Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 10:15

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst á 73 höggum eftir 1.dag Bank of Tennessee mótsins

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið East Tennessee State spiluðu í gær fyrsta hringinn á Bank of Tennessee @ Blackthorn mótinu, í Blackthorn Club at the Ridges, í Jonesborough, Tennessee.

Það eru 75 þátttakendur frá 13 háskólum í mótinu.

Guðmundur  Ágúst lék á 1 yfir pari, 73 höggum, fékk fimm fugla, tvo skolla og tvo skramba. Hann deilir sem stendur 39. sæti á mótinu í einstaklingskeppninni ásamt 10 öðrum.

Guðmundur Ágúst er á 4.-5. besta skorinu í liði sínu og golflið East Tennessee State er í 6. sæti í liðakeppninni.

Golf 1 óskar Guðmundi Ágústi góðs gengis!

Til þess að fylgjast með gangi mála hjá Guðmundi Ágúst og í Bank of Tennessee mótinu SMELLIÐ HÉR: