Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Smári Þorsteinsson – 14. janúar 2012
Það er Gunnar Smári Þorsteinsson, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann fæddist 14. janúar 1996 og er því 16 ára í dag. Gunnar Smári hefir frá unga aldri spilað golf, varð t.a.m. í 2. sæti í sínum flokkki (12 ára og yngri pollar) á eftir Kristni Reyr Sigurðssyni í meistaramóti GR, 2008. Hann sigraði strákaflokk í 2. móti Arionbankamótaraðar unglinga að Korpúlfsstöðum, sem fór fram 5. -6. júní 2010. Og í Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2010 setti hann nýtt vallarmet í Leirunni, -3 eða 69 högg og sló þar með út 15-16 ára gamalt met sem Örn Ævar setti á sínum tíma. Hér er aðeins fátt eitt talið af afrekum Gunnars Smára Lesa meira
Suzann Pettersen „slappaði af“ heima í Noregi yfir jólin
Norski kylfingurinn Suzann Pettersen, líka kölluð Tutta, er uppáhaldskvenkylfingur margra. Dugnaðurinn virðist takmarkalaus og nú er hún búin að vinna sig upp í 2. sæti á heimslista kvenna. Enginn nema sjálf Yani Tseng stendur henni framar. Suzann er sá kylfingur á LPGA, sem líklega er í besta forminu. Hún hefir alla tíð lagt mikla áherslu á mikla líkamsrækt samhliða golfinu. Það sýndi sig þegar hún ætlaði að „slappa af“ heima í Noregi yfir jólin, en þá varði hún tíma sínum í „jólafríinu“ í að hamast í innanhústennis á milli þess sem hún var úti á skíðum, enda alla tíð haft mikinn skíðaáhuga. Sjá má nokkrar myndir frá „jólaafslöppun“ Suzann hér Lesa meira
GK: Þorrablót Keilis haldið á Bóndadaginn n.k. – 20. janúar 2012
Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis er eftirfarandi fréttatilkynning um hið gífurlega vinsæla Þorrablót Keilis: „ Hið vinsæla Þorrablót Keilis (verður) haldið á bóndadaginn þann 20. janúar. Dagskráin hefur aldrei verið jafn glæsileg. Veislustjóri verður Randver Þorláksson, fyrrverandi spaugstofumaður, hinn landsfrægi gítarleikari og blúsgoð KK kemur í heimsókn ásamt Þorleifi bassaleikara og írskum gítarleikar að nafni Leo Gillespie. Miðaverð einungis 4500 krónur. Þeim, sem hafa áhuga á miðum, er bent á að hafa annaðhvort samband við skrifstofuna í síma 565-3360 á milli 8 og 16 eða senda tölvupóst á Pétur á póstfanginu pga@keilir.is. “ Sjá má allt nánar um Þorrablótið í auglýsingu hér fyrir neðan:
PGA: Myndskeið – Hápunktar 2. dags á Sony Open – Matt Every leiðir – Spilaði á 64!
Bandaríkjamaðurinn Matt Every er kominn í forystu eftir 2. dag á Sony Open á Waialea, á Hawaii. Hann átti glæsihring í nótt, 64 högg og er því samtals búinn að spila á -10 undir pari, samtals 130 höggum (66 64). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir Matt Kanadamaðurinn David Hearn og Svíinn Carl Pettersson, báðir á samtals -8 undir pari, 132 höggum, David Hearn á (65 67) og Carl Pettersson á (66 66 ). Fjórða sætinu deila síðan Bandaríkjamennirnir Pat Perez og Doug LaBelle II og Suður-Afríkaninn Brandon De Jonge á samtals -7 undir pari, 133 höggum; Pat (66 67); Doug (66 67) og Brandon (71 62), en Brandon Lesa meira
GL: Fyrsta skóflustungan fyrir vélaskemmu GL
Á fréttavef GSÍ var eftirfarandi frétt í gær (13. janúar 2012): „Í gær, 12. janúar var fyrsta skóflustunga tekin fyrir vélaskemmu GL. Jón Ármann Einarsson sá um það vandasama verk. Þar með er formlega hafin bygging á vélaskemmu GL . Um er að ræða rúmlega 500m2 vélaskemmu, húsið sjálft er frá Smellinn hf á Akranesi og er áætlað að steypu á einingunum ljúki um næstu mánaðamót. Byggingarnefnd GL undir styrkri stjórn Halldórs Hallgrímssonar hefur unnið ötullega undanfarnar vikur að þessu verki og hafa nefndarmenn lagt mikla sjálfboðaliðsvinnu í þetta verk, eins hafa allir þeir sem hefur verið leitað til verið tilbúnir að leggja hönd á plóginn. Eins og áður sagði Lesa meira
Evróputúrinn: Robert Rock leiðir þegar 2. hring Joburg Open er frestað vegna þrumuveðurs
Robert Rock er með 1 höggs forystu eftir 2. dag Joburg Open, þar sem þrumuveður og eldingar komu í veg fyrir að hægt væri að klára 2. hring. Englendingurinn bætti hring upp á 67 högg, þ.e. skor upp á -4 undir pari á Vestur-velli Royal Johannesburg and Kensington klúbbsins, við frábæran hring sinn upp á 65 högg fyrri daginn, á erfiðari Austurvellinum og er nú á samtals skori upp á -11 undir pari, þegar mótið er hálfnað. Eftir 4 tíma töf vegna eldinga á fyrsta degi þá var fyrsta verkefni Rock að ljúka 1. hring sínum og eftir að hafa sett niður fuglapútt á 17. og 18. braut var hann Lesa meira
Viðtalið: Andri Þór Björnsson, GR, er að fara í háskólagolfið í Bandaríkjunum n.k. sunnudag
Viðtalið í kvöld er við Andra Þór Björnsson, klúbbmeistara GR 2011, sem er að fara til náms í Bandaríkjunum í Nicholls State. Þar mun hann spila í golfliði háskólans, ásamt þeim Pétri Frey Péturssyni, GR og Kristjáni Þór Einarssyni, GKJ. Hér fer viðtalið við Andra Þór: Fullt nafn: Andri Þór Björnsson. Klúbbur: GR. Hvar og hvenær fæddistu? Ég fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1991. Hvar ertu alinn upp? Ég er bara Borgarbarn, alinn upp í Grafarvogi. Hverjar eru fjölskylduaðstæður? Ég bý hjá pabba og mömmu og á 2 systur. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Ég byrjaði 6-7 ára með pitchingwedge-ið hans pabba. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Mark O´Meara, 13. janúar 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Mark Francis O´Meara, en hann fæddist 13. janúar 1957, í Goldsboro, Norður-Karólínu og er því 55 ára. Helsti frægðartími Mark er um miðjan 9. áratuginn og fram á síðari part 10. áratugarins en hann var næstum 200 vikur á topp-10 á heimslistanum, allt frá upphafi hans árið 1986 og til ársins 2000. O’Meara ólst upp í Mission Viejo í Kaliforníu. Hann byrjaði í golfi 13 ára þegar hann stalst á golfvöllinn í Mission Viejo Country Club. O’Meara varð síðar starfsmaður í klúbbnum og spilaði á menntaskólaárum sínum mikið þar. Hann var All-American í Long Beach State, og vann U.S. Amateur árið 1979, þ.e. viðureignina við John Cook. Eftir Lesa meira
GR: Púttmótaraðir GR-kvenna og karla hefjast 18. og 19. janúar n.k.
Á heimasíðu GR eru eftirfarandi fréttir: GR-KONUR: „Nú er nýtt starfsár kvennanefndar að hefjast og eins og áður verður byrjað á Púttmótaröðinni. Púttað verður 8 miðvikudaga í röð, fyrsta mótið verður 18.janúar!! Húsið opnar kl. 18.30 og púttað verður í 2 hópum (seinni hópurinn byrjar um kl. 20) Þið ráðið hvorn tímann þið veljið. Nýja kvennanefndin er skipuð eftirtöldum kylfingum: Elín Sveinsdóttir formaður ellasveins@gmail.com Eygló Grímsdóttir gjaldkeri eyglo@lysing.is Lilja Viðarsdóttir ritari Anna Lilja Pálsdóttir Björk Guðmundsdóttir Erla Björk Þorgeirsdóttir Halldóra Þorgilsdóttir Margrét Eyrún Birgisdóttir Sandra Margrét Björgvinsdóttir Stella María Vilbergs Kvennanefnd 2011 þakkar fyrir góðar stundir innan vallar sem utan og hlakkar til áframhaldandi skemmtistunda með GR konum.Bestu kveðjur, Anna Björk, Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Epli Opið mót hjá GK – 20. ágúst 2011
Laugardaginn 20. ágúst 2011 fór fram á Hvaleyrinni Epli Opið mót. Leikfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og höggleikur. Eftir 18 spilaðar holur voru Pétur Óskar Sigurðsson, GR og Sveinn Sigurbergsson, GK jafnir í efsta sæti, á -1 undir pari, þ.e. á glæsilegum 70 höggum. Eftir umspil var það Pétur sem stóð uppi sem sigurvegari og tók glæsileg verðlaunin fyrir besta skor – iPad 16GB Wi-Fi. Til þess að sjá myndaseríu úr mótinu smellið hér: EPLI OPIÐ MÓT Á HVALEYRINNI – 20. ÁGÚST 2011 Í efstu 5 sætunum í punktakeppninni urðu eftirfarandi. 1. sæti Bjarki Sigurjónsson, GK, 43 punktar. Hann hlaut í verðlaun iPad 16GB Wi-Fi. 2. sæti Einar Oddur Sigurðsson, GKG, Lesa meira









