
PGA: DaLaet leiðir eftir 1. hring – Nýliðinn Bud Cauley stendur sig vel – Myndskeið af erni Ryo Ishikawa á 18. brautinni á Waialea
Í dag hófst á Waialea á Hawaii, Sony Open. Þegar þetta er skrifað (kl. 2:00) föstudagsnóttina 13. janúar 2012 er Kanadamaðurinn Graham DaLaet sem leiðir eftir 1. hring, sem hann spilaði á 63 glæsihöggum, þ.e. -7 undir pari. Þeir sem deila 2. sætinu eru: Svíinn Carl Petterson, KJ Choi frá Suður-Kóreu og Bandaríkjamaðurinn Kyle Reifers, allir á -5 undir pari hver.
Nýliðinn Bud Cauley er að gera góða hluti – deilir 5. sætinu. sætinu á -4 undir pari, ásamt nokkrum öðrum, en á 1 holu óspilaða. Hinir sem deila 5. sætinu með Bud eru allt Bandaríkjamenn: Webb Simpson, Ken Duke, Colt Knost, Doug LaBelle, Pat Perez og einn Kanadamaður: David Hearn.
Japaninn Ryo Ishikawa, sem virðist í miklu uppáhaldi á Hawaii meðal áhorfenda, spilaði fyrsta hringinn á +1 yfir pari, en átti ansi skrautlegan hring, þar sem hann fékk 2 fugla, 3 skolla og 1 skramba en auk þess púttaði hann fyrir erni á 18. braut sem sjá má í myndskeiðinu með því að smella hér:
ÖRN RYO ISHIKAWA Á 1. HRING SONY OPEN
Margir eiga eftir að ljúka leik og staðan gæti enn breyst.
Til þess að skoða stöðuna á Sony Open eftir 1. dag smellið hér: STAÐAN Á SONY OPEN EFTIR 1. HRING
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open
- mars. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Arnarson –—- 15. mars 2023