Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 17:20
PGA: Frá blaðamannafundi John Mallinger sem leiðir þegar Frys.com Open er hálfnað – var á 62 glæsihöggum!!!

Á eftir hringinn glæsilega hjá John Mallinger upp á 62 högg á golfvelli CordeValle golfklúbbsins í San Martin, Kaliforníu, þar sem Frys.com Open fer fram var haldinn blaðamannafundur með John Mallinger, þar sem hann svaraði spurningum blaðamanna. Hér fara spurningar blaðamanna og svör heimamannsins John Mallinger að loknum glæsihrings hans: Blaðafulltrúi PGA Tour: Við bjóðum velkominn John Mallinger. Þú ert kominn í samtals 14 undir par í dag (í gær). Þetta var heldur betur góður endir þarna á seinni 9, 30 högg. Geturðu talað um hvað var það sem kom þér af stað og síðan tökum við nokkrar spurningar. JOHN MALLINGER: Ég hugsa að það hafi líklega verið örninn á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 16:45
Evróputúrinn: Bernd Wiesberger leiðir fyrir lokadag Portugal Masters

Er Ross Fisher að kasta frá sér sigrinum á síðustu metrunum? Englendingurinn, Ross Fisher, er búinn að leiða alla 3 daga mótsins en í dag tókst Austurríkismanninum Bernd Wiesberger að komast upp fyrir Fisher þó Fisher hafi verið með 3 högga forystu í gær. Bernd Wiesberger er sem sagt efstur fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun og víst að stefnir í mikið einvígi milli hans og Fisher. Wiesberger lék á samtals 13 undir pari, 200 höggum (70 65 65) en Fisher er á 12 undir pari, 201 höggi (65 67 69). Þriðja sætinu deila Richard Finch, Michael Campbell og Shane Lowry samtals 9 undir pari, 204 höggum, hver; Finch Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 14:00
Hver er kylfingurinn: John Mallinger?

Þar til í gær höfðu fæstir, nema þeir sem fylgjast með flestu sem gerist í golfheiminum, heyrt um John Mallinger. Hann lék 2. hringinn á Frys.com Open mótinu á glæsilegum 9 undir pari, 62 höggum; fékk 1 örn, 7 fugla og 10 pör á hringum. En hver er kylfingurinn John Mallinger? John Charles Mallinger fæddist 25. september 1979 í Escondido, Kaliforníu og er því nýorðin 33 ára. Hann veit það líklegast ekki en hann á sama afmælisdag og spænski LPGA kylfingurinn Belen Mozo og bandaríska leikkonan Heather Locklear, sem líka spilar golf, einkum nú þegar kæresti hennar er einn sá færasti í íþróttinni af öllu leikaraliðinu í Hollywood, Jack Warner. Það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 10:30
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 20. sæti eftir 1. dag Ruth´s Chris Tar Heel mótsins

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest keppnir á Ruth´s Chris Tar Heel mótinu í Norður-Karólínu. Þátttakendur í mótinu eru 96 frá 18 háskólum og keppt er á UNC Finley golfvellinum í Chapel Hill. Ólafía Þórunn kom í hús í gær á 2 yfir pari 74 höggum; fékk 3 fugla, 3 skolla og 1 skramba. Hún er á besta skorinu af öllum í liði Wake Forest, sem deilir sem stendur 12. sætinu með Louisville, í liðakeppninni. Ólafía Þórunn er í 20. sæti í einstaklingskeppninni, en því sæti deilir hún með 9 öðrum. Golf 1 óskar Ólafíu Þórunni góðs gengis! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Ruth´s Chris Tar Heel Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 10:15
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst á 73 höggum eftir 1.dag Bank of Tennessee mótsins

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið East Tennessee State spiluðu í gær fyrsta hringinn á Bank of Tennessee @ Blackthorn mótinu, í Blackthorn Club at the Ridges, í Jonesborough, Tennessee. Það eru 75 þátttakendur frá 13 háskólum í mótinu. Guðmundur Ágúst lék á 1 yfir pari, 73 höggum, fékk fimm fugla, tvo skolla og tvo skramba. Hann deilir sem stendur 39. sæti á mótinu í einstaklingskeppninni ásamt 10 öðrum. Guðmundur Ágúst er á 4.-5. besta skorinu í liði sínu og golflið East Tennessee State er í 6. sæti í liðakeppninni. Golf 1 óskar Guðmundi Ágústi góðs gengis! Til þess að fylgjast með gangi mála hjá Guðmundi Ágúst og í Bank Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 09:00
Golfútbúnaður: FJ Sport Spikeless golfskór

Footjoy FJ Sport Spikeless golfskórnir er 2. kynslóð hinna vinsælu FJ Sport golfskóa, sem margir af helstu stjörnum PGA mótaraðarinnar kjósa að vera í þ.á.m. Rory McIlroy, Adam Scott og Matteo Mannassero. Þeim hjá Footjoy fannst að jafnvel þó street eða takkalausir skór hafi næstum yfirtekið golfskóa markaðinn þá vantaði enn takkalausa skó sem skiluðu hámarks árangri. Því voru FJ Sport skórnir hannaðir með það að markmiði að skapa létta, vatnshelda, íþróttamannslega, sveigjanlega og endingagóða skó, með takkalausum ytri sóla sem hægt væri að vera í jafnt innan sem utan vallar. Hægt er að fá nýju golfskóna í hvítu/bláu, hvítum lit eða hvítum/appelsíugulum lit (hægt er að fá mun fleiri liti Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 06:55
PGA: John Mallinger leiðir þegar Frys.com Open er hálfnað – hápunktar og högg 2. dags

Það er Bandaríkjamaðurinn John Mallinger, sem tekið hefir forystuna á Frys.com Open. Mallinger er búinn að spila á samtals 14 undir pari, 128 höggum (66 62). Hann átti lægsta skorið á 2. hring á golfvelli CordeValle golfklúbbsins í San Martin, Kaliforníu, þar sem mótið fer fram. Á hringnum fékk Mallinger 1 örn, 7 fugla og 10 pör. Í 2. sæti eru Bandaríkjamaðurinn Billy Horschel og Jhonattan Vegas frá Venezuela, heilum 4 höggum á eftir Mallinger á samtals 10 undir pari, hvor. Fjórða sætinu deila síðan Belginn Nicolas Colsaerts, Bandaríkjamaðurinn Scott Dunlap og forystumaður fyrsta dags, Ástralinn Nick O´Hern á samtals 9 undir pari, hver. Nokkrir góðir komust ekki í gegnum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2012 | 20:30
Dagur bleika borðans víðar en á Íslandi

Á golfskyggni nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy gefur að finna orðið Jumeirah og hafa margir verið að velta því fyrir sér og spá í hvað það stendur fyrir? Jumeirah er hótelkeðjan sem á og rekur eitt dýrasta og 4. hæsta hótel í heimi: Burj al Arab, sem staðsett er í Dubai. Hótelið er 321 metra hátt eða meira en 4 sinnum hæð Hallgrímskirkju- turns. Á hótelinu, sem er eitt það íburðamesta í heimi, var dags bleika borðans minnst en hótelið „klæddist bleiku“ líkt og margir hér á Íslandi í dag. Jafnframt voru útbúnir sérstakir bleikir iPad-ar úr 24 karata gulli og seldir til þess að styrkja krabbameinsrannsóknir. Eins var Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2012 | 19:00
Golfgrín á föstudegi

Maðurinn minn segir að ég verði að velja milli hans eða golfsins…. ég held ég muni sakna hans mikið! ——————————— Einn á ensku: ——————————— Ástríðukylfingur spyr spákonu að því hvort ekki séu golfvellir á himnum. „Ég er með góða og slæmar fréttir fyrir þig!“ sagði spákonan. „Góða fréttin er sú að golfvellirnir á himnum eru algjörlega himneskir; slæma fréttin er sú að þú átt rástíma þar, kl. 8:30 í fyrramálið!!!“ ——————————— Tveir kylfingar spila saman í rigningu og fremur hvössu veðri. Segir einn kylfingurinn við hinn: „Hugsaðu þér, konan mín bað mig virkilega að hjálpa sér í garðinum …. og það í þessu skítaveðri!!!“ _____________________ Fjórir menn spiluðu saman golf. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2012 | 17:45
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst spilar á Bank of Tennessee mótinu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið East Tennessee State spila nú um helgina á Bank of Tennessee @ Blackthorn mótinu, í Blackthorn Club at the Ridges, í Jonesborough, Tennessee. Það eru 75 þátttakendur frá 13 háskólum í mótinu. Guðmundur er þegar þetta er skrifað búinn að spila 3 fyrstu holurnar í mótinu og er á sléttu pari. Golf 1 óskar Guðmundi Ágústi góðs gengis! Til þess að fylgjast með gangi mála hjá Guðmundi Ágúst og í Bank of Tennessee mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

