Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2015 | 01:00

Evróputúrinn: An sigraði á Wentworth

Byeong-Hun An frá Suður-Kóreu landaði fyrsta titli sínum á Evrópumótaröðrinn og það á engu litlu móti heldur sjálfu flaggskipsmóti Evrópumótaraðarinnar, sjálfu BMW PGA Championship. Til þess að sjá lokastöðuna í BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:  An stóð alveg undir þeim miklu væntingum sem gerðar hafa verið til hans; hann lauk mótinu glæsilega með hring upp á 65 og lauk keppni með því að bæta fyrra mótsmet um 2 högg; átti 6 högg á þá sem næstir komu þ.e. gömlu brýnin  Miguel Angel Jiménez and Thongchai Jaidee. Enski kylfingurinn Chris Wood var enn 2 öðrum höggum á eftir, lauk keppni á glæsihring upp á 66 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2015 | 18:30

LET Access: Ólafía Þórunn lauk keppni í T-22 í Svíþjóð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, lauk leik T-22 á PGA Halmstad Ladies Open at Haverdal, sem fram fór í Haverdals GK í Svíþjóð. Mótið stóð dagana 22.-24. maí 2015. Ólafía lék á samtals 8 yfir pari, 224 höggum (74 72 78) og deildi eins og segir 22. sætinu með 4 öðrum kylfingum. Það var þýski kylfingurinn Isi Gabsa sem sigraði í mótinu. Næsta mót á LET Access verður 28.-31. maí í Drobak í Noregi. Til þess að sjá lokastöðuna á PGA Halmstad Ladies Open at Haverdal SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2015 | 18:00

Eimskipsmótaröðin 2015: Andri Þór sigraði á 1. mótinu!

Andri Þór Björnsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði á Egils Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Andri sigraði með tveggja högga mun en Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð annar og Aron Snær Júlíusson úr GKG varð þriðji. Andri lék samtals á -1 á 54 holum en hann fékk fimm fugla á lokahringnum sem hann lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallar. Andri lék hringina þrjá á 75-71-69. Þetta er annar sigur hans á Eimskipsmótaröðinn en það eru nokkuð mörg ár síðan Andri fagnaði sínum fyrsta titli á Eimskipsmótaröðinni á Leirdalsvelli. „Völlurinn var eins góður og hægt er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Magnússon – 24. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Pétur Magnússon. Pétur er fæddur 24. maí 1995 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Afrek Péturs eru þrátt fyrir ungan aldur mörg en það sem kemur fyrst í hugann er þegar Pétur var fyrir rúmum 5 árum, nánar tiltekið 2.maí 2010 á æfingahring á Hólmsvelli í Leiru. Hann hafði verið við golfæfingar í Costa Ballena á Spáni mánuðinn þar áður og var að prófa nýja Titleist settið sitt í fyrsta sinn. Pétur sló með 6-járni af 13. teig, löngu par-3 brautinni, sem ekki er sú auðveldasta með vatnið landskunna fyrir framan flötina og bolti hans flaug beint inn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2015 | 09:00

Íslandsbankamótaröðin 2015: Björn Guðjón, Sigurlaug Rún, Kristján Benedikt, Gerður Hrönn, Böðvar Bragi og Kinga efst e. 1. (2.) hring

Hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi fer fram Íslandsbankamótaröðin og eru spilaðir 3 hringir í elsta aldursflokknum en 2 í hinum tveimur flokkunum. Keppendur eru 111. Staðan eftir 2 hringi hjá elsta flokknum og 1 hring hjá þeim yngri er eftirfarandi: Piltar 17-18 ára: 1 Björn Óskar Guðjónsson GM 2 F 39 33 72 0 74 72 146 2 2 Hákon Örn Magnússon GR 5 F 36 36 72 0 74 72 146 2 3 Vikar Jónasson GK 5 F 39 36 75 3 74 75 149 5 4 Tumi Hrafn Kúld GA 4 F 36 40 76 4 77 76 153 9 5 Henning Darri Þórðarson GK 1 F 38 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2015 | 07:00

PGA: Na efstur á 1 högg á Poulter f. lokahring Crowne Plaza – Hápunktar 3. dags

Bandaríski kylfingurinn Kevin Na er efstur eftir 3. hring Crowne Plaza Invitational. Hann á 1 högg á Ian Poulter, frá Englandi. Na er búinn að spila á samtals 11 undir pari, 199 höggum  en Poulter á samtals 10 undir pari, 200 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. hring Crowne Plaza Invitational SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Crowne Plaza Invitational SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2015 | 00:01

Evróputúrinn: An og Molinari leiða fyrir lokahringinn á Wentworth

Það eru Francesco Molinari og Byeong Hun An sem leiða eftir 3. hring BMW PGA Championship. Þeir eru búnir að spila á 14 undir pari, 202 höggum. Í 3. sæti er Thaílendingurinn Thongchai Jadiee á samtals 12 undir pari. Það stefnir í spennandi úrslitakeppni á morgun. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. dags á BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 23:00

GH: Opnun vallar í dag!

Ákveðið var að opna fyrir umferð um Katlavöll á Húsavík, laugardaginn 23.maí, en það verða vetrarteigar og vetrarflatir (hvítu staurarnir) fyrst um sinn. GH biður fólk að virða merkingar og fara ekki um þar, sem er bleyta. Setja torfusneppla aftur í sárið. 4.braut er stutt, og til að komast uppá 5.teig er farið eftir stígnum ekki fara inn í laut. Færa skal útaf flötum, alls ekki slá þar eða pútta. Æfingasvæðið er opið, það eru frekar fáar kúlur að verða eftir í kúluvélinni svo að hún gæti tæmst. Umgengnin um æfingasvæðið mætti vera betri, torfusnepplar út um víðan völl!! Einnig er litli völlurinn opinn. Annars er vorið að bresta á og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 21:00

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2015 (1): Kristján Jökull sigraði!

Í dag fór fram á Kálfatjarnarvelli á Vatnsleysunni 1. mótið á Áskorendamótaröðinni. Sigurvegari varð Kristján Jökull Marinósson, GS, en hann var með besta skor af þeim 45 sem luku mótinu. Kristján Jökull lék Vatnsleysuna á glæsilegum 8 yfir pari, 80 höggum!!! Sjá má myndaseríu frá 1. móti Áskorendamótaraðarinnar með því að SMELLA HÉR:  Af 45 þátttakendum voru flestir þátttakendur í strákaflokki, 14 ára og yngri, en sætisröð þeirra var eftirfarandi: 1 Kristján Jökull Marinósson GS 5 F 41 39 80 8 80 80 8 2 Sveinn Andri Sigurpálsson GM 2 F 44 43 87 15 87 87 15 3 Ísak Örn Elvarsson GL 7 F 43 44 87 15 87 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2015 | 20:00

Golfgrín á laugardegi

Faðir, sonur og sonarsonur fóru út á völl til þess að spila sitt vikulega golf. Þegar þeir hafa rétt náð fyrsta teig kemur falleg ung ljóshærð kona með golfpokann sinn. Hún útskýrði að sá sem hún hefði ætlað að spila við hefði ekki mætt og spurði þremenningana hvort hún mætti spila með þeim. Auðvitað samþykktu strákarnir þetta! Ljóskan þakkaði brosandi fyrir sig og sagði: „Sjáið nú til ég vinn á nektarstað, sem dansari þannig að það er ekkert sem sjokkerar mig. Ef einhver ykkar vill reykja vindla út á velli, fá sér bjór, veðja, blóta, segja dónabrandara eða gera hvað það sem þið gerið venjulega, þá bara gerið það! En ég nýt þess Lesa meira