PGA: English & Lewis efstir e. 1. dag The Honda Classic
Það eru enski kylfingurinn Tom Lewis og Harris English frá Bandaríkjunum, sem eru efstir og jafnir á The Honda Classic, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Mótið fer fram í Palm Beach Gardens, Flórída dagana 27. febrúar – 1. mars 2020. Lewis og English luku báðir 1. hring á 6 undir pari, 66 höggum. Sjá má stöðuna að öðru leyti á The Honda Classic með því að SMELLA HÉR: Sjá má hápunkta 1. dags á The Honda Classic með því að SMELLA HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Egill Ragnar & félagar T-11 á Púertó Rícó
Egill Ragnar Gunnarsson, GKG og félagar í Georgia State tóku þátt í Dorado Beach Collegiate á Púertó Rícó. Mótið átti að fara fram dagana 23.-25. febrúar sl. en aðeins var spilaður 1 hringur vegna mikilla rigninga næstu 2 daga á Púertó Rícó. Þátttakendur voru 96 frá 15 háskólum. Egill Ragnar ásamt félaga sínum Josh Edgar var á besta skori Georgia State fyrsta og eina dag mótsins; báðir komu í hús á sléttu pari, 72 höggum og urðu T-33 í einstaklingskeppninni. Lið Georgia State varð jafnt liði Indiana í 11. sæti í mótinu. Sjá má lokastöðuna á Dorado Beach Collegiate með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Egils Gunnars og Georgia Lesa meira
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Adrien Saddier (18/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim. Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár. Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni. Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni. Golf 1 Lesa meira
Evróputúrinn: Migliozzi leiðir e. 1. dag í Óman
Mót vikunnar á Evróputúrnum er Oman Open, sem fram fer í Al Mouj Golf, Muscat, Oman, dagana 27. febrúar- 1. mars 2020. Sá sem leiðir eftir 1. dag er ítalski kylfingurinn Guido Migliozzi. Migliozzi kom í hús á 6 undir pari, 66 höggum, sem var lægsta skor dagsins. Danski kylfingurinn Rasmus Höjgaard, Brandon Stone frá S-Afríku og Tahee Lee frá S-Kóreu eru í 2. sæti á 67 höggum. Sjá má stöðuna á Oman Open með því að SMELLA HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Daðey Einarsdóttir – 27. febrúar 2020
Afmæliskylfingur dagsins er Daðey Einarsdóttir. Daðey er fædd 27. febrúar 1960 og á því 60 ára merkisafmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Daðeyjar til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Daðey Einarsdóttir – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!! Daðey á m.a. sama afmælisdag og kólombíski LPGA kylfingurinn Mariajo Uribe, en hún á 30 ára afmæli í dag, þ.e. er fædd 27. febrúar 1990. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sigmundur Guðmundsson, 27. febrúar 1963 (57 ára); Jóhann Björn Elíasson 27. febrúar 1971 (49 ára); Jóhann Island Elíasson 27. febrúar 1971 (49 ára); Gunnar Hallberg 27. febrúar 1973 (47 ára); Dóra Birgis Art 27. febrúar 1978 Lesa meira
LET: Guðrún Brá og Valdís Þóra hófu keppni í Ástralíu í nótt
Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hófu keppni á Women´s New South Wales (skammst. NSW) Open, móti vikunnar á LET í nótt. Valdís Þóra lék á sléttu pari, 72 höggum; fékk 4 fugla og 4 skolla og er T-22 eftir 1. dag Guðrún Brá lék á 5 yfir pari, 77 höggum; fékk aðeins 1 fugl en einnig 6 skolla og er T-99 eftir 1. dag. Í efsta sæti eru skosku kylfingarnir Michele Thomson og Gemma Dryburgh; báðar á 5 undir pari, 67 höggum, hvor. Sjá má stöðuna á Women´s NSW Open með því að SMELLA HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar & félagar urðu í 11. sæti
Björn Óskar Guðjónsson, GM og félagar í Louisiana Lafayette tóku þátt í Border Olympics mótinu í Laredo Texas, dagana Þátttakendur voru 93 frá 17 háskólum. Björn Óskar lék á samtals 5 yfir pari, 221 höggi (76 69 76) og varð T-32 í einstaklingskeppninni. Lið Louisiana Lafayette varð í 11. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna í Border Olympics með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Louisiana Lafayette er á heimavelli 16. mars n.k.
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Sami Välimäki (17/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim. Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár. Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni. Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni. Golf 1 Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn & félagar luku keppni í 14. sæti
Birgir Björn Magnússon, GK og félagar í Southern Illinois tóku þátt í Seminole Intercollegiate. Mótið fór fram dagana 22.-23. febrúar sl. í Golden Eagle golfklúbbnum í Tallahassee, Flórída. Birgir Björn átti ekki sitt besta mót; lék á samtals 20 yfir pari, 236 höggum ( 77 77 82) og varð í 69. sæti í einstaklingskeppninni. Hann var á 4. besta skorinu í liði sínu. Lið Southern Illinois varð í 14. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Seminole Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Southern Illinois er í Arizona 7. mars n.k.
Afmæliskylfingur dagsins: Sigurður Arnar Garðarsson – 26. febrúar 2020
Það er Sigurður Arnar Garðarsson, GKG sem er afmæliskylfingur dagsins. Sigurður Arnar er fæddur 26. febrúar 2002 og á því 18 ára afmæli í dag! Sigurður Arnar byrjaði að spila golf 2 ára gamall og má sjá skemmtilegt viðtal, sem blaðamaður Mbl. tók viðafmæliskylfinginn fyrir 6 árum SMELLIÐ HÉR: Sigurður Arnar kom sér niður í 13,5 í forgjöf aðeins 10 ára!!! Sumarið 2012 (10 ára) varð hann m.a. klúbbmeistari GKG í aldursflokknum 12 ára og yngri. Sumarið 2012 tók Sigurður Arnar þátt í Unglingamótaröð Arion banka og spilaði þar í strákaflokki (14 ára og yngri) gegn strákum sem voru oft á tíðum 4 árum eldri en hann. Engu að síður Lesa meira










