Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2023 | 14:45
Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu

Franski kylfingurinn Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu 2023, eftir dramatískan lokahring upp á 66. Sigurskor Perez var 18 undir pari, 270 högg (71 65 68 66). Hinn 30 ára Perez átti 1 högg á Min Woo Lee og Sebastian Söderberg, sem deildu 2. sætinu á 17 undir pari, hvor. Slagurinn á lokaholunum var æsispennandi. Svo virtist sem forysta Perez væri að fjara út þegar hann missti teighögg sitt í glompu á par-3 17. brautinni á Yas vellinum. Þá var aðeins 1 högg milli hans og Lee og Söderberg. Hann átti síðan björgunarhögg ævinnar úr glompu sem fór beint ofan í fyrir fugli. Eftir að allir höfðu lokið leik á 17. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2023 | 23:59
LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn

Sigurvegarar síðasta árs á LPGA mótaröðinni keppa nú á móti sem heitir Hilton Grand Vacations Tournament of Champions. Mótið fer fram dagana 19.-22. janúar 2023 í Lake Nona G&CC í Orlandó, Flórída. Fyrir lokahringinn er það kanadíski kylfingurinn Brooke Henderson, sem er í forystu, en hún hefir spilað á samtals 14 undir pari (67 66 69) og hefir 3 högga forystu á þær sem næstar koma, en það eru Nelly Korda og Nasa Hataoka, sem báðar hafa spilað á samtals 11 undir pari, hvor. Brooke Henderson er fædd 10. september 1997 og verður því 26 ára á árinu. Hún á sama afmælisdag og Arnold Palmer! Á ferli sínum hefir hún Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2023 | 20:00
Golfgrín á laugardegi (3/2023)

Einu sinni, að minnsta kosti einu sinni á ævinni, vill Guðmundur ná yfir vatnstorfæruna á fjórtándu. Hann hefur þegar sökkt hundruðum bolta í þessari tjörn. Á þessum sunnudagsmorgni bað hann meira að segja: „Kæri Guð, ef þú ert virkilega til, láttu mig komast yfir vatnshindrunina í dag“. Þegar hann er kominn á fjórtándu braut og tekur einn af gömlu boltunum sínum, sem hann geymir alltaf í vasanum fyrir þessa heimskulegu tjörn, skiljast skýin skyndilega fyrir ofan hann og kröftug rödd hrópar: „Bíddu, bíddu, taktu nýjan, góðan golfbolta.“ Guðmundur tekur glænýjan Titleist PRO V1 2021, 1000 krónu bolta, úr umbúðum, og tíar honum upp … Röddin segir: „Bíddu, bíddu. Taktu æfingarveiflu.“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2023 | 16:00
Afmæliskylfingar dagsins: Alvaro Quiros Garcia, Cindy Schreyer og Haraldur Bilson – 21. janúar 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír: Alvaro Quiros Garcia, Cindy Schreyer og Haraldur Bilson. Haraldur er fæddur 21. janúar 1948 og á því 75 ára afmæli. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið Haraldur Bilson – Innilega til hamingju með 75 ára merkisafmælið!!! Cindy (McCurdy) Schreyer er fædd 21. janúar 1963 og á því 60 ára merkisafmæli í dag!!! Hún byrjaði að spila golf 15 ára og lék í bandaríska háskólagolfinu með University of Georgia og var síðan á Futures Tour (1987-1988) og síðan LPGA (1989-2004). Á árunum 1998-2000 keppti hún undir nafninu Cindy McCurdy. Hún sigraði tvívegis á Futures Tour, þ.e. á Ravine Classic Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2023 | 18:00
Nýju strákarnir á PGA 2023: Ben Taylor (17/50)

Hér verður fram haldið að kynna stuttlega einn þeirra 25 kylfinga, sem hlutu kortið sitt á PGA Tour eftir að hafa orðið í einu af 25 efstu sætum á Korn Ferry Tour eftir reglulega keppnistímabilið 2022. Sá sem varð í 9. sæti verður kynntur í dag, en það er Ben Taylor. Ben Taylor fæddist 11. júní 1992 og er því 30 ára. Hann er 1,8 m á hæð og 91 kg. Fæðingarstaður hans er Epsom, í Bretlandi. Hann ólst upp með foreldrum sínum, Phil og Susanne og eldri systur, Katie. Faðir Ben, er fyrrum PGA kylfingur og á golfæfingasvæði; þar sem föðurbróðir hans Max, sem einnig er PGA kylfingur, kennir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2023 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir og Konráð V Þorsteinsson – 20. janúar 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir og Konráð V Þorsteinsson. Það er Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir,sem er afmæliskylfingur dagsins. Guðrún Ásbjörg er fædd 20. janúar 1948 og á því 75 ára merkisafmæli í dag!!! Guðrún Ásbjörg er í Golfklúbbi Ísafjarðar. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska Guðrúnu Ásbjörgu til hamingju með merkisafmælið! Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir – Innilega til hamingju með 75 ára merkisafmælið!!! Konráð V Þorsteinsson er fæddur 20. janúar 1973 og fagnar því 50 ára stórafmæli í dag. Konráð er kvæntur Sólrúnu Eyfjörð Torfadóttur og eiga þau einn son. Komast má á facebook síðu Konráðs til þess að óska Konráð til hamingju Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 20. 2023 | 14:00
Hvaða ungu kylfingum (u. 23 ára) ætti að veita athygli 2023? Ludvig Åberg (5/10)

Ludvig Noa Åberg fæddist í Eslöv, Svíþjóð, 31. október 1999 og er því 23 ára. Hann er sem stendur nr. 1 á PGA TOUR University presented by Velocity Global. Ef honum tekst að halda því sæti eftir NCAA Championship í maí, kemst hann sjálfkrafa á PGA Tour. Sem stendur er Åberg efstubekkingur í Texas Tech og einnig nr. 1 á heimslista áhugamanna. Hann er yfir 1,8 m á hæð og vel þjálfaður. Dræverinn er hans sterkasta hlið og hann er ekki hræddur að nota hann, jafnvel á þröngum brautum. Hann sigraði í Jones Cup Inv. 2021, en sá sigur er gott dæmi um vel slegin högg. Það mót fór fram í hinum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2023 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Adele Peterson —– 19. janúar 2023

Afmæliskylfingur dagsins er Adele Peterson. Adele fæddist 19. janúar 1963 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Sem áhugamaður varð Adele í 2. sæti 1978, 1981 og 1983 á Oklahoma Women’s State Amateur. Hún komst í fjórðungsúrslit í Broadmoor Invitational 1984 og í Trans National 1985 og árin 1982 og 1984 í Western Women´s Championship. Hún sigraði á Harder Hall Invitational 1986. Það ár (1986) úrskrifaðist Adele frá Tulsa háskóla með gráðu í markaðsfræðum. Á háskólaárum sínum í var hún first team All-American 1986 og sigraði á US vs. Japan-NCAA keppninni í Tokyo, 1986. Adele kvæntist Paul Peterson þann 24. nóvember 1989 – en hét þar áður Adele Lukken. Adele Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2023 | 14:00
LPGA: Skápar í búningaklefum Lake Nona ekki nægir fyrir keppendur í Hilton Grand Vacations TOC

Fyrsta mót af 33 á LPGA mótaröðinni hefst í dag, fimmtudaginn 19. janúar 2023. Verðlaunafé hefir aldrei verið hærra. Fylgjast má með mótinu á skortöflu með því að SMELLA HÉR: Hilton Grand Vacations Tournament of Champions mótið á að vera hátíð nýlegra sigurvegara á LPGA mótaröðinni – ásamt 56 stjörnum, sem fá að keppa í pro-am hluta mótsins – En nú um miðja vikuna hefur áherslan færst frá því að heiðra nýlega sigurvegara á LPGA mótaröðinni yfir í yfirsjón í sem fær mann til að draga í efa virðingu LPGA fyrir íþróttamönnum sínum. Sl. þriðjudag birti Beth Nichols yfirfréttamaður á Golfweek frétt þess efnis að það væri enginn búningsklefi fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2023 | 10:00
GSÍ: Landsliðskylfingar og atvinnukylfingar við æfingar í Hacienda del Alamo

Landsliðshópar GSÍ og atvinnukylfingar frá Íslandi hafa á undanförnum dögum æft við góðar aðstæður á Hacienda Del Alamo golfsvæðinu á Spáni. Golfsambandið gerði samning á síðasta ári þess efnis að æfingabækistöð íslenska landsliðsins yrði á Hacienda Del Alamo – og er þetta í fyrsta sinn sem slíkur samningur er gerður á vegum GSÍ. Markmið samstarfsins er að veita íslenskum landsliðs- og atvinnukylfingum hagkvæm og spennandi tækifæri að æfa að vetrarlagi við frábærar aðstæður. Landsliðs- og atvinnukylfingar hafa þess kost að halda á svæðið á eigin vegum til viðbótar við skipulagðar æfingarferðir – og eru 10 atvinnukylfingar með í fyrstu æfingaferð GSÍ á þetta svæði. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, stjórnar Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

