Afmæliskylfingur dagsins: Tiger Woods – 30. desember 2011
Afmæliskylfingur dagsins í dag er Eldrick Tont „Tiger“ Woods. Tiger fæddist 30. desember 1975, í Cypress, í Kaliforníu og er því 36 ára í dag.
Hann hefir spilað golf frá 2 ára aldri og þótti undrabarn, sjá má myndskeið með honum bláungum þar sem hann kom fram í sjónvarpsþættinum „The Michael Douglas Show“ ásamt Bob Hope, með því að smella HÉR:
Tiger ólst upp í Kaliforníu þar sem hann sigraði næstum öll mót í sínum aldursflokki og oft krakka sem voru mun eldri en hann.
Tiger var aðeins 3 ára þegar hann spilaði 9 holur undir 50 höggum. Fyrsta skiptið sem það gerðist var hann á 48 höggum og spilaði af rauðum teig á Destroyer golfvellinum. Hann var aðeins með 3 kylfur í pokanum.
Þarna var svo komið að koma varð þessu undrabarni í hendur golfkennara. Fyrsti golfkennari Tigers var Rudy Duran, sem kenndi Tiger á aldursbilinu 4-10 ára.
Undir handleiðslu Rudy Duran náði Tiger góðum árangri.
Þannig var Tiger aðeins 8 ára þegar hann „breakaði“ 80 í fyrsta sinn og sama ár vann hann keppnina „The Junior World Ten- and under golf tournament“ þ.e. „heimsmeistaramót barna í golfi undir 10 ára aldri“, gegn mörgum sér eldri krökkum.
Sama ár, 1984, átta ára gamall vann Tiger 9-10 mótið á Junior World Golf Championships (barna-og unglingameistaramótaröðina í golfi) í yngsta aldursflokk, sem hægt var að skrá hann í. Hann vann þessa mótaröð alls 6 sinnum, þ.á.m. 4 ár í röð frá 1988-1991 (þ.e. 12-15 ára).
Tiger var 12 ára þegar hann „breakaði“ 70 í fyrsta sinn.
Loks mætti geta að 13 ára gamall spilaði Tiger hring með John Daly á „Insurance Youth Golf Classic mótinu“ í Texarcana Country Golf Club í Arnkansas. Eftir 9 holur var Tiger 3 undir pari og átti 2 högg á Daly, sem er 9 árum eldri en Tiger. Daly, hræddur um að tapa fyrir 13 ára strák, herti sig upp, setti niður 4 fugla og vann leikinn. Tiger varð í 2. sæti á mótinu, þar sem þátt tóku 20 atvinnumenn og 60 ungir kylfingar.
Tiger útskrifaðist frá Western High School árið 1994, þá 18 ára og var kosinn „líklegastur til að ná árangri“ meðal bekkjarsystkina sinna. Öll menntaskólaár sín lék hann með golfliði skólans undir stjórn þjálfara síns Don Crosby. Eftir menntaskólann lá leiðin í Stanford University, þar sem Tiger spilaði golf öll háskólaár sín og lagði stund á hagfræði.
Með fréttatilkynningunni „Hello World,“ gerðist Tiger Woods atvinnu- kylfingur í ágúst 1996 og undirritaði við það tilefni stóra samninga upp á $40 milljónir við Nike Inc. og upp á $20 milljónir við Titleist.
Tiger vann sig fljótt upp í að verða kylfingur nr. 1 í heiminum, en árið, en árið 2010 og þar til í blálokin á þessu ári eru þau verstu á ferli hans; Hann varð að stíga af stalli fyrir Lee Westwod og var „bara“ nr. 2 í heiminum og fór m.a. niður í 58. sæti á heimslistanum í ár, en er nú í 23. sæti eftir sigur á Chevron móti sínu nú fyrr í mánuðnum.
Tiger hefir m.a. 10 sinnum verið valinn kylfingur ársins á PGA mótaröðinni.
Hann er eftir sem áður hæst launaði íþróttamaður heims, skv. Sports Illustrated eru laun hans $ 90.500.000, en skv. Forbes $105 milljónir. Áætlað er að hreinar eignir Tigers (eftir skilnaðinn og önnur gjöld) séu $500 milljónir, þ.e. hálf billjón bandaríkjadala, árið 2010 og hann virðist vera að endurtaka leikinn í ár 2011, er langtekjuhæstur af íþróttamönnum.
Tiger hefir sigrað á 14 risamótum, sem er næstbesti árangur karlkylfings í golfsögunni, aðeins Jack Nicklaus stendur honum enn sem komið er framar, með 18 sigra.
Jafnframt hefir Tiger sigrað í 72 skipti á mótum á PGA mótaröðinni, sem er 3. besti árangur kylfings í golfsögunni.
Fyrir rúmlega tveimur árum síðan, 11. desember 2009 tilkynnti Tiger að hann ætlaði sér að taka leyfi frá golfi og einbeita sér að því að bjarga hjónabandi sínu og hinnar sænsku Elínar Nordegren, en hann viðurkenndi að hafa haldið framhjá henni með fjölmörgum konum, m.a. Rachel Uchitel, sem nú er ófrísk og Golf 1 birti grein um í gær.
Tiger sneri sér þó aftur að því að spila á mótum 8. apríl 2010, þegar hann tók þátt í Mastersmótinu eftir 20 vikna hlé frá golfi; en hjúskap hans og Elínar lauk með skilnaði 24. ágúst 2010.
Árin 2008-2011 hafa reyndar verið erfiðleikaár á ferli Tigers, ekki einungis á sviði einkalífsins, heldur hrjáðu ýmis meiðsl kappann, hann gekkst t.d. undir uppskurð á hné 2008 og í kjölfarið rifnaði hásin, nokkuð sem tók Tiger tíma að jafna sig á en meiðslin gera öðru hvoru vart við sig. Eins sagði hann sig t.d. úr Players-mótinu, 9. maí 2010, vegna einskonar hálsrígs eða stífleika í hálsvöðvum, sem olli að sögn Tigers dofa í fingrum, sem aftur kom niður á sveiflu hans.
Tiger er búddistatrúar og hefir alla tíð sótt styrk í trúna á erfiðleikatímum.
Tiger á tvö börn með Elínu: Sam Alexis (f. 2007) og Charlie Axel (f. 2009). Faðir hans var Earl Woods (1932-2006) og móðir hans er Kultida (Tida) Woods (f. 1944). Hann er eina barn úr hjónabandi þeirra en á tvo hálf-bræður, Earl Jr. (f. 1955) og Kevin (f. 1957), og eina hálf-systur, Royce (f. 1958), en þau eru börn úr 18 ára hjónabandi Earl Woods og fyrri konu hans, Barbara Woods Gray.
Í ár hefir Tiger frá því snemma í vor átt í sambandi við 22 ára háskólanema frá Ohio, Alyse Johnston (sjá mynd hér að ofan), sem þó hefir borið allar sögusagnir um það tilbaka. Hún segir að hún og Tiger hafi bara verið að skemmta sér saman og hann sé ekki kæresti sinn. Hún á m.a. að hafa sagt: „I´m just not that into him“, sem er útúrsnúningur eftir bók með svipuðum titli.Mikið var gert úr því þegar Alyse var stöðvuð vegna gruns um ölvun við akstur og slúðurdálkarnir fullir af lögreglumyndinni (ens.: mug shot) sem tekin var af henni við það tækifæri. Alyse fékk þá flugu í höfuðið að hún vildi þjálfa fyrir LPGA og stjúpfaðir hennar, sem er háttsettur innan IMG, umboðsskrifstofu Tigers, fékk henni kennara, sem kynnti Alyse og Tiger. Ekkert hefir heyrst um samband þeirra í langan tíma (eða frá því í apríl 2011) og ekkert liggur fyrir um hver er konan í lífi Tiger í dag.
Hér má loks sjá enn eina 36 ára afmælisgrein um þennan fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Tiger Woods, smellið HÉR:
Framangreint er samsteypa af 2 greinum greinarhöfundar, sem hafa birst áður á iGolf.is þann 25. janúar 2010 og 30. desember 2010 – en birtast hér uppfærðar og aðeins breyttar.
Heimild: Wikipedia (að hluta)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Kris Tschetter, 30. desember 1964 (47 ára).
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024