Afmæliskylfingar dagsins: Húbert Ágústsson, GVS og Ólafur Már Sigurðsson, GR -11. desember 2011
Það eru tveir góðir íslenskir kylfingar sem eru afmæliskylfingar dagsins að þessu sinni: Húbert Ágústsson, GVS og Ólafur Már Sigurðsson, GR. Húbert Ágústsson fæddist 11. desember 1973 og er því 38 ára í dag. Hann er vallarstjóri Kálfatjarnarvallar Golfklúbbs Vatnsleysustrandar (GVS). Húbert er kvæntur Kristjönu Þóreyju Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn, Ágúst Axel, 7 ára og Katrínu Önnu 2 ára.Húbert kemur úr mikilli golffjölskyldu en segja má að flestallir fjölskyldumeðlimir séu í golfi; þ.á.m. foreldrar hans Ágúst Húbertsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis og Hrafnhildur Þórarinsdóttir, GK og FH-ingur með meiru og bróðir hans Ólafur Þór Ágústsson, núverandi framkvæmdastjóri golfklúbbsins Keilis og systir, Birna Ágústsdóttir, GK. Kvitta fyrir á Facebooksíðu Lesa meira
Evróputúrinn: Alvaro Quiros í 1. sæti í Dubai – Luke Donald í 1. sæti á peningalista Evrópumótaraðarinnar (og PGA)
Spænski kylfingurinn Alvaro Quiros vann nú í þessu Dubai World Championship á samtals -19 undir pari, samtals 269 höggum (68 64 70 67). Fyrir síðustu holuna var aðeins 1 höggs munur á Quiros annars vegar og Donald og Lawrie hins vegar. Quiros gerði sér hins vegar lítið fyrir og setti niður skrímslapútt fyrir ERNI á 18.- Æðilegur endir á æðislegur spili hjá Quiros! Hann sagðist loks ætla að halda upp á sigurinn með góðri máltíð og langri ferð heim. Í 2. sæti varð Skotinn Paul Lawrie á -17 undir pari, samtals 271 höggi (65 73 66 67). Í þriðja sæti varð svo Luke Donald á -16 undir pari, samtals 272 Lesa meira
Myndir: Skötuveislan í Sandgerði hjá GSG
Í gær, 10. desember 2011 var haldin árleg veisla hjá Golfklúbbi Sandgerðis, Skötuveislan. Þar var í boði einhver sú nammilegasta skata sunnan Vestfjarða, auk annarra snilldarlegra fiskrétta á borð við plokkfiskinn, sem einn og sér er ferðarinnar virði í Sandgerði. Færri komust að en vildu í gær vegna aftakaveðurs. Jafnvel innanbæjar í Sandgerði í gær var erfitt að komast á milli húsa. Það stöðvaði þó ekki skötuaðdáendur sem spóluðu margir hverjir í hjólförunum á leið sinni milli húsa og á golfvöllinn. Það gefur auga leið að ekkert var hægt að spila golf, þar sem snjór er yfir Kirkjubólsvelli, en mörg undanfarin ár hefir verið hægt að spila þennan dásemdarvöll um Lesa meira
LET: Caroline Hedwall sigraði í Indlandi
Nýliðinn á LET og Solheim Cup þátttakandinn 2011, sænska stjarnan Caroline Hedwall, er svo sannarlega búin að slá í gegn í ár á LET. Og nú bætir hún enn einni rósinni í hnappagatið á Páfuglavellinum í Nýju Dehli á Indlandi. Caroline Hedwall sigraði í dag á Hero Women´s Indian Open! Caroline er í einu orði sagt: „Frábær!“ Fyrir sigurinn hlaut hún € 33.750,- Caroline Hedwall lauk leik í dag á -12 undir pari, samtals 204 höggum (67 68 69). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir varð Pornanong Phatlum frá Thaílandi á -10 undir pari, 206 höggum (67 69 70). Í 3. sæti varð síðan Becky Morgan frá Wales á Lesa meira
Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 2
Hér fer 2. grein af 8, þar sem golffréttamenn Golf Digest rifja upp kynni sín af Lorenu Ochoa. Lorena eignaðist fyrsta barn sitt s.l. fimmtudag, 8. desember 2011, sem þegar hefir hlotið nafnið Pedro Conesa og hætti kepppnisgolfi til þess að geta helgað sig fjölskyldunni. Hér fer grein nr. 2: Forverarnir dást að henni (Lorenu Ochoa) eftir Billy Fields „Það er ekki bara að Lorena Ochoa hafi virðingu samtímamanna sinna heldur einnig þeirra, sem þykja meðal þeirra bestu allra tíma á LPGA . Fyrir 2 árum þegar Ochoa hafði sigrað á 4 mótum í röð, hafði ég þá ánægju að fá að taka viðtal við Mickey Wright (sem á að Lesa meira
Góð golfráð frá Harvey Penick (höfund „Litlu rauðu bókarinnar“)
Hér á eftir fer í lauslegri þýðingu ágæt grein Roger Schiffman, eins ritstjóra Golf Digest: „Ég var að fara í gegnum nokkur gömul eintök af Golf Digest og rakst þá á eintak af mest selda blaði allra tíma hjá 0kkur (á Golf Digest) maíheftið 1992. Jack Nicklaus var ekki á forsíðunni og ekki heldur Tom Watson eða Lee Trevino eða Greg Norman. Ekki heldur Seve eða Arnie. Og Tiger hafði á þeim tímapunkti unnið fyrsta unglingamót sitt. Nei, maðurinn á forsíðunni var hinn 87 ára Harvey Penick, fyrrum þjálfari University of Texas og yfirkennari í Austin Country Club. Viturleg ráð gamla mannsins, sem færð voru í ritað form með aðstoð Lesa meira
GO: Ingi Þór Hermannsson áfram formaður – félagsgjöld hækka úr 83.000 í 88.000 árið 2012
Aðalfundur Golfklúbbsins Odds (GO) var haldinn þriðjudaginn 29. nóvember s.l. í golfskála GO að Urriðavelli. Fundurinn var vel sóttur en um 120 manns mættu á fundinn. Engar stórvægilegar breytingar urðu á stjórn klúbbsins. Ingi Þór Hermannsson er áfram formaður og Guðmundína Ragnarsdóttir varaformaður, Þorvaldur Þorsteinsson, ritari og Svavar Geir Svavarsson, meðstjórnandi. Eina breytingin er sú að Kristjana S. Þorsteinsdóttir kom inn sem varamaður fyrir Björgu Þórarinsdóttur. Í ársskýrslu kemur fram að rekstrartekjur hafi verið kr. 128.863.063 og rekstrargjöld kr. 129.232.129 sem leiðir til neikvæðs rekstrarhagnaðar upp á (369.066). Að viðbættum vaxtatekjum og frádregnum vaxtagjöldum stendur eftir tap upp á kr. 82.515,- Ákveðið var á aðalfundi að hækka félagsgjöld fyrir næsta ár um 5.000,- Lesa meira
Sam Hutsby leiðir á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar: var á 60 höggum í dag!
Enski kylfingurinn Sam Hutsby, frá Portsmouth,var í roknaformi á opnunardegi lokaúrtökumóts Evrópumótaraðarinnar í PGA Catalunya Resort og er með 3 högga forystu eftir að hafa hrifið alla með sér með hring upp á -10 undir pari, 60 höggum. Hutsby hafði tækifæri til að endurrita sögu Evrópumótaraðarinnar á par-5 18. brautinni þar sem hann var að pútta fyrir erni og skori upp á 59 högg – nokkuð sem aldrei hefir tekist í Q-school Evrópumótaraðarinnar. Þrátt fyrir að ná aðeins fugli náði hinn 23 ára Sam Hutsby að tryggja sér lægsta skor dagsins. Hutsby, sem varð í 48. sæti á lista Áskorendamótaraðarinn er að leitast við að verða einn af 30 strákum Lesa meira
Rory McIlroy:„Þetta er búið“ – Heilsuleysi hrjáir hann
„Þetta er búið“ sagði Rory McIlroy niðurdreginn eftir að hann datt úr 3. sæti í það 8. á Dubai World Championship. Hann átti tækifæri með því að sigra í mótinu að ná 1. sæti peningalistans yrði Luke Donald, sem er nr. 1 á heimslistanum í sæti neðar en því 9. Það er fátt sem virðist geta stöðvað það að Luke hljóti peningatitilanna bæði á bandaríska PGA og tryggi sér efsta sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar á morgun. Um það að Luke taki 1. sæti peningalistans sagði Rory: „Hann (Luke Donald) á það skilið.“ Heilsuleysi hefir hrjáð Rory en haft var eftir ónafngreindum starfsmanni umboðsskrifstofu Rory að hann væri með of lítið af Lesa meira
Myndskeið: Högg ársins á PGA nr. 7 – Luke Donald á CMN Hospital Classic
Luke Donald er í 4. sæti á Dubai World Classic og hársbreidd frá því að tryggja sér peningatitilinn á Evróputúrnum. Fari svo að hann verði meðal efstu 9 í Dubai á morgun færist nafn hans á spjöld golfsögunnar – því þá verður hann sá fyrsti til að verða efstur á peningalista beggja mótaraða PGA mótaraðarinnar bandarísku og Evróputúrsins sama árið. Luke Donald er nú þegar búinn að tryggja sér 1. sætið á peningalista PGA mótaraðarinnar. Það gerði hann m.a. með glæsilegu 15 metra pútti á CMN Hospital Classic mótinu. Púttið setti hann niður á par-3 15. brautinni og innsiglaði þar með 6. fuglinn sinn í röð á þessum glæsihring. Púttið Lesa meira









