Epli Opið Mót á Hvaleyrinni – 20. ágúst 2011
Pókerspilarinn Sergio
Sergio Garcia er mörgum hæfileikum búinn. Þegar hann er ekki að spila golf tekur hann þátt í öðrum mótum. Þegar hann tók sér frí keppnistímabilið 2010 spilaði hann golf með klúbbi sínum CF Borriol á Spáni, sem hann á og er forseti í og hann var líka á æfingum með golfkennurum klúbbsins þegar færi gafst. En nú er hann búinn að snúa sér að mótum annarrar tegurndar. Hann hóf árið 2012 á því að spila í pókermóti: the PokerStars Caribbean Adventure, sem er eitt af virtustu pókermótunum. Margir kylfingar kunna vel við póker (og/eða casínó, veðmál o.s.frv) og Sergio er þar engin undantekning – hann er líka nokkuð góður og Lesa meira
PGA: Kanadamaðurinn Graham DaLaet átti frábæran hring á Sony Open – 63 högg!
Kanadamaðurinn Graham DeLaet spilar á Sony Open og PGA Tour á læknisundanþágu. Hann þarfnast $668,166 í verðlaunafé í 26 PGA Tour mótum, sem hann hefir þátttökurétt í, til þess að halda kortinu sínu. Verðaunafé fyrir 1. sætið á Sony Open í Hawaii í þessari viku er $990,000. DeLaet spilaði í nótt fyrsta hringinn á Sony Open á 63, höggum, þ.e. -7 undir pari og í augnablikinu leiðir hann á mótinu þó margir eigia eftir að koma inn. Haldi hann áfram á sömu nótum næstu 3 hringi er hann búinn að tryggja kortið sitt. „Það myndi vera frábær byrjun á árinu,“ sagði DeLaet. Hann er með $10,472 forskot því hann fær Lesa meira
PGA: DaLaet leiðir eftir 1. hring – Nýliðinn Bud Cauley stendur sig vel – Myndskeið af erni Ryo Ishikawa á 18. brautinni á Waialea
Í dag hófst á Waialea á Hawaii, Sony Open. Þegar þetta er skrifað (kl. 2:00) föstudagsnóttina 13. janúar 2012 er Kanadamaðurinn Graham DaLaet sem leiðir eftir 1. hring, sem hann spilaði á 63 glæsihöggum, þ.e. -7 undir pari. Þeir sem deila 2. sætinu eru: Svíinn Carl Petterson, KJ Choi frá Suður-Kóreu og Bandaríkjamaðurinn Kyle Reifers, allir á -5 undir pari hver. Nýliðinn Bud Cauley er að gera góða hluti – deilir 5. sætinu. sætinu á -4 undir pari, ásamt nokkrum öðrum, en á 1 holu óspilaða. Hinir sem deila 5. sætinu með Bud eru allt Bandaríkjamenn: Webb Simpson, Ken Duke, Colt Knost, Doug LaBelle, Pat Perez og einn Kanadamaður: Lesa meira
Púttmót Keiliskvenna hefjast 18. janúar n.k. – Frábært púttnámskeið hjá Jóhanni golfkennara í gær!
Í gær hittust Keiliskonur í tíma hjá Jóhanni Hjaltasyni, golfkennara og fór hann yfir undirstöðuatriðin í púttum. Þessi tími var hugsaður sem undirbúningur, en vikutíminn fram á næsta miðvikudag verður notaður til að æfa púttstrokuna og verða Keiliskonur til alls vísar þegar fyrsta mótið byrjar, miðvikudaginn 18. janúar n.k. kl. 19:30 stundvíslega. Í tilkynningu frá kvennanefnd Keilis segir eftirfarandi: „Vetrarstarfið verður með hefðbundnum hætti, púttmót keiliskvenna verða á miðvikudögum frá kl. 19.30 – 20.30 í inniaðstöðunni okkar í Hraunkoti. Mótin eru eingöngu ætluð konum úr Keili. (Kvenna)púttmótin byrja síðan miðvikudaginn 18. janúar og verða vikulega þaðan í frá, alls 10 mót. Lokamótið verður 21.mars. Í hverju móti eru spilaðar 18 holur, tveir hringir í hvert skipti Lesa meira
Evróputúrinn: Damien McGrane og Jamie Elson leiða á Joburg Open þegar móti er frestað vegna þrumuveðurs
Írinn Damien McGrane var á 63 höggum, sama skori og Englendingurinn Jamie Elson og leiða þeir eftir 1. hring Joburg Open, en mótinu var frestað vegna þrumuveðurs. McGrane fékk 5 fugla á fullkomnum fyrri 9, sem hann spilaði á 31 höggi á Royal Johannesburg and Kensington’s West golfvellinum, þar sem flestir voru á lágu skori í dag. McGrane er 40 ára og hefir aðeins 1 sinni sigrað á Evróputúrnum á Volvo China Open fyrir fjórum árum. Hann fékk tvo fugla í viðbót og chippaði ofan í fyrir erni á 15. holu. Eini gallinn á annars fullkomu skorkorti McGrane var skollinn á 18. braut, en hann var enn með 1 höggs forystu á Lesa meira
Jarrod Lyle telur að gifting hans komi til með að hafa góð áhrif á golfleik hans
Ástralski kylfingurinn Jarrod Lyle telur að hamingja hjónabands hans muni skila sér í golfleik hans. Lyle kvæntist ástinni sinni, Briony 10. desember s.l. í Shepparton í Ástralíu. Jarrod og Briony játtust hvort öðru í lítilli athöfn innan um nánustu vini og fjölskyldu. Athöfnin fór fram á heimili afa og ömmu Jarrod, John og Joy, sem áttu 60 ára brúðkaupsafmæli fyrr á árinu 2011. Nú er Jarrod mættur í Waialae Country Club, þar sem Sony Open hefst í kvöld. Jarrod Lyle spilar aftur á PGA Tour vegna þess að hann varð í 5. sæti í Q-school viku fyrir brúðkaup sitt (og er vonandi að hann hafi rétt fyrir sér varðandi áhrif giftingar á Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Harold Horsefall Hilton – 12. janúar 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Harold heitni Horsefall Hilton, en hann fæddist í dag, fyrir 143 árum, 1869 og dó 5. mars 1942. Hann varð 2. áhugamaðurinn til þess að sigra Opna breska. Golf 1 var nú í haust með greinaröð um kylfinga 19. aldar, sem fram verður haldið með, nú á næstunni. Hér má sjá greinina um afmæliskylfinginn: HAROLD HORSEFALL HILTON Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Patty Hayes, 12. janúar 1955; Craig Parry, 12. janúar 1966 (ástralski túrinn) Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Evróputúrinn: Joburg Open hófst í Jóhannesborg, S-Afríku í dag
Í Royal Johannesburg og Kennsington Golf Club í Jóhannesarborg hófst í dag Joburg Open. Svíinn Joel Sjöholm og Skotinn David Drysdale hafa nú þegar lokið 1. hring sínum og hafa tekið forystuna á 65 höggum þ.e. -6 undir pari. Óramargir eiga eftir að ljúka hringjum sínum og verður endanleg stöðugrein eftir 1. hring mótsins birt seinna í dag hér á Golf 1. Heimamaðurinn Retief Goosen á 3 holur óspilaðar þegar þetta er ritað og hefir gengið mjög vel – er á -5 undir pari. Eiginmaðurinn nýbakaði, Roope Blomqvist-Kakko, spilaði á -1 undir pari og ef hann heldur áfram á þessum nótum er vel mögulegt að hann komist í gegnum niðurskurð Lesa meira
GO: Laufey Sigurðardóttir vann 1. púttmót GO kvenna
Fyrsta púttmót vetrarins í púttmótaröð GO kvenna fór fram í Kauptúni í Garðabæ í gær, 11. janúar 2012. Kauptún er innanhúsæfingasvæði Odds á móti IKEA. Alls verða haldin 10 mót, það síðasta 12. mars n.k. Fjórum dögum síðar, 16. mars verður púttdrottning Odds krýnd á konukvöldi GO, en 3 bestu skorin af 10 telja hjá hverjum keppenda. Í gær, á 1. púttmótið mættu 24 konur og sigurvegari kvöldsins var Laufey Sigurðardóttir, GO, sem spilaði 18 holur á 30 glæsilegum púttum. Næstar á eftir henni urðu: 2.-3.Elsa Dóra Grétarsdóttir 31 pútt. 2.-3.Kristín Einarsdóttir 31 pútt. 4. Sigfríð Runólfsdóttir 32 pútt.








