Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn T-8 og Gunnar T-24 á Tabor Fall Inv.
Birgir Björn Magnússon, GK og Gunnar Blöndahl Guðmundsson, GKG og lið þeirra í bandaríska háskólagolfinu, Bethany Swedes tóku þátt í Tabor Fall Invitational mótinu, sem fram fór 15.-16. október sl. Leiknir voru tveir hringir á Sand Creek Station golfvellinum, í Newton, Kansas. Þátttakendur voru 63 frá 9 háskólum. Birgir Björn lék á samtals 7 yfir pari, 149 höggum (75 74) og varð T-8 þ.e. deildi 8. sætinu með 2 öðrum kylfingum. Gunnar lék á samtals 15 yfir pari, 157 höggum (80 77) og varð T-24 þ.e. deildi 24. sætinu með liðsfélaga sínum, Ben Wolfman. Bethany Swedes varð í 4. sæti í liðakeppninni. Næsta mót Birgis Björns, Gunnars og Bethany Swedes Lesa meira
LPGA: Valdís Þóra komst ekki á III. stig úrtökumótsins
LET kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, reyndi fyrir sér á úrtökumóti fyrir LPGA mótaröðina, þ.e. 2. stiginu. 193 kvenkylfingar tóku þátt í úrtökumótinu, sem fór fram í Venice, Flórída, dagana 15.-18. október 2018 og lauk því í dag. Valdís Þóra lauk keppni um miðjan hóp, átti erfiða byrjun en sýndi karakter og bætti sig stöðugt! Lokaskor Valdísar Þóru var 10 yfir pari, 298 högg (76 78 73 71). 25 efstu og þær sem jafnar voru í 25. sætinu komust áfram á III: stigið, en í ár dugði að vera samtals á sléttu pari til þess að komast þangað. Til þess að sjá lokaskorið á II. stigi úrtökumótsins í Lesa meira
Evróputúrinn: Birgir Leifur T-58 á Valderrama Masters þegar leik var frestað
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék í dag 4 fyrstu holur á 1. hring á Andalucia Valderrama Masters mótinu, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Síðan var leik frestað vegna eldinga og seinna myrkurs og gat Birgir Leifur ekki lokið við hring sinn, sem verður fram haldið kl. 9:00 að staðartíma á morgun 19. október. Birgir Leifur hóf leik á par-4 10. holunni og fékk par á hana og næstu tvær holur, en fékk síðan skolla á par-4 13. holuna. Eftir 1. dag er enski kylfingurinn Ashley Chesters efstur, en hann kom í hús í dag á 5 undir pari, 66 höggum og er einn af fáum kylfingum, sem Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Eva Karen varð T-34 á Fred Marx mótinu
Eva Karen Björnsdóttir, GR og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu ULM tóku þátt í Fred Marx Invitational, sem fram fór 15.-16. október sl. í Bayou DeSiard CC í Monroe, Louisiana. Þátttakendur voru 46 frá 8 háskólum. Eva Karen lék á samtals 17 yfir pari, 161 höggi (79 82). Til þess að sjá lokastöðuna á Fred Marx Invitational SMELLIÐ HÉR: Næsta mót Evu Karenar og ULM er 11. mars 2019.
Bandaríska háskólagolfið: Stefán Þór lauk keppni á Copperhead mótinu
Stefán Þór Bogason, GR, keppti sem einstaklingur í Copperhead Championship sem fram fór á Copperhead vellinum í Innisbrook Resort, í Innisbrook, Flórída, dagana 15.- 16. október sl. Þátttakendur í mótinu voru 88 frá 16 háskólum. Stefán Þór varð T-67 með skor upp á 20 yfir pari, 233 högg (76 74 83). Til þess að sjá lokastöðuna á Copperhead mótinu SMELLIÐ HÉR: Aðeins 1 mót er á dagskrá enn á haustönn hjá Stefáni Þór en það verður haldið 20. október n.k
Afmæliskylfingur dagsins: Ársæll Steinmóðsson – 18. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Ársæll Steinmóðsson. Hann er fæddur 18. október 1961 og á því 57 ára afmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Ársæll Steinmóðsson (57 ára – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðalsteinn Aðalsteinsson, 18. október 1964 (54 ára); Hanna Fanney Proppé, 18. október 1965 (53 ára); Nick O´Hern, 18. október 1971 (47 ára); Stephen Douglas Allan, 18. október 1973 (44 ára); Riko Higashio (東尾 理子 Higashio Riko), 18. nóvember 1975 (43 ára); Rafa Echenique, 18. október 1980 (38 ára); Arnór Þorri Sigurðsson, 18. október 1994 Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Helga varð T-15 á Brown Bear Inv.
Helga Kristín Einarsdóttir, GK og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Albany tóku þátt í Brown Bear Invitational sem fram fór 14.-15. október s.l. Helga Kristín lék á samtals 7 yfir pari, 151 höggi (75 76) og varð T-15 í mótinu. Lið Helgu Kristínar varð í T-5 í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Brown Bear Inv. SMELLIÐ HÉR: Næsta mót Helgu Kristínar og Albany er á vorönn.
Afmæliskylfingur dagsins: Ernie Els ———— 17. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Ernie Els. Ernie fæddist í Jóhannesarborg, Suður-Afríku, 17. október 1969 og er því 49 ára í dag. Hann vann e.t.v. stærsta sigur sinn á golfvellinum 2012 þegar hann vann Opna breska í annað sinn, en það hefir hann gert á 10 ára fresti 2002 og 2012 Sjá má kynningu Golf á afmæliskylfingnum með því að smella á eftirfarandi: Els 1 – Els 2 – Els 3 – Els 4 – Els 5 – Els 6 – Els 7 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sigfús Ægir Árnason, 17. október 1954 (64 ára); Blaine McCallister, 17. október 1958 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Stefán S Arnbjörnsson, 17. Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún og Drake urðu T-5 á MVC
Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK og félagar í Drake tóku þátt í MVC Preview. Þátttakendur voru 55 úr 9 háskólum. Sigurlaug Rún lék á samtals 37 yfir pari, 253 höggum (85 86 82) og varð T-25, þ.e. deildi 25. sætinu með Caitlin Simms frá Illinois State háskólanum. Drake varð T-5 í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á MVC Preview með því að SMELLA HÉR: Þetta er lokamótið á haustönn hjá Sigurlaugu Rún en næsta mót er ekki fyrr en 9. febrúar 2019.
Afmæliskylfingur dagsins: Agnes Ingadóttir – 16. október 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Agnes Ingadóttir. Agnes er fædd 16. október 1965 og á því afmæli í dag. Agnes er í Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Rifja má upp eldra viðtal við Agnesi með því að SMELLA HÉR: Agnes Ingadóttir (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Herdís Guðmundsdóttir, (f. 16. október 1910- d. 29.1.1997) Fyrsti íslenski kvenkylfingurinn, sem hlaut meistaratign í golfi. Meistari Golfklúbbs Íslands, síðar GR, 1938, 1939, 1944, 1945 og 1948; Margrét Óskarsdóttir, GM 16. október 1951 (67 ára); Val Skinner, 16. október 1960 (58 ára); Kay Cockerill, 16. október 1964 (54 ára); Sigrún Helgadóttir, 16. október 1968 (48 ára) Flosi Sig 16. október 1969 Lesa meira










