Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 15:00

GS: Ögmundur Máni Ögmundsson, GR, sigraði á 4. móti Eccohaustmótaraðar GS

Síðastliðinn laugardag, 29. október 2011 fór fram 4. mótið í haustmótaröð ECCO og GS. Þátttakendur voru 41 og engin kona meðal þátttakenda. Veitt voru verðlaun í mótinu fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og 3 efstu í höggleik án forgjafar. Helstu úrslit urðu þessi: Höggleikur án forgjafar: 1. sæti Ögmundur Máni Ögmundsson, GR, 78 högg 2. sæti Björgvin Sigmundsson, GS,  78 högg 3. sæti Sigurður Albertsson, GS, 83 högg 4. sæti Helgi Svanberg Ingason, GKG, 85 högg 5. sæti Rúnar Sigurður Guðjónsson, GK, 86 högg 6. sæti Svavar Geir Svavarsson, GO, 88 högg 7. sæti Árni Björn Erlingsson, GS, 89 högg 8. sæti Helgi Róbert Þórisson, GKG, 89 högg   Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 13:00

PGA: HSBC Champions mótið hefst á morgun – vill fá sömu stöðu og önnur heimsmeistaramót

Að undanskildu rauðu dreglunum í sandglompunum og á æfingasvæðunum og skiltum, sem eru bæði á ensku og kínversku og hjól sem keppast við BMW-ana um pláss á götunum þá er HSBC Champions mótið eins og hvert annað heimsmeistaramót. Leitt að PGA Tour lítur ekki svo á málið. HSBC Champions HSBC Champions (sem hefst á morgun) var upprunalega mót á Evróputúrnum, sem spilað hefir verið frá árinu 2006 á Sheshan International og hefir verið heimsmeistaramót (ens. WGC) frá árinu 2009. Það er eina heimsmeistaramótið af 4 í golfinu sem haldið er utan Bandaríkjanna. Það þótti nokkuð skondið og vakti heilmikla gagnrýni að PGA Tour skyldi auglýsa Disney mótið, sem síðasta mótið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Dave Stockton – 2. nóvember 2011

Afmæliskylfingur dagsins í dag er Dave Stockton, sem á 70 ára stórafmæli. David Knapp Stockton fæddist 2. nóvember 1941 í San Bernardino, Kaliforníu. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1964 eftir veru í University of Southern Californía. Hann á að baki 25 sigra sem atvinnumaður, þar af 10 á PGA Tour. Stockton hefir tvívegis sigrað á risamótum, þ.e. PGA Championship árin 1970 og 1976. Árangur hans í öðrum risamótum er líka góður hann deildi t.a.m. 2. sætinu á Masters 1974 og Opna bandaríska 1978. Stockton hefir spilað á Seniors Tour (nú Champions Tour) frá árinu 1991 og sigrað þar 14 sinnum. Stockton var í Ryder Cup liði Bandaríkjanna 1971 og 1977. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 11:00

Kynningarmyndskeið á nýlegri golfkvikmynd: „Golf in the Kingdom“

Nú á árinu kom á markaðinn ný golfkvikmynd, „Golf in the Kingdom“,  sem byggð er á samnefndri bók Michael Murphy. Sjá má útdrætti úr bókinni með því að smella HÉR:   Bókin hefir verið þýdd á 19 tungumál og hefir selst í milljónum eintaka. Murphy fékk innblástur sinn til að skrifa bókina eftir veru í Sri Aurobindo Ashram, þar sem hann fékk áhuga á því sem líkt var milli íþróttamanna sem náðu framúrskarandi árangri og fólks sem sagðist hafa náð Zen stigi. Clint Eastwood keypti upprunalega réttinn að kvikmyndinni en gerði aldrei neitt í því að koma handritinu á hvíta tjaldið. Árið 2009 hófu Mindy Affrime og Susan Streitfeld framleiðslu á sinni Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 09:00

Fegurðardrottningar í golfkennslu

Þáttakendur Miss World 2011 fengu nú á dögunum golfkennslu á Gleneagles í Skotlandi. Sjá má myndir af fegurðardrottningunum í golfi með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 07:00

Michael Jordan verður ekki aðstoðarmaður Couples – John Cook kemur í hans stað

Verkalýðsmál innan NBA hindra að körfuboltastjarnan Michael Jordan fari til Ástralíu sem aðstoðarmaður Couples og bandaríska liðsins í Forsetabikarnum. Fred Couples var með Jordan með sér í síðustu Forsetabikarskeppni í San Fransisco og var búinn að gera ráð fyrir honum sem aðstoðarmanni sínum 17.-20. nóvember n.k. í Royal Melbourne. Chicago Bulls stjarnan átti að gegna stöðu varafyrirliða ásamt Jay Haas. Jordan á meirihlutann í Charlotte Bobcats og varð að hætta við þátttöku vegna verkbanns leikmanna NBA. Couples valdi John Cook til  þess að taka sæti Jordan. „Meðan þessi verkalýðsmál innan NBA eru óleyst þá fannst mér sem meirihluta eiganda Charlotte Bobcats nauðsynlegt að vera áfram í Bandaríkjunum,” sagði Jordan í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 02:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur í 10. sæti á SCVB Pacific Invitational eftir 2. dag

Ólafi Birni okkar Loftssyni gekk ekki eins vel  á 2. degi á  SCVB Pacific Invitational, en eftir 1. dag var hann í 1. sæti á mótinu.  Á 2. degi spilaði hann á +7 yfir pari, var á 78 höggum og er því samtals búinn að spila á 143 höggum.  Skorkort Ólafs Björns var ansi skrautlegt en á því gaf m.a. að finna 2 skramba, 4 skolla og 2 fugla. Ólafur Björn er í 10. sæti eftir 2. dag.  Lið Ólafs Björns, Charlotte deilir 4. sætinu með Kansas State á mótinu. Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis á lokahringnum í dag ! Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 11 – Amy Pascoe

Í gær fjölluðum við um John Duncan Dunn, bróður Seymour Gourlay Dunn, son Tom Dunn og barnabarn Willie Dunn eldri.  John var frábær golfkennari og meðal fyrstu nemenda hans var Amy Pascoe, fyrsta konan sem við fjöllum um hér í greinaröðinni kylfingum 19. aldar. Pascoe fjölskyldan samanstóð af verðbréfamiðlaranum Wallis og móður hans Agnes og systur Wallis, Amy (1866-1917).  Þau fluttust í Bracken Hill í Woking 1895, þegar Amy var 29 ára. Amy var góður íþróttamaður, sérlega fær í golfi  og var m.a. skyld tónskáldinu Dame Ethel Smyth (1858-1944) og keisaraynju Frakklands, Eugenie (1826-1920), sem gift var Napoleon III. Breska áhugamannameistaramóti kvenna (The British Ladies Amateur Golf Championship) var hleypt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2011 | 19:00

Hver er kylfingurinn: Sergio Garcia? 2/3 grein

Töpuð tækifæri á risamótum Snemma árs 2007 varð Sergio García fyrir mikilli gagnrýni þegar hann spýtti í bikarinn á WGC-CA Championship eftir þrípútt. Eftir að hann komst ekki í gegnum niðurskurð á tveimur fyrstu risamótum ársins 2007, þá gekk betur á Opna breska, sem er uppáhaldsrisamót Sergio af  risamótunum 4 … á Carnoustie linksaranum. Hann var í forystu þrjá fyrstu daga mótsins og var með 3 högga forystu fram yfir Steve Stricker og 6 högga forystu yfir afganginn af keppendum í byrjun 4. dags. Snemma á 4. degi jók hann m.a. forystu sína í 4 högg en svo fékk hann skolla á 5., 7. og 8. holu brautarinnar, sem  færði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2011 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gary Player – 1. nóvember 2011

Afmæliskylfingur dagsins í dag er ein af lifandi golfgoðsögnunum 3: Gary Player. Gary Player fæddist 1. nóvember 1935 í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og er því 76 ára í dag. Gary sigraði 9 sinnum í risamótum á ferli sínum sem atvinnumaður í golfi: Masters: 1961, 1974, 1978 Opna bandaríska: 1965 Opna breska: 1959, 1968, 1974 PGA Championship: 1962, 1972 Þessir 9 sigrar ásamt 9 sigrum hans á risamótum Champions Tour gera það að verkum að hann er álitinn einn af yfirburðakylfingum í sögu golfsins.  Gary Player var tekinn í frægðarhöll kylfinga (World Golf Hall of Fame) árið 1974. Gary hefir sigrað í 165 mótum í 6 heimsálfum á 6 áratuga ferli Lesa meira