
Afmæliskylfingur dagsins: Dave Stockton – 2. nóvember 2011
Afmæliskylfingur dagsins í dag er Dave Stockton, sem á 70 ára stórafmæli.
David Knapp Stockton fæddist 2. nóvember 1941 í San Bernardino, Kaliforníu. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1964 eftir veru í University of Southern Californía. Hann á að baki 25 sigra sem atvinnumaður, þar af 10 á PGA Tour. Stockton hefir tvívegis sigrað á risamótum, þ.e. PGA Championship árin 1970 og 1976. Árangur hans í öðrum risamótum er líka góður hann deildi t.a.m. 2. sætinu á Masters 1974 og Opna bandaríska 1978.
Stockton hefir spilað á Seniors Tour (nú Champions Tour) frá árinu 1991 og sigrað þar 14 sinnum.
Stockton var í Ryder Cup liði Bandaríkjanna 1971 og 1977. Hann var fyrirliði sigurliðs Bandaríkjanna í Ryder Cup 1991, þegar mótið fór fram á Kiawah Island.
Á ferli sínum hefir Stockton þótt meðal þeirra allra bestu í stutta spilinu og þá helst púttunum. Hann skrifaði m.a. frábæra kennslubók um pútt: „Dave Stockton’s Putt to Win“.
Dave er kvæntur fegurðardrottningunni Katherine Hales (Orange Show) og eiga þau 2 syni sem báðir eru atvinnukylfingar, Dave Jr. og Ron.
Til þess að sjá kennslumyndskeið þar sem afmæliskylfingurinn okkar kennir okkur að pútta smellið HÉR:
Til þess að sjá kennslumyndskeið þar sem afmæliskylfingurinn okkar kennir okkur að chippa smellið HÉR:
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag: Karitas Sigurvinsdóttir, GS, f. 2. nóvember 1963.
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- október. 1. 2023 | 16:16 Ryder Cup 2023: Áhangendur streymdu á Marco Simone eftir sigur liðs Evrópu 16,5-11,5
- október. 1. 2023 | 15:40 Ryder Cup 2023: Fleetwood innsiglar sigur liðs Evrópu!!!
- október. 1. 2023 | 15:10 Ryder Cup 2023: Hovland, Rory og Hatton unnu sínar viðureignir – Rahm hélt jöfnu – Vantar bara 1/2 stig núna!!!
- október. 1. 2023 | 12:00 Ryder Cup 2023: Tvímenningsleikir sunnudagsins
- október. 1. 2023 | 08:00 Ryder Cup 2023: Evrópa 10,5 – Bandaríkin 5,5 e. 2. dag
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023