Magnús Birgisson, golfkennari. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 6. 2012 | 18:00

GO: Skellið ykkur á grunnnámskeið í golfi hjá Magnúsi og Phill í MPgolf!

Nú þegar vetur konungur ríkir og ekkert er hægt að spila golf utan dyra er um að gera að skella sér til golfkennara og láta hann/þá fara yfir sveifluna innandyra. MPgolf, þeir Magnús Birgisson og Phill Hunter bjóða nú upp á grunngolfnámskeið. Hér eru nánari upplýsingar um námskeiðið:

Staðsetning: Inniaðstaða GO í Kauptúni í Garðabæ ( hlýtt og notalegt).
Markhópur: Allir sem hafa áhuga á að bæta grunnatriðin í sveiflunni.

Hópur 1.    KL: 12.00-13.00

Þriðjudaginn  17. janúar.
Fimmtudaginn 19. janúar.
Þriðjudaginn  24. janúar.
Fimmtudaginn 26. janúar.

Hópur 2.    KL: 18.00-19.00

Þriðjudaginn  17. janúar.
Fimmtudaginn 19. janúar.
Þriðjudaginn  24. janúar.
Fimmtudaginn 26. janúar.

Kennarar: Magnús Birgisson og Phill Hunter.

Verð: Kr. 9500

Videoupptaka og greining hjá hverjum og einum.

Skráning á námskeiðið er í síma 618-1897 og 898-7250 eða mpgolfkennsla@hotmail.com