Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steingrímur Waltersson – 7. júní 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Steingrímur Walterson. Steingrímur fæddist 7. júní 1971 og er því 44 ára í dag. Steingrímur er félagi í Golfklúbbi Mosfellsbæjar (GM). Steingrímur er kvæntur Elínu Rósu Finnbogadóttur og eiga þau tvö börn. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér fyrir neðan Steingrímur Waltersson (44 ára) Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Terry Gale, 7. júní 1946 (69 ára); Stefanía M Jónsdóttir, GR, 7. júní 1958 (57 ára); Steven David Rintoul, 7. júní 1963 (52 ára); Hilary Lunke, 7. júní 1979 (36 ára); Keegan Bradley, 7. júní 1986 (29 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 15:00

GB: Bjarki nýlentur frá Berlín á besta skorinu í Gevalíamótinu!

Gevalía opið var leikið í blíðskaparveðri í gær. Til hróss fyrir völlinn sáu GB-menn skor, sem þeir sjá sjaldan á Hamarsvelli, hvað þá svona snemma sumars. Fimm kylfingar náðu 40 pkt eða fleirum, sem er frábært. Og besta skor í mótinu eða 70 högg náði snillingurinn Bjarki Pétursson, nýlentur frá Berlin. GB-menn hafa auðvitað unnið að því í vor að gera völlinn þannig úr garði að hann henti breiðum hópi notenda og unnenda vallarins. Lækkað kargann, breikkað og lengt snöggslegnar brautir og fjarlægt „golfleiðinlega trjárunna“. En Hamarsvöllur verður áfram áskorun. Punktakeppni:  1.sæti: 40.000kr gjafabréf í Örninn golf Ólöf Þórey Eyjólfsdóttir GB 42 pkt. 2.sæti: 30.000kr gjafabréf í Örninn-golf Bergsveinn Símonarson GB 40 pkt. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 14:00

GG: Helgi Dan og Björgvin sigruðu á Sjóaranum síkáta

Í gær fór fram Sjómannadagsmótið Sjóarinn síkáti í tengslum við samnefnda Sjómannahátíð í Grindavík. Mótið var punktamót, með og án forgjafar.  Skráðir til leiks voru 72 en 60 kláruðu, þar af 4 kvenkylfingar en af þeim stóð sig best Laufey Valgerður Oddsdóttir, GR. Sigurvegari í punktakeppni án forgjafar var heimamaðurinn Helgi Dan Steinsson, GG, með 35 punkta. Í punktakeppni með forgjöf sigraði Björgvin Sigurðsson, GK, en hann var með 36 punkta.  Í 2. sæti varð Bjarki Guðnason, GV með 35 punkta og í 3. sæti Halldór Ernir Smárason, GG með 34 punkta. Heildarúrslit í punktakeppni án forgjafar var eftirfarandi: 1 Helgi Dan Steinsson GG F 18 17 35 35 2 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 12:30

Íslandsbankamótaröðin (2): Ljóst hverjir keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitla í holukeppni unglinga

Nú er orðið ljóst hverjir keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitla í holukeppni unglinga, en einmitt við birtingu þessarar fréttar kl. 12:30 fara fyrstu keppendur út í úrslitaleikjunum og keppninni um 3. sætið í Íslandsmóti unglinga í holukeppni. Þessi keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitla: Stelpuflokkur 14 ára og yngri 12:30 Andrea Ýr Ásmundsdóttir g. Ölmu Rún Ragnarsdóttur, GKG Strákaflokkur 14 ára og yngri 12:38 Andri Már Guðmundsson g. Sigurði Arnari Garðarssyni, GKG Telpuflokkur 15-16 ára 12:46 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR g. Zuzönnu Korpak, GS Drengjaflokkur 15-16 ára 12:54 Arnór Snær Guðmundsson, GHD g. Kristjáni B. Sveinssyni, GA Stúlknaflokkur 17-18 ára 13:02 Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK g. Evu Karen Björnsdóttur, GR Piltaflokkur 17-18 ára Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 12:00

Gauti Grétars á besta skori í móti Sjúkraþjálfara!

Nú fyrir helgi, nánar tiltekið föstudaginn 5. júní 2015 fór fram Golfmót Sjúkraþjálfara á Gufudalsvelli í Hveragerði. Þátttakendur voru 24 þar af 11 kvensjúkraþjálfarar, sem er óvenjugott hlutfall kvenkylfinga í móti næstum 50%!!! Af kvenkylfingunum stóð Hulda Soffía Hermannsdóttir, GK sig best; lék Gufudalsvöll á 18 yfir pari, 90 höggum. Skemmst er frá því að segja að góðkunningi flestra afrekskylfinga, Gauti Grétarsson, NK, sigraði á Golfmóti Sjúkraþjálfara. Gauti lék Gufudalsvöll á 6 yfir pari, 78 höggum. Annar sjúkraþjálfari var á sama skori, Hilmar Þór Hákonarson, GB, lék hins vegar seinni 9 á fleiri höggum 40, meðan Gauti var á 37.   Því varð Hilmar Þór í 2. sæti.  Í 3. sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 09:30

PGA: Rose efstur e. 3. dag í Ohio

Það er enski kylfingurinn Justin Rose sem tekið hefir forystuna fyrir lokahring The Memorial sem leikinn verður í kvöld. Rose er með 3 högga forystu á næsta keppenda búinn að spila á samtals 15 undir pari, 201 höggi (68 67 66). Í 2. sæti á samtals 12 undir pari eru forystumaður gærdagsins David Lingmerth frá Svíþjóð og Ítalinn Francesco Molinari. Það eru því Evrópumenn sem raða sér í 3 efstu sætin. Það er ekki fyrr en í 4. sæti sem við finnum fyrir Bandaríkjamann, þ.e. Jim Furyk, sem búinn er að spila á samtals 11 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 08:58

PGA: Tiger lék á 85 höggum!!!

Tiger Woods átti hreint með afbrigðum, fáránlega lélegan hring – eitthvað sem maður trúði bara ekki að maður ætti eftir að sjá! Hann lék 3. hring á Memorial mótinu, þar sem hann rétt slapp í gegnum niðurskurð deginum áður á (42-43) eða heilum  85 höggum!!!   Þetta er versti hringur á ferli Tiger! Samtals er Tiger búinn að spila á 12 yfir pari!!! (NB maðurinn er sá sem lengst hefir setið í efsta sæti heimslistans!!!) – en sem sagt 12 yfir pari, 228 högg (73 70 85) og er neðstur af þeim sem komust gegnum niðurskurð eða í 71. sæti. Á 3. hring Memorial lék Tiger á 13 yfir pari; Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 08:30

Íslenska kvennalandsliðið í golfi sigraði á Smáþjóðaleikunum – átti 33 högg á næsta lið

Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér yfirburða sigur á Smáþjóðaleikunum í golfi sem lauk í dag á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Guðrún Brá Björgvinsdóttir sigraði í einstaklingskeppninni – en hún lék á -1 samtals og var þremur höggum betri en Sophie Sandolo frá Mónakó. Karen Guðnadóttir varð þriðja á +14 samtals og Sunna Víðisdóttir varð fjórða á +15 samtals. Guðrún Brá var sú eina sem var með heildarskor undir pari!!! Ísland lék samtals á +8 og sigraði með 33 högg mun en Mónakó varð í öðru sæti á +41 samtals, og Lúxemborg varð í þriðja sæti á +101 samtals. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í golfi á Smáþjóðaleikunum en þetta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 07:00

Glæsilegur sigur íslenska karlalandsliðsins á Smáþjóðaleikunum – Kristján á besta skorinu!

Íslenska karlalandsliðið sigraði með yfirburðum í liðakeppninni á Smáþjóðaleikunum í golfi í dag á Korpúlfsstaðavelli sem lauk í dag. Ísland lék samtals á 14 höggum undir pari vallar og var 31 höggum betri en Malta sem varð í öðru sæti. Mónakó endaði í þriðja sæti á +29 samtals. Kristján Þór Einarsson sigraði í einstaklingskeppninni á -6 samtals en hann lék lokahringinn á 77 höggum í dag – eftir að hafa sett vallarmet í gær á 64 höggum. Sandro Piaget frá Mónakó varð annar á -2 samtals og Haraldur Franklín Magnús varð þriðji á pari vallar samtals. Andri Þór Björnsson varð fjórði á +2 samtals. Lokastaðan hjá efstu kylfingunum í einstaklingskeppninni: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2015 | 21:30

Áskorendamótaröð Íslandsbanka (2): Jón Otti sigraði í drengjaflokki – Aðalsteinn í piltaflokki

Það voru 8 keppendur í piltaflokki á 2. móti Áskorendamótaraðarinnar, sem fram fór á Svarfhólsvelli á Selfossi í dag. Sigurvegari varð Norðanmaðurinn Aðalsteinn Leifsson GA, á 2 yfir pari, 72 höggum og var hann jafnframt á besta skorinu yfir allt mótið. Í 2. sæti varð Atli Már Grétarsson, úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, en hann lék Svarfhólsvöll á 4 yfir pari, 74 höggum. Í 3. sæti varð loks Fannar Már Jóhannsson, GA á 5 yfir pari, 75 höggum, sem var reyndar sama skor og enn annar Norðanmaðurinn Víðir Steinar Tómasson var á; Fannar Már lék bara betur á seinni 9 var á 37 höggum meðan Víðir Steinar var á 39 höggum. Lesa meira