
Íslenska kvennalandsliðið í golfi sigraði á Smáþjóðaleikunum – átti 33 högg á næsta lið
Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér yfirburða sigur á Smáþjóðaleikunum í golfi sem lauk í dag á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík. Guðrún Brá Björgvinsdóttir sigraði í einstaklingskeppninni – en hún lék á -1 samtals og var þremur höggum betri en Sophie Sandolo frá Mónakó. Karen Guðnadóttir varð þriðja á +14 samtals og Sunna Víðisdóttir varð fjórða á +15 samtals. Guðrún Brá var sú eina sem var með heildarskor undir pari!!!
Ísland lék samtals á +8 og sigraði með 33 högg mun en Mónakó varð í öðru sæti á +41 samtals, og Lúxemborg varð í þriðja sæti á +101 samtals.
Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í golfi á Smáþjóðaleikunum en þetta er í 16. sinn sem leikarnir fara fram og í annað sinn sem keppt er á Íslandi. Smáþjóðaleikarnir fóru fram í Reykjavík árið 1997.
Guðrún Brá lék lokahringinn á 77 höggum í dag en hún var á -6 eftir fyrstu þrjá hringina.
Lokastaðan í liðakeppninni:
Ísland 584 högg
Mónakó 617 högg
Lúxemborg 677 högg
Liechtenstein 686
Lokastaðan hjá efstu kylfingunum í kvennaflokki:
Guðrún Brá Björgvinsdóttr, Ísland 287 högg -1 (69-71-70-77)
Sophie Sandolo, Mónakó 292 högg +4 (73-73-70-76)
Karen Guðnadóttir, Ísland 302 höggg +14 (77-73-75-77)
Sunna Víðisdóttir, Ísland 303 högg +15 (74-78-76-75)
Maria Creus Ribas, Andorra 323 högg +35 (77-88-81-77)
Sophie Halshall, Mónakó 331 högg (80-85-86-80)
Christine Tinner Rampone, Liechtenstein 333 högg (88-83-79-83)
- ágúst. 13. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2022)
- ágúst. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022
- ágúst. 13. 2022 | 15:00 Evróputúrinn: Haraldur Franklín á -1 á ISPS Handa World Inv. e. 3. dag
- ágúst. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgit Henriksen – 12. ágúst 2022
- ágúst. 11. 2022 | 18:00 GSÍ: Fjöldi kylfinga á Íslandi aldrei verið meiri
- ágúst. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Helga Laufey Guðmundsdóttir – 11. ágúst 2022
- ágúst. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erna Elíasdóttir —– 9. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge