
Púttmót Keiliskvenna hefjast 18. janúar n.k. – Frábært púttnámskeið hjá Jóhanni golfkennara í gær!
Í gær hittust Keiliskonur í tíma hjá Jóhanni Hjaltasyni, golfkennara og fór hann yfir undirstöðuatriðin í púttum. Þessi tími var hugsaður sem undirbúningur, en vikutíminn fram á næsta miðvikudag verður notaður til að æfa púttstrokuna og verða Keiliskonur til alls vísar þegar fyrsta mótið byrjar, miðvikudaginn 18. janúar n.k. kl. 19:30 stundvíslega.
Í tilkynningu frá kvennanefnd Keilis segir eftirfarandi:
„Vetrarstarfið verður með hefðbundnum hætti, púttmót keiliskvenna verða á miðvikudögum frá kl. 19.30 – 20.30 í inniaðstöðunni okkar í Hraunkoti. Mótin eru eingöngu ætluð konum úr Keili.
(Kvenna)púttmótin byrja síðan miðvikudaginn 18. janúar og verða vikulega þaðan í frá, alls 10 mót. Lokamótið verður 21.mars. Í hverju móti eru spilaðar 18 holur, tveir hringir í hvert skipti og gildir betri hringurinn. Þær sem skila inn 4 kortum eru gjaldgengar í keppninaPúttmeistari Keiliskvenna 2012.
Á öskudaginn 22. febrúar vonumst við til að flestar konur mæti í „viðeigandi klæðnaði“ eftir það mót verður boðið upp á léttar veitingar. Það verður kosið um besta búninginn og verðlaun fyrir hann veitt á vorhátíðinni.
Við viljum hvetja þær konur sem eru nýjar í Keili að mæta á púttkvöldin því þau eru tilvalin vettvangur til að kynnast öðrum konum í klúbbnum.
Keppnisfyrirkomulag púttmótanna
Mótin hefjast kl. 19.30
Leiknar verða 2 x 18 holur
Mótsgjald er kr.500. Greiða þarf mótsgjald með peningum við getum ekki tekið kort. Við bjóðum upp á kaffi og gos á efri hæðinni eftir mótin, tilvalið er að setjast þar niður eftir hringinn og spjalla.
Púttmeistari Keiliskvenna 2012 verður sú sem er með besta samanlagt skor úr 4 hringjum.
Verðlaunaafhending fyrir púttmótin verður á Kvennakvöldi Keilisföstudaginn 30.mars kl. 20.00 í Golfskálanum. Nánari auglýsing um vorhátíðina verður send út síðar.
Kvennanefndin árið 2012:
Ingveldur Ingvarsdóttir – formaður, sími 698 – 6450
Birna Ágústsdóttir – gjaldkeri
Þórdís Geirsdóttir
Hjördís Sigurbergsdóttir
Margrét Sigmundsdóttir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Upplýsingar um vetrarstarfið og úrslit púttmóta verður sent út í tölvupósti til Keiliskvenna. Þær sem ekki eru á póstlista og vilja fá reglulegar fréttir af kvennastarfinu eru beðnar að senda netfangið sitt tilkvennastarfkeilis@internet.is
Með golfkveðju Kvennanefnd Keilis“
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge
- ágúst. 7. 2022 | 14:50 Íslandsmótið 2022: Perla Sól og Kristján Þór leiða eftir 3. dag
- ágúst. 7. 2022 | 14:30 Íslandsmótið 2022: Lokatilraun til að spila 4. hring verður gerð kl. 16:30
- ágúst. 6. 2022 | 22:00 Íslandsmótið 2022: Hulda Clara og Sigurður Bjarki jöfnuðu vallarmetin á Vestmannaeyjavelli
- ágúst. 6. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (31/2022)
- ágúst. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Doug Ford, Pétur Steinar Jóhannesson og Michel Besancenay – 6. ágúst 2022
- ágúst. 5. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Rútsson – 5. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 14:00 Forsetabikarinn 2022: Davis Love III útnefnir Simpson og Stricker sem varafyrirliða