár sinni vel fyrir borð t.a.m. með  sölu Poulter golffatnaðar. Og svo er það Poulterinn sem verður sér til skammar.  Föstudagurinn fyrir viku í Flórída er e.t.v. eitt slíkt dæmi þar sem Poulter fór á Twitter og tók pirring sinn þar út Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 05:00

Munaði engu að aftur kæmi til deilna Tiger og Sergio

Það munaði engu að að allt hefði að nýju farið í háa loft milli nr. 1 á heimslistanum, Tiger Woods og nr. 10 á heimslistanum Sergio García á 1. hring WGC Cadillac Championship í Doral í síðustu viku ….. og það fyrir algera slysni.   Tiger, sem var í ráshóp með Adam Scott og Henrik Stenson hélt ranglega að allir í ráshóp Sergio, sem lék á undan þeim, hefðu farið af flöt á stuttu par-4 16. brautinni á Bláa Skrímslinu. Í raun var Sergio enn á flöt að bíða úrskurðar dómara vinstra megin á flöt. Tiger sló dræv sitt, en sem betur fer fyrir þá sem kjósa að allt fari friðsamlega fram Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2014 | 22:00

Steve Williams: „Enginn óttast Tiger lengur!“

Fyrrum kylfusveinn Steve Williams hefir komið fram í fjölmiðlum og sagt að enginn óttist Tiger Woods lengur (ens.: (he) has lost his intimidation factor). Williams bar kylfur nr. 1 í öllum nema 1 af 14 sigrum Tiger í risamótum.  Tiger rak Williams eftir að framhjáhaldssögur um hann komust í hámæli 2011 og hann féll niður á heimslistanum. „Þettta er bara persónuleg atriði og ágreiningsatirði um hvernig hlutirnir voru,“ sagði Williams, sem nú er kylfuberi nr. 2 á heimslistanum. „Hann hugsar sitt og ég mitt.“ sagði Willams „Ég verð að leysa úr þessu með honum.“ „En ég hef ekki haft tækifærið til þess að setjast niður með honum og skýra út Lesa meira