Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hisayuki Sasaki – 27. nóvember 2011

Hisayuki Sasaki fæddist 27. nóvember 1964 í Tokyo og er því 47 ára í dag. Hann hefir unnið þrívegis á japanska PGA og eins var hann meðal topp 100 á heimslistanum eitt sinn. Hann spilaði á bandaríska PGA 1996 en árangur hans þar var slakur hann náði aðeins þrívegis að vera meðal efstu 25 í mótum. Besta árangri sínum á PGA náði hann árið 1997 þegar hann varð í 3. sæti á  Andersen Consulting World Championship of Golf.

Með því að smella hér má sjá sveiflu afmæliskylfingsins okkar: HISAYUKI SASAKI

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Þráinn Farestveit, GK, 27. nóvember 1964 (47 ára); Danielle Ammaccapane, 27. nóvember 1965 (46 ára).

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is