
GK: Kaupið almanak til styrktar æfingaferðar unglinga GK á Costa Ballena!
Unglingarnir í Keili eru að fara í æfingaferð á Costa Ballena á Spáni. Fjáröflun fyrir ferðina hefir staðið yfir í vetur og stendur enn. Nú getið þið styrkt unglingana í Keili með því að kaupa almanak. Þess mætti geta að Golf1 verður með kynningu á Costa Ballena, sem er einn af 21 golfvöllum og golfstöðum á Costa de la Luz í Cádiz, sem kynntir verða næstu daga og hefst kynning golfvallanna með viðtali við Hörð Arnarson og kynningu á Arcos Gardens golfvellinum á laugardaginn n.k. En það er um að gera að kaupa almanak og styrkja unglingana í Keili!
Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis er eftirfarandi frétt um fjáröflunina:
„Unglingarnir í klúbbnum eru að fara í æfingaferð til Costa Ballena á Spáni nú í mars.
Töluverður kostnaður fylgir slíkri ferð og hefur verið farið í ýmsar fjáraflanir af því tilefni.
Vinsamlegast smellið á mynd til að sjá auglýsingu eða lesið meira.
Í upphafi desember var flöskum bæjarbúa safnað saman í flöskufjall af áður óþekktri stærð.
Á Þorláksmessu var haldin skötuveisla í golfskálanum, þar sem um 120 manns mættu og gæddu sér á kræsingum.
Á Áramótapúttmótinu í Hraunkoti var þraut með vinningspotti eyrnamerkt íþróttastarfinu
Við viljum þakka þeim sem mættu á þessa viðburði og styrktu gott málefni og nutu vonandi góðs af í leiðinni.
Nú er komið að næsta lið söfnunarinnar og leitum við þá á náðir ykkar félagsmanna.
Búið er að útbúa Golfalmanak 2012, fallegt dagatal, í A4 stærð, sem skartar mynd af einum okkar fremsta kylfingi, Tinnu Jóhannsdóttur, í keppni á Hvaleyrinni.
Á dagatalinu eru allir helstu golfviðburðir ársins 2012 tilgreindir.
Verð á dagatalinu er eingöngu 1000 kr, sent heim að dyrum.
Það eina sem þarf að gera er að svara þessum pósti ( pga@keilir.is) og tilgreina fjölda dagatala sem óskað er.
Síðan að leggja tilsvarandi upphæð inn á reikning unglingastarfsins.
1101-05-400733 kt. 6801696919
Ef þú hefur óskir um að greiða á annan hátt, vinsamlegast hafðu þá samband við skrifstofu golfklúbbsins.
Bestu óskir um lækkandi forgjöf og velfarnað á komandi ári
Foreldraráð Golfklúbbsins Keilis“
- janúar. 20. 2021 | 10:00 Paulina Gretzky talar um samband sitt við DJ
- janúar. 20. 2021 | 09:30 Thorbjørn Olesen með Covid-19
- janúar. 20. 2021 | 07:30 Spurning hvort Olympíuleikarnir fari fram 2021?
- janúar. 20. 2021 | 07:00 Haraldur Júlíusson látinn
- janúar. 20. 2021 | 06:00 GM: 40 ár frá stofnun GKJ
- janúar. 19. 2021 | 19:00 GA: Veigar hlaut háttvísibikarinn 2020
- janúar. 19. 2021 | 18:00 Paige Spiranac segir Tiger ekkert skrímsli þrátt fyrir framhjáhald
- janúar. 19. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tommy Fleetwood – 19. janúar 2021
- janúar. 19. 2021 | 10:00 PGA: Jon Rahm dregur sig úr móti vikunnar
- janúar. 18. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðný María Guðmundsdóttir – 18. janúar 2021
- janúar. 18. 2021 | 12:00 Hver er kylfingurinn: Kevin Na?
- janúar. 18. 2021 | 01:30 PGA: Na sigraði á Sony Open
- janúar. 18. 2021 | 00:01 Thomas missir Ralph Lauren sem styrktaraðila
- janúar. 17. 2021 | 21:00 GA: Lárus Ingi kylfingur ársins 2020
- janúar. 17. 2021 | 20:00 Tiger: „Hún brosir ekki núna!“