Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2018 | 14:45

LPGA: Valdís Þóra T-115 e. 1. dag II. stigs úrtökumóts

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tekur þátt í II. stigs úrtökumóti fyrir LPGA mótaröðina, en úrtöku- mótið fer fram á Plantation vellinum í Flórída Úrtökumótið fer fram á Plantation vellinum í Flórída og keppendur eru 193. Á 1. hring úrtökumótsins lék Valdís Þóra á 4 yfir pari, 76 höggum en hún fékk  2 fugla, 3 skolla og því miður einnig þrefaldan skolla, sem eyðilagði annars ágætt skor hennar. Eftir 1. dag er Valdís Þóra í 115. sæti. Fylgjast má með gengi Valdísar Þóru á LPGA úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2018 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Tumi og félagar í WCU við keppni – Fylgist m/HÉR

Tumi Kúld og félagar hans í Western Carolina University (WCU) eru þessa stundina við keppni á Quail Valley Collegiate mótinu. Þátttakendur eru 80 frá 16 háskólum. Keppt er á Vero Beach í Flórída. Tuma gengur fremur illa sem stendur er í 77. sæti af 80 keppendum og átti erfiða byrjun þegar hann fékk heil 12 högg á par-5 10. holu keppnisvallarins, sem var 1. hola lokahrings hans. Lið WCU er í 16. og síðasta sæti í liðakeppninni. Fylgjast má með lokahring Tuma og félaga með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Tuma og WCU er 4. nóvember n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir – 15. október 2018

Afmæliskylfingur dagsins á Golf 1 er  Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og LPGA, sem við erum öll svo stolt af. Hún er fædd 15. október 1992 og því 26 ára í dag. Ólafía spilaði í bandaríska háskólagolfinu með kvennagolfliði Wake Forest (2010-2014). Ólafía er fyrirmynd og brautryðjandi í íslensku kvennagolfi á svo óramarga vegu. Sem stendur spilar hún á bestu kvengolfmótaröð heims, LPGA, hefir spilað í 47 mótum þar samtals 21 á þessu ári 2018, sem á marga vegu hefir líklega ekki verið óskaár Ólafíu „okkar“ Ólafía Þórunn er Íslandsmeistari í holukeppni 2013 og Íslandsmeistari höggleik 2014 og 2016. Hún er sá íslenski kvenkylfingur og reyndar bara kylfingur almennt, sem spilað Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2018 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Bjarki, Gísli og Kent State í 4. sæti í Tennessee

Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK og lið þeirra í bandaríska háskólagolfinu Kent State tóku þátt í Bank of Tennessee mótinu í Johnson City í Tennessee, dagana 12.-13. október sl. Þátttakendur voru 81 frá 14 háskólum. Bjarki varð T-12 á samtals 7 undir pari, 209 höggum (66 69 74) og Gísli varð T-63 á 6 yfir pari, 222 höggum (76 74 72). Kent State lið þeirra Bjarka og Gísla varð í 4. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Bank of Tennessee mótinu SMELLIÐ HÉR:  Næsta mót Kent State er 22.-23. október nk.

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2018 | 23:59

PGA: Leishman sigraði á CIMB!

Það var ástralski kylfingurinn Marc Leishman, sem bar sigur úr býtum á CIMB Classic. Sigurskor Leishman var 26 undir pari, 262 högg (68 62 67 65). Næstu menn voru heilum 5 höggum á eftir á samtals 21 undir pari, 267 höggum, en það voru Emilio Grillo frá Argentínu (66 68 67 66); Chesson Hadley (67 68 66 66) og Bronson Burgoon (63 69 67 68). Justin Thomas var síðan einn af 5 , sem deildu 5. sæti á samtals 20 undir pari, hver. Sigurtékk Leishman var upp á 1,260.000 bandaríkjadala (u.þ.b. 147,5 milljón íslenskra króna). Til þess að sjá lokastöðuna á CIMB Classic SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ásta Óskarsdóttir – 14. október 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Ásta Óskarsdóttir. Ásta er fædd 14. október 1964 og á því 54 ára afmæli í dag. Ásta er í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR). Komast má á facebooksíðu Ástu til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið Ásta Óskarsdóttir, GR (54 ára) – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jesse Carlyle „J.C.“ Snead, f. 14. október 1940 (78 ára); Beth Daniel 14. október 1956 (62 ára); Kaisa Ruuttila, 14. október 1983 (35 ára); Lilia Vu, 14. október 1997 (21 árs)  ….. og ….. Barnaföt Og Fleira Sala (39 ára); Siglfirðingafélagið Siglfirðingar (57 ára) og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir Golf 1 óskar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2018 | 14:00

Evróputúrinn: Pepperell sigraði!

Það var Eddie Pepperell sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á Evróputúrnum, British Masters. Pepperell lék á samtals 9 undir pari, 279 höggum (67 69 71 72). Í 2. sæti varð Svíinn Alexander Björk á samtals 7 undir pari, 2 höggum á eftir Pepperell. Til þess að sjá hápunkta lokahrings British Masters SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá lokastöðuna á British Masters SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kristófer Orri Þórðarson – 13. október 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Kristófer Orri Þórðarson. Kristófer Orri er fæddur 13. október 1997 og á því 21 árs afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmæliðKristófer Orri Þórðarson Kristófer Orri Þórðarson · Innilega til hamingju með 21 árs afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Brian Thomas („Bud“ eða „Buddy„) Allin 13. október 1944 (74 ára); Kristín Inga Þrastardóttir, 13. október 1945 (73 ára); Kristján Ingibjörn Jóhannsson, 13. október 1945 (73 ára); Chako Higuchi, f. 13. október 1945 (73 ára); Kristján Jóhannsson f. 13. október 1945 (73 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2018 | 20:00

Axel úr leik

Atvinnukylfingurinn Axel Bóasson úr GK tók þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, sem fram fór á Bom Sucesso í Óbidos í Portugal. Axel lék á samtals 13 yfir pari, 301 höggi (78 74 70 79) og var síðastur af þeim sem komust gegnum niðurskurð. Hann er því úr leik og fer ekki á næsta stig úrtökumótsins. Í efsta sæti í þessu úrtökumóti varð Spánverjinn Sebastian Garcia Rodriguez, en hann hafði nokkra yfirburði átti 8 högg á næsta mann, þar sem hann lék á samtals 18 undir pari, 270 höggum ( 68 68 67 67). Sjá má stöðuna á úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2018 | 18:00

PGA: Leishman og Woodland heitir á 2. degi CIMB

Það eru þeir Marc Leishman og Gary Woodland sem leiða í hálfleik á móti vikunnar á PGA Tour, CIMB Classic. Báðir hafa þeir Leishman og Woodland leikið á samtals 14 undir pari, 130 höggum; Woodland (69 61) og  Leishman (68 62). Í 3. sæti eru enski kylfingurinn Paul Casey og Shubhankar Sharma frá Indlandi, báðir 1 höggi á eftir. Til þess að sjá stöðuna á CIMB Classic SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á CIMB Classic SMELLIÐ HÉR:  (verður sett inn um leið og myndskeiðið er til) Aðalmyndagluggi: Gary Woodland.