
Afmæliskylfingur dagsins: Henrik Bjørnstad – 7. maí 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Norðmaðurinn Henrik Bjørnstad. Hann fæddist 7. maí 1979 og er því 33 ára í dag.
Bjørnstad er fyrsti kylfingur Norðmanna til þess að spila á PGA Tour en hann varð í 13. sæti á Q-school PGA 2005.
Áður spilaði Bjørnstad á Evróputúrnum 1999 og 2001-2004. Fyrsta keppnistímabilið náði hann niðurskurði í 17 mótum af 31 sem hann spilaði í og varð 1 sinni meðal 10 efstu. Þessi árangur varð til þess að hann varð í 152. sæti á peningalista PGA Tour.
Árið 2007-2009 spilaði Bjørnstad mestmegnis á Nationwide Tour. Árið 2009 tryggði Bjørnstad sér enn keppnisrétt á PGA Tour með því að verða meðal 25 efstu á peningalista Nationwide Tour. Reyndar var hann í 18. sæti. En þegar hann náði ekki að halda sér á PGA túrnum eftir árið 2010 var haft eftir honum að hann væri hættur atvinnumennsku í golfi.
Bjørnstad býr í Palm Beach Gardens í Flórída.
Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru : Kathy Ahern 7. maí 1949 – 6. júlí 1996; Craig Wood, 7. maí 1968 (44 ára); Brenden Pappas, 7. maí 1970 (42 ára).
Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023