Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2023 | 20:00
Golfgrín á laugardegi (9/2023)

Einn stuttur og á ensku: „I once played a course that was so tough, I lost two balls in the ball washer!“
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2023 | 16:00
Afmæliskylfingar dagsins: Brynjar Þórsson og Eva Karen Björnsdóttir – 4. mars 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Brynjar Þórsson og Eva Karen Björnsdóttir. Brynjar er fæddur 4. mars 1958 og á því 65 ára afmæli í dag. Hann er kvæntur Elínu Guðmundsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Brynjari til hamingju með afmælið hér að neðan Brynjar Þórsson (Innilega til hamingju með 65 ára afmælið!!!) Eva Karen er fædd 4. mars 1998 og á því 25 ára afmæli í dag. Eva Karen er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Evu Karenu til hamingju með afmælið hér að neðan Eva Karen Björnsdóttir (Innilega til hamingju með 25 ára afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2023 | 20:00
LIV: 3.2 milljónir horfðu á útsendingu frá 1. mótinu í Mexíkó

Því hefir verið haldið fram að ekkert áhorf sé á mót LIV golfmótaraðarinnar. Það er nú ekki svo. Helgina, 23.-26. febrúar sl., sem 1. mót LIV mótaraðarinnar á þessu ári fór fram á Mayakoba, í Mexíkó horfðu 3.2 milljónir á keppnina á CW Network á öllum línulegum og stafrænum kerfum. Þetta var jafnframt í fyrsta skiptið sem sjónvarpað var frá móti á LIV. „Fyrsta helgin okkar í beinni útsendingu fyrir LIV Golf tímabilið 2023 fór fram úr væntingum,“ sagði Will Staeger, fjölmiðlafulltrúi LIV Golf m.a.. „Þetta var frumraun LIV golfdeildarinnar á CW, CW appinu og mest sótta ókeypis íþróttaappi helgarinnar, LIV Golf Plus.“ Að meðaltali var meira línulegt áhorf á opnunarmót Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2023 | 18:15
NGL: Haraldur Franklín T-13 e. 2. dag Camiral Golf&Wellness meistaramótinu

Haraldur Franklín Magnús var sá eini af fimm íslenskum kylfingum, sem komst í gegnum niðurskurð á Camiral Golf & Wellness Championship, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni (skammst.: NGL). Mótið stendur dagana 2.-4. mars 2023 og fer fram á tveimur völlum á PGA Catalunya golfsvæðinu rétt við borgina Girona, á Spáni. Keppnisvellirnir eru: Stadium Course, sem er par 72 og Tour Course, sem er par 71. Haraldur Franklín er búinn að spila á samtals 3 undir pari, 140 högg (68 72) nú eftir 2. dag. Sjá má stöðuna að öðru leyti á Camiral Golf & Wellness Championship eftir 2. dag með því að SMELLA HÉR: Á Nordic Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2023 | 18:00
Hvaða ungu kylfingum (u. 23 ára) ætti að veita athygli 2023? Gordon Sargent (8/10)

Gordon Sargent er ungur, verður 20 ára á árinu 2023. Hann er í Vanderbilt háskólanum og sem stendur nr. 1 á heimslista áhugamanna. Hann var nýliði ársins á NCAA árið 2022, ári eftir að hafa verið valinn besti karlkylfingur í menntaskóla (highschool) í Bandaríkjunum árinu áður. Scott Limbaugh þjáfari Vanderbilt segir að boltahraði Sargent sé að meðaltali u.þ.b. 185-187 mílur á klst (297 -301 km/klst), sem setur hann meðal bestu 10 á PGA Tour. En það að hann sé með orðum Limbaugh „crazy long“ af teig leiðir til þess að menn líta fram hjá frábæru stuttu spili þessa unga og upprennandi kylfings. „Ég held að það sem skilur hann frá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2023 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Þorvaldur Ingi Jónsson og Ólafur Darri Ólafsson– 3. mars 2023

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Ólafur Darri Ólafsson og Þorvaldur Ingi Jónsson. Ólafur Darri er fæddur 3. mars 1973 og fagnar því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Ólafs Darra til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Ólafur Darri Ólafsson – 50 ára – Innilega til hamingju!!! Þorvaldur Ingi er fæddur 3. mars 1958 og á því 65 ára afmæli í dag!!! Þorvaldur Ingi Jónsson – Innilega til hamingju með 65 ára afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Julius Boros, 3. mars 1920 – d. 28. maí 1994 (hefði orðið 103 í dag); Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2023 | 15:31
LET Access: Guðrún Brá lauk keppni T-33 í Girona

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir tóku þátt í Santander Tour – Girona mótinu, sem er hluti af LET Access mótaröðinni. Spilaðir voru að venju 3 hringir og skorið niður eftir 2 – Því miður komst Ragnhildur ekki í gegnum niðurskurð og munaði aðeins 1 höggi. Guðrún Brá hins vegar var T-28 eftir 2. dag, komst því í gegnum niðurskurð og lauk í dag keppni. Guðrún Brá varð T-33, lék á samtals 227 höggum (71 78 78). Það var hin franska Lucie Andre sem sigraði í mótinu, eftir 5 stúlkna bráðabana, en allar léku þær á 1 yfir pari. Sjá má lokastöðuna í Santander Tour – Girona mótinu með því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2023 | 17:00
NGL: Haraldur Franklín T-14 e. 1. dag Camiral Golf&Wellness meistaramótinu

Fimm íslenskir kylfingar taka þátt í Camiral Golf & Wellness Championship, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni (skammst.: NGL). Þetta eru þeir: Haraldur Franklín Magnús, GR; Andri Þór Björnsson, GR, Axel Bóasson, GK, Elvar Kristinsson, GR, og Hákon Örn Magnússon, GR. Mótið stendur dagana 2.-4. mars 2023 og fer fram á tveimur völlum á PGA Catalunya golfsvæðinu rétt við borgina Girona, á Spáni. Keppnisvellirnir eru: Stadium Course, sem er par 72 og Tour Course, sem er par 71. Haraldur Franklín er búinn að spila best af íslensku kylfingunum; er T-14; hefir spilað á 3 undir pari, 68 höggum. Axel lék 1. hring á 1 yfir pari (72 höggum); Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2023 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ian Woosnam ——– 2. mars 2023

Það er velski kylfingurinn Ian Harold Woosnam, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann er fæddur 2. mars 1958 og á því 65 ára afmæli í dag. Woosnam gerðist atvinnukylfingur 1976 og hefir sigrað í 52 mótum á atvinnumannsferli sínum; þ.á.m. 29 sinnum á Evróputúrnum og 2 sinnum á PGA Tour. Woosnam er í 6. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast á Evróputúrnum. Þekktastur er Woosie, eins og hann er oft nefndur, fyrir sigur sinn á Masters risamótinu 1991. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pamela Barnett, 2. mars 1944 (79 ára – lék á LPGA); Jorge Soto 2. mars 1945 (78 ára); Þórdís Unndórsdóttir (74 ára); Ólafur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2023 | 07:45
LET Access: Guðrún Brá T-7 og Ragnhildur T-21 e. 1. dag í Girona

Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru meðal keppenda á Santander Golf Tour – Girona mótinu, sem er hluti af LET Access mótaröðinni. Mótið fer fram í GC Peralada, í Girona, Spáni, dagana 1.-3. mars 2023. Eftir 1. dag er Guðrún Brá T-7 – kom í hús á sléttu pari, 71 höggi. Ragnhildur er T-21, en hún spilaði á 2 yfir pari, 73 höggum. Sjá má stöðuna á Santander Golf Tour – Girona með því að SMELLA HÉR: Í aðalmyndaglugga: f.v. Ragnhildur og Guðrún Brá. Mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

