Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 08:30

LPGA: Pettersen sigraði á Manulife!

Norska frænka okkar, Suzann Pettersen, sigraði á Manulife LPGA Classic mótinu. Pettersen lék á 22 undir pari, 266 höggum (66 65 66 69).  Glæsiskor!  Fyrir sigurinn hlaut Pettersen $ 225.000,- Í 2. sæti varð bandaríska stúlkan Brittany Lang aðeins 1 höggi á eftir Pettersen á 21 undir pari. Í 3. sæti varð síðan Mariajo Uribe frá Kólombíu. Til þess að sjá lokastöðuna á Manulife LPGA Classic SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 4. dags Manulife LPGA Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 08:00

GB: Coka Cola skipt út fyrir Appelsín!

Eitt af einkennum Hamarsvallar í Borgarnesi hefir um langt skeið verið rauða kók-dósin. Nú um helgina var kókdósinni frægu hins vegar skipt út fyrir appelsínugula appelsíndós! Laugardaginn 6. júní 2015 mátti enn sjá kók-dósina en sunnudaginn 7. júní var appelsín dós komin í staðinn. Er þetta gert til þess að vera meira í stíl við Rickie Fowler?  Út með Tiger inn með Rickie? Spurning hvort GB-ingar bæti ekki einni Malt-dós á völlinn líka – til þess að fullkomna ástina!


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 07:30

Landsliðsþjálfari stoltur af íslensku landsliðunum (karla-og kvenna) á Smáþjóðaleikunum

Smáþjóðaleikunum lauk nú um helgina á Korpu. Skemmst er frá því að segja að Íslendingar sópuðu til sín allt gull bæði í einstaklingskeppni sem liðakeppni – karla- sem kvennaflokki. Landsliðsþjálfarinn okkar Úlfar Jónsson er afar stoltur af landsliðunum. Á facebook síðu sína skrifaði hann m.a.: „Stoltur af landsliðsfólkinu okkar, unnu öll gull sem voru í boði í golfi á Smáþjóðaleikunum! Frábærir einstaklingar sem mynduðu sterkt lið. —“


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 07:15

GA: Auðunn sigraði á 100 ára afmæli Þórs

Laugardaginn 6. júní s.l. fagnaði Íþróttafélagið Þór á Akureyri 100 ára afmæli sínu og var dagskráin glæsileg. Af þessu tilefni stóðu Þór og GA fyrir veglegu afmælismóti  föstudaginn 5. júní og voru rétt rúmlega 80 manns skráðir til leiks. Golf 1 óskar Þór og Þórsurum innilega til hamingju með stórafmælið!!! Um afmælisgolfmótið er það að segja að þátttakendur voru 87, þar af 7 kvenkylfingar og stóð Kristjana Skúladóttir, GA sig best af þeim var á 37 punktum en keppnisfyrirkomulag var punktakeppni. Sigurvegari mótsins varð Auðunn Aðalsteinn Víglundsson, GA, en hann var á 41 punkti.  Í 2. sæti varð Sigurpáll A. Aðalsteinsson, GA á 38 punktum (19 punktar á seinni 9) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 07:00

Hver er kylfingurinn: David Lingmerth?

Eftir sigurinn á The Memorial nú um helgina ætti nafn sænska kylfingsins David Lingmerth að vera á allra vörum.  Þetta var 1. sigur Lingmerth á PGA Tour. Við sigurinn fer Lingmerth úr 212. sætinu á heimslistanum í 71. sætið eða upp um 141 sæti!!! En hver er kylfingurinn? David Lingmerth fæddist 22. júlí 1987 og er því 27 ára. Lingmerth spilaði í bandaríska háskólagolfinu með University of West Florida (í 1 ár) og University of Arkansas (í 3 ár) og þar var hann two-time All American. Hann vann 1 móti í West Flórída og annað í Arkansas. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2010 Lingmerth lék á Web.com Tour fyrsta keppnistímabilið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 06:00

PGA: Lingmerth sigraði á Memorial

Það var Svíinn David Lingmerth, sem sigraði á Memorial móti Jack Nicklaus í Ohio. Lingmerth var jafn Justin Rose, að loknum 72 hefðbundnum leik og þurfti því að koma til bráðabana milli þeirra. Par-4 18. holan var spiluð tvívegis en báðir fengu par í bæði skiptin og allt í stáli milli þeirra. Þá var par-4 10. holan spiluð og þar sigraði Lingmerth á pari!  Þetta er fyrsti sigur Lingmerth á PGA mótaröðinni. Þriðja sætinu deildu Masters-meistarinn ungi Jordan Spieth og ítalski kylfingurinn Francesco Molinari. Til þess að sjá lokastöðuna á Memorial SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta lokahringsins á The Memorial SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 20:59

Íslandsbankamótaröðin (2): Nýkrýndir Íslandsmeistarar í holukeppni unglinga

Nú í dag lauk Íslandsmóti í holukeppni unglinga á Strandarvelli hjá GHR. Keppendur voru líkt og venja er af báðum kynjum og keppt  í 3 aldursflokkum. Eftirtaldir urðu Íslandsmeistarar í holukeppni: Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA – Íslandsmeistari í stelpuflokki 14 ára og yngri. Zuzanna Korpak, GS – Íslandsmeistari í telpuflokki, 15-16 ára. Eva Karen Björnsdóttir, GR – Íslandsmeistari í stúlknaflokki 17-18 ára. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG – Íslandsmeistari í strákaflokki 14 ára og yngri. Kristján Benedikt Sveinsson, GA – Íslandsmeistari í drengjaflokki 15-16 ára. Tumi Hrafn Kúld, GA – Íslandsmeistari í piltaflokki 17-18 ára. Nánari umfjöllun og úrslit sem og myndasería frá lokadegi Íslandsmótsins í holukeppni unglinga mun birtast hér Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 19:00

Fannar Ingi komst ekki í gegnum niðurskurð

Fannar Ingi Steingrímsson úr Golfklúbbi Hveragerðis tók þátt í  sterku áhugamannamóti sem fram fór í Þýskalandi, þ.e. German International Boys & Girls Amateur Championship 2015. Mótið stóð dagana 5.-7. júní 2015 og lauk í dag. Fannar, sem verður 17 ára á þessu ári, lék fyrsta hringinn á -1 eða 71 högg en seinni hringinn á 6 yfir pari, 78 höggum og var því á samtals 5 yfir pari, í gær, þegar skorið var niður. 45 efstu sem voru samtals á 3 yfir pari eða betur komust áfram. Það munaði því 2 höggum að Fannar Ingi kæmist í gegnum niðurskurð og fengi að spila lokahringinn, sem fór fram í dag. Það Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 18:00

Birgir Leifur lauk keppni T-42!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, tók þátt í Swiss Challenge, en mótið fór fram í Lucerne, Sviss og er hluti af evrópsku Áskorendamótaröðinni.  Mótinu lauk í dag. Birgir Leifur lék samtals á 1 undir pari, 283 höggum (72 69 70 72). Fara þurfti fram bráðabani til þess að knýja fram úrslit en tveir voru efstir og jafnir eftir hefðbundinn 72 holu leik: þeir Gary Boyd og Daníel IM!  Báðir höfðu spilað á samtals 11 undir pari, hvor. Par-4 18. hola Golf Sempachersee golfvallarins var spiluð aftur og þar fékk IM fugl en Boyd tapaði var með skolla! Sjá má lokastöðuna á Swiss Challenge með því að SMELLA HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2015 | 17:00

Evróputúrinn: Noren sigraði á Nordea Masters

Það var Svíinn Alexander Noren sem stóð uppi sem sigurvegari á Nordea Masters, sem fram hefir farið s.l. 4 daga á PGA Sweden National. Noren lék á samtals 12 undir pari, 276 höggum (70 68 67 71) og átti 4 högg á næsta keppanda Danann Sören Kjeldsen, sem virðist vera í hörkustuði þessa dagana, en hann sigraði nú nýverið á Opna írska, þar sem sjálfur Rory McIlroy komst ekki í gegnum niðurskurð! Kjeldsen var með 4 höggum umfram sigurvegarann þ.e. á  8 undir pari, 280 höggum (72 69 68 71). Fjórir deildu síðan 3. sætinu: Svíarnir Jens Dantorp og Sebastian Söderberg; Maximilian Kiefer frá Þýskalandi og Alexander Levy frá Frakklandi. Lesa meira