Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Ingibergsson – 23. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Guðmundur Ingibergsson, en hann er fæddur 23. maí 1965 og á því 50 ára stórafmæli. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Guðmundi til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Guðmundur Ingibergsson (50 árs – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: David Graham, 23. maí 1946 (69 ára); Gary Dennis McCord, 23. maí 1948 (67 ára); Marina Arruti, 23. maí 1972 (43 ára) ; Hulda Birna Baldursdóttir, GKG, 23. maí 1973 (42 ára); Jamie Elson, 23. maí 1981 (34 ára) ….. og …… Ellert Unnar Sigtryggsson (45 ára) Lars Søndergaard Olga Gunnarsdottir (47 ára) Árni Páll Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 12:00
Golfsamtök fatlaðra fengu fyrstu úthlutunina úr minningarsjóði Harðar Barðdal

Í gær var úthlutað í fyrsta sinn úr minningarsjóði Harðar Barðdal, frumkvöðuls og afreksíþróttamanns úr röðum fatlaðra. Það eru Golfsamtök fatlaðra, GSFÍ sem taka við SNAG golfbúnaði frá sjóðnum sem er æfingabúnaður sem auðveldar bæði fötluðum sem ófötluðum að tileinka sér golftæknina á sem auðveldastan hátt. Sjóðurinn var stofnaður til þess að heiðra minningu Harðar Barðdal, frumkvöðuls og afreksíþróttamanns úr röðum fatlaðra. Markmiðið er að halda á lofti þeim kyndli er Hörður tendraði með starfi sínu í þágu fatlaðra íþróttamanna almennt og í þágu fatlaðra kylfinga sérstaklega. Var það einlægur ásetningur hans að hvetja fatlaða til golfæfinga og að auka aðgengi og áhuga þeirra á golfíþróttinni. Hugmyndin að stofnun sjóðsins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 10:00
PGA: Na efstur í hálfleik á Colonial

Bandaríski kylfingurinn Kevin Na er efstur eftir 2. keppnisdag á Crowne Plaza mótinu. Hann er samtals búinn að spila á 130 höggum (64 66). Tveimur höggum á eftir er „einn ofmetnasti kylfingur PGA“ Ryder Cup hetja Evrópu Ian Poulter. Síðan er heimamaðurinn Boo Weekley í 3. sæti. Til þess að sjá stöðuna á Crowne Plaza mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 09:00
Eimskipsmótaröðin 2015: Fylgist með á skortöflu hér

Eimskipsmótaröðin hefst á Hólmsvelli í Leiru í dag. Flestir okkar bestu kylfinga taka þátt. Fylgjast má með á skortöflu með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 08:30
Íslandsbankamótaröðin 2015: Sigurlaug Rún efst e. 1. dag í flokki 17-18 ára

Það er stúlka sem er efst yfir alla keppendur eftir 1. keppnisdag á Íslandsbankamótaröðinni, sem hófst í gær. Það er Sigurlaug Rún Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Glæsilegt hjá Sigurlaugu Rún!!! Sigurlaug Rún lék 1. hring á 72 höggum. Í 2. sæti eru 4 keppendur allt piltar: Hlynur Bergsson og Hákon Örn Magnússon úr GR; klúbbfélagi Sigurlaugar Rún úr Golfklúbbnum Keili, Vikar Jónasson, sem búinn er að standa sig frábærlega undanfarið á opnum mótum og Björn Óskar Guðjónsson úr GM. Allir léku þeir á 74 höggum. Sjá má stöðuna í flokki 17-18 ára með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 07:00
LET Access: Ólafía á +2 og Valdís á +6 e. 1. dag í Svíþjóð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék á 74 höggum eða +2 á fyrsta keppnisdeginum af alls þremur á LET Access móti sem fram fer í Svíþjóð. Íslandsmeistarinn í golfi 2014 er í 19. sæti. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni lék á 78 höggum eða +6 í dag og er hún í 64.– 73. sæti. Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: Mótið fer fram á Haverdals vellinum í Halmstad í Svíþjóð. Tveir kylfingar deila efsta sætinu á -2 eftir fyrsta hringinn. Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni í Evrópu – sem er næst sterkasta atvinnugolfmótaröð kvenna á eftir sjálfri LET Evrópumótaröðinni. Ólafía endaði í 5. sæti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Gwladys Nocera – 22. maí 2015

Það er franski kylfingurinn Gwladys Nocera sem er afmæliskylfingur Golf 1 í dag. Gwladys er fædd 22. maí 1975 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Hún varð í 2. sæti á síðasta móti LET í Tyrklandi nú um daginn og er oftar en ekki ofarlega á LET mótum. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Horton Smith, f. 22. maí 1908- d. 15. október 1963); Geir Gunnarsson, 22. maí 1952 (63 ára); Hildur Gylfadóttir, GK (48 ára); Sveinberg Gíslason, GK 22. maí 1970 (45 ára); Elías Björgvin Sigurðsson, 22. maí 1997 (18 ára) og Hafdís Huld Þrastardóttir og Sonja Þorsteinsdóttir og Jeff Fletcher. Golf 1 óskar kylfingum sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2015 | 14:00
Donald hættir við sveiflubreytingar

Luke Donald er dottinn niður í 60. sætið á heimslistanum. Honum hefir einfaldlega ekkert gengið vel; hvorki á PGA né Evróputúrnum. En nú eru breytingar á dagskrá. Donald tekur nú þátt í BMW PGA Championship í Wentworth. Aðspurður hvort hann ætlaði bara ekki að fara að fordæmi landa síns Paul Casey og hætta algerlega að spila á Evróputúrnum (til að geta einbeitt sér að PGA) sagði Donald: „Þar sem ég hef runnið niður heimslistann verð ég af allri alvöru að hugsa um eitthvað slíkt á næsta ári, ef hann (leikur minn) á að verða eitthvað betri.)“ Donald sagðist hafa séð til Justin Rose þegar Rose sigraði á Opna bandaríska og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2015 | 12:00
Íslandsbankamótaröðin 2015: Keppni á 1. móti ársins hófst í morgun á Akranesi

Fyrsta höggið á Íslandsbankamótaröð unglinga á þessu keppnistímabili var slegið kl. 9.00 í morgun á Garðavelli á Akranesi. Rúmlega 100 kylfingar keppa á mótinu en þrír aldursflokkar eru hjá báðum kynjum. Veðrið er ljómandi gott á Akranesi þessa stundina en elstu keppendurnir í flokknum 17-18 ára leika 54 holur á þremur dögum. Á laugardag og sunnudag bætast 15-16 ára flokkurinn við keppendahópinn og 14 ára og yngri hefja einnig leik á morgun. Sjá má nokkrar myndir ljósmyndara GSÍ með því að SMELLA HÉR: Alls verða mótin sex líkt og undanfarin ár. Íslandsmótið í holukeppni fer fram á Strandarvelli á Hellu og sjálft Íslandsmótið í golfi í þessum aldursflokki fer fram Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2015 | 11:15
8 ára gutti fær lof hjá Rory

Sean Reddy, 8 ára írskur gutti, var ásamt pabba sínum í „strákahelgarferð“ í London, þar sem meiningin var að fara á tónleika. Þeir komu líka við í Niketown, gríðarstórri íþróttavöruverslun Nike í miðborg London og þar æfði Sean litli sveifluna sína í golfhermi, sem þar var. Hann hafði ekki hugmynd um að þeir hjá Nike voru að fylgjast með honum og hrifnir af 140 yarda drævum hans. Þeir töluðu við pabba Sean og fengu hann til þess að framlengja helgina fram á mánudaginn s.l. en þá var Rory staddur í London og Sean fékk að hitta hetju sína. Rory var mjög hrifinn af sveiflu Sean, ja reyndar svo hrifinn að Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

