Ólafur Björn Loftsson komst ekki áfram í úrtökumóti fyrir US Open
Ólafur Björn Loftsson, NK og Charlotte tók þátt í úrtökumóti fyrir US Open risamótið. Úrtökumótið fór fram á Pinehurst golfstaðnum í Norður-Karólínu. Ólafur Björn spilaði á +4 yfir pari, 76 höggum og varð T-58. Átta efstu komust áfram á lokaúrtökumót og hefði Ólafur Björn þurft að spila á 70 höggum til þess að hafa átt möguleika á því að komast áfram. Þátttakendur voru 117, en 10 drógu sig úr mótinu og luku því 107 keppni. Til þess að sjá úrslitin úr úrtökumótinu smellið HÉR:
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2012 (7. grein af 21): Scott Pinkney og Alex Haindl
Í kvöld verður fram haldið að kynna nýju strákana á Evróputúrnum, sem hlutu kortið sitt á Evrópumótaröðina í gegnum Q-school fyrir keppnistímabilið 2012. Spilað var eins og áður á PGA Catalunya golfvellinum, í Girona á Spáni 30. nóvember – 5. desember 2011. Byrjum kynninguna á Alex Haindl. Alex Haindl fæddist 3. febrúar 1983 í Durban, Suður-Afríku og er því 29 ára. Í Suður-Afríku er hann félagi í Schoenman Park GC. Alex hefir spilað á Sólskinstúrnum suður-afríska allt frá því hann gerðist atvinnumaður árið 2000. Besti árangur hans á mótaröðinni var 2006/2007 þegar hann varð í 9. sæti á stigalistanum. Besti árangur hans á Evrópumótaröðinni er T-4 árangur á Joburg Open, árið 2007. Meðal Lesa meira
GBO: Anton Helgi og Unnsteinn unnu á Vormóti Golfklúbbs Bolungarvíkur
S.l. sunnudag, 6. maí 2012 var haldið Vormót hjá Golfklúbbi Bolungarvíkur (GBO). Það voru 9 sem tóku þátt. Leikfyrirkomulag var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Úrslit urðu þau helst að Anton Helgi Guðjónsson, Golfklúbbi Ísafjarðar, vann höggleikinn, var á 75 höggum. Unnsteinn Sigurjónsson, Golfklúbbi Bolungarvíkur, sigraði hins vegar í punktakeppninni, hlaut 37 pkt. Önnur úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur með forgjöf: Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 Alls Mismunur 1 Anton Helgi Guðjónsson GÍ 1 F 41 34 75 4 75 75 4 2 Kristinn Þórir Kristjánsson GÍ 6 F 39 40 79 8 79 79 8 3 Unnsteinn Sigurjónsson GBO Lesa meira
Phil Mickelson og 4 aðrir hlutu inngöngu í frægðarhöll kylfinga – seinni grein
Það voru 5 sem hlutu inngöngu í Frægðarhöll kylfinga í gær: Phil Mickelson, golffréttamaðurinn Dan Jenkins, kylfingurinn og golffréttaskýrandinn í sjónvarpi, Peter Alliss, skoski kylfingurinn Sandy Lyle og LPGA kylfingurinn fv. Hollis Stacy. Hér fyrr í dag (í fyrri grein) hefir í stuttu verið gerð grein fyrir broti úr þakkarræðu Mickelson. Hér má sjá myndskeið með þakkarræðum allra nýju Frægðarhallarkylfinganna 5: VÍGSLA Í WORLD GOLF HALL OF FAME 7. MAÍ 2012 Það voru Dan Jenkins og Peter Alliss m.a. sem komu með húmorinn við vígsluathöfnina í Frægðarhöll kylfinga í gær. Dan Jenkins er 3. golffréttamaðurinn sem kemst í frægðarhöllina, en sá fyrsti sem valinn er í hana í lifanda lífi. Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Raphaël Jacquelin – 8. maí 2012
Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin. Raphaël fæddist 8. maí 1974 í Lyon í Frakklandi og er því 38 ára. Raphaël gerðist atvinnumaður í golfi 1995 eftir að verða franskur meistari. Raphaël hóf ferilinn á Áskorendamótaröðinni. Árið 1997 sigraði hann tvívegis og varð í 4. sæti á peningalistanum þannig að hann komst á Evrópumótaröðina 1998. Það var samt ekki fyrr en í 238. mótinu sem hann tók þátt í á Evrópumótaröðinni að hann vann fyrsta sigur sinn. Það var árið 2005 á Open de Madrid. Hann vann í 2. sinn, 2007 á BMW Asian Open. Besti árangur hans á stigalista Evrópumótaraðarinnar (Order of Merit) var 20. sætið árið 2003. Í Lesa meira
Phil Mickelson og 4 aðrir hlutu inngöngu í frægðarhöll kylfinga – fyrri grein
Phil Mickelson elskaði golf áður en hann var orðinn nógu gamall til þess að ganga eða sveifla kylfu. Golfið hefir leitt hann í gegnum spennandi reið risamótanna, með eftirminnilegu falli oft á tíðum, en það leiddi líka til víxlu hans í Frægðarhöll kylfinga í gær, mánudaginn 7. maí 2012. Phil hlaut inngöngu ásamt tvöföldum sigurvegara risamóta, Skotanum Sandy Lyle, golffréttamanninum Dan Jenkins, Peter Aliss, Lesa meira
Hámarksverðmæti vinninga áhugamanna í golfi 2012
Áhugamennskunefnd GSÍ hefur ákveðið að hámarksverðmæti vinninga, sem áhugamenn í golfi mega veita viðtöku árið 2012, skuli vera eftirfarandi. Samanlagt verðmæti vinninga, sem einstakur keppandi veitir viðtöku í sama golfmóti, má nema allt að kr. 105.000, en allt að kr. 150.000, ef um ferðavinninga er að ræða. Öll verðlaun, sem keppandi kann að vinna til í sama móti, eða mótasamfellu, verða samanlagt að rúmast innan þessara marka. Þar með teljast verðlaun fyrir lengsta upphafshögg, næst holu, verðlaun skv. útdrætti úr skorkortum o.s.frv. Undantekning er ný og breytt regla um verðlaun fyrir að fara holu í höggi við að leika golfhring. Þau má nú greiða út í peningum og engar takmarkanir eru Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Carly Booth?
Hin skoska Carly Booth vann nú um helgina fyrsta titil sinn á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Það gerði hún á heimavelli, en mótið, sem hún vann, var Opna skoska. Þar áður var hún búin að sigra á Dinard Ladies Open, í Saint Briac Sur Mer, í Frakklandi, á LET Access Series, sama móti og Tinna Jóhannsdóttir tók þátt í. En hver er þessi ungi skoski kylfingur? Carly fæddist í Comrie, Skotlandi 21. júní 1992 og verður því 20 ára á árinu. Hún veit það eflaust ekki en hún á sama afmælisdag og íslensk golfdrottning, þar sem er Ragnhildur Sigurðardóttir, GR. Reyndar er 21. júní mikill afmælisdagur kylfinga því aðrir Lesa meira
Ár frá dánardægri Severiano Ballesteros (f. 9. apríl 1957 – d. 7. maí 2011)
Spænska goðsögnin Seve Ballesteros lést í dag fyrir ári síðan og var jarðsettur 4 dögum síðar í heimabæ sínum Pedreña á Spáni. Hann hefði orðið 55 ára 9. apríl í síðasta mánuði. Mitchell Platts skrifaði fallega minningargrein á dánardægri Seve, sem birtist á europeantour.com og fer hluti af henni hér í lauslegri þýðingu: “Seve, bóndasonurinn, sem heillaði golfheiminn frá því augnabliki, sem hann neitaði að gefast upp á Royal Birkdale 1976 hefur tapað þeirri baráttu, sem jafnvel afburða hugrekki hans náði ekki að vinna. Severiano Ballesteros Sota frá Spáni dó í dag (fyrir ári síðan, þ.e. 7. maí 2011) eftir hetjulega baráttu við illkynja heilaæxli, sem hann greindist með, eftir Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Henrik Bjørnstad – 7. maí 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Norðmaðurinn Henrik Bjørnstad. Hann fæddist 7. maí 1979 og er því 33 ára í dag. Bjørnstad er fyrsti kylfingur Norðmanna til þess að spila á PGA Tour en hann varð í 13. sæti á Q-school PGA 2005. Áður spilaði Bjørnstad á Evróputúrnum 1999 og 2001-2004. Fyrsta keppnistímabilið náði hann niðurskurði í 17 mótum af 31 sem hann spilaði í og varð 1 sinni meðal 10 efstu. Þessi árangur varð til þess að hann varð í 152. sæti á peningalista PGA Tour. Árið 2007-2009 spilaði Bjørnstad mestmegnis á Nationwide Tour. Árið 2009 tryggði Bjørnstad sér enn keppnisrétt á PGA Tour með því að verða meðal 25 efstu á peningalista Nationwide Tour. Lesa meira









