Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 13:00

Nýr bæklingur um íþróttavallargras

Á vegum STERF er kominn út bæklingur um íþróttavallagras fyrir Norðurlöndin, sem byggður er á rannsóknum sem stundaðar hafa verið á öllum Norðurlöndunum. Á Korpúlfstöðum var byggð tilraunaflöt 2007 og hafði Guðni Þorvaldsson prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands umsjón með verkefninu hér á landi í samstarfi við Ágúst Jensson vallarstjóra á Korpúlfstaðavelli. Í bæklingi STERF eru helstu niðurstöður tilraunarinnar og að sögn Ágústar Jenssonar formanns STERF gekk þessi tilraun vel og til að mynda hefur einu yrki verið bætt við yrkilistann sem kom vel út hér á landi sem heitir CY-2. Nánari upplýsingar um yrkilistann er að finna á www.scanturf.org en hægt er að nálgast bækling STERF með því að  SMELLA HÉR:  Heimild: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 10:44

Lee Westwood gerir 2 ára styrktarsamning við Bushnell

Bushnell Outdoor Products, sem er leiðandi framleiðandi á laserfjarlægðarmælum, sem m.a. eru notaðir á PGA Tour, tilkynnti um 2 ára styrktarsamning sem fyrirtækið hefði gert við Lee Westwood. Westy sem er einn besti kylfingur heims mun kynna framleiðsluvörur Bushnell Golf um heim allan.  „Það gleður okkur hjá Bushnell að bjóða Lee Westwood velkominn sem einn hluta Bushnell-teymisins“, sagði Guilhem Pezet, markaðsstjóri íþróttavara hjá Bushnell. „Lee kemur með óhemju golfreynslu sem er ómetanleg fyrir Bushnell og mun aðstoða okkur að bæta vörur okkar enn frekar.“ „Ég er ánægður með að vera hluti af Bushnell, sérstaklega þar sem vörur fyrirtækisins hafa alltaf verið gríðarlega mikilvægur hluti leiks míns. Ég treysti á nákvæmni þegar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 09:30

10 atriði sem læra má af World Golf Fitness Summit

Annað hvert ár fer fram World Golf Fitness Summit, sem er ráðstefna þar sem flestir af bestu golfkennurum heims og líkamsræktarþjálfurum heimsklassa kylfinga koma saman og ræða ýmis efni sem eru efst á baugi hverju sinni. Ráðstefna þessa árs hófst í Orlando, Flórída á fimmtudaginn s.l. Komast má inn á vefsíðu World Golf Fitness Summit með því að SMELLA HÉR: Hér eru 10 atriði sem m.a. voru rædd á ráðstefnunni í gær, lokadaginn (laugardaginn 13. október 2012): 10.  Smásjáruppskurður á mænu getur losað kylfing við fjölda tegunda af bakverkjum án þess að hann þurfi að gangast í gegnum hefðbundna skurðaðgerð. Í flestum tilvikum þarf enga innlögn og skv. tölfræði frá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 08:00

PGA: Hápunktar og högg 3. dags á Frys.com Open

Það er Kaliforníubúinn John Mallinger sem leiðir á Frys.com Open þegar aðeins á eftir að spila lokahringinn á golfvelli CordeValle golfklúbbsins í San Martin, Kaliforníu. Hann er samtals á 15 undir pari. Aðeins 2 höggum á eftir er Svíinn Jonas Blixt  á 13 undir pari. Þriðja sætinu deila þeir Jason Kokrak og Charles Howell III, báðir á samtals 12 undir pari, hvor og í fimmta sæti eru þeir Vijay Singh og Alexandre Rocha á samtals 11 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Frys.com  Open  SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Frys.com Open SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá högg 3. dags sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 00:25

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn á 76 höggum á 2. hring Ruth´s Chris Tar Heel

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest keppir á Ruth´s Chris Tar Heel mótinu í Norður-Karólínu nú um helgina. Þátttakendur í mótinu eru 96 frá 18 háskólum og keppt er á UNC Finley golfvellinum í Chapel Hill. Ólafía Þórunn er samtals búin að spila á 150 höggum (74 76). Hún er á besta skorinu af öllum í liði Wake Forest, sem er sem stendur 14. sæti í liðakeppninni. Ólafía Þórunn fór úr 20. sæti í einstaklingskeppninni í 31. sætið, sem hún deilir með 4 öðrum. Golf 1 óskar Ólafíu Þórunni góðs gengis! Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Ruth´s Chris Tar Heel mótsins SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 00:15

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst spilaði 2. hring líka á 73 á Bank of Tennessee mótinu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið East Tennessee State spiluðu í gær annan hringinn á Bank of Tennessee @ Blackthorn mótinu, í Blackthorn Club at the Ridges, í Jonesborough, Tennessee. Það eru 75 þátttakendur frá 13 háskólum í mótinu. Guðmundur  Ágúst er samtals búinn að spila á 2 yfir pari, 146 höggum (73 73). Hann fór upp um 5 sæti var í 39. sæti en er nú í 34. sæti, sem hann deilir með 3 öðrum. Guðmundur Ágúst er á 2. besta skorinu í liði sínu og golflið East Tennessee State er í 9. sæti í liðakeppninni. Golf 1 óskar Guðmundi Ágústi góðs gengis seinna í dag, en þá verður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 23:59

PGA: Mallinger enn í forystu fyrir lokahringinn á Frys.com Open

Bandaríkjamaðurinn John Mallinger er enn í forystu fyrir lokahringinn á Frys.com Open. Mallinger er samtals búinn á spila á 15 undir pari, 198 höggum (66 62 70).  Hann hefir aðeins 2 högga forystu á Svíann Jonas Blixt, sem er í 2. sæti. Blixt er samtals búinn að leika á 13 undir pari, samtals 200 höggum (66 68 66). Bandaríkjamennirnir Jason Kokrak og Charles Howell III eru síðan í 3. sæti, báðir á samtals 12 undir pari, 201 höggi, hvor. Það er fróðlegt að vita hvort Mallinger takist að halda út á og krækja sér í fyrsta sigur sinn á morgun,  eftir 6 ár sigurleysis á PGA Tour? Til þess að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 22:00

Afmæliskylfingar dagsins: Kristófer Orri Þórðarson og Páll Pálsson – 13. október 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru Kristófer Orri Þórðarson og Páll Pálsson. Kristófer Orri er fæddur 13. október 1997 og er því 15 ára í dag. Kristófer Orri er í GKG, spilaði á Unglingamótaröð Arion banka í sumar og tók m.a. þátt í Lalandia Open í Danmörku nú nýverið. Páll er fæddur 13. október 1972 og á því 40 ára stórafmæli í dag!  Unnusta Páls heitir Anna Aradóttir. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Brian Thomas („Bud“ eða“Buddy„) Allin 13. október 1944 (68 ára);  Chako Higuchi, f. 13. október 1945 (67 ára);  Kristján Jóhannsson f. 13. október 1945 (67 ára);  Gunnar Rafnsson, f. 13. október 1961  (51 árs); Guðmundur Júní Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 18:00

GR: Skipulagsbreytingar í unglingastarfinu

Eins og kynnt hefir verið hefir verið ákveðið að ráðast í skipulagsbreytingar á unglingastarfi Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) þannig að fækkað verður verulega í afrekshópum. Almennir hópar munu fá sömu þjónustu og réttindi og afrekshópar höfðu áður. Í unglingastarfinu hjá GR voru langflestir orðnir í afreksstarfi þannig að skiptingin í almennt starf og afreksstarf var ekki raunverulega til staðar og missti algerlega marks. Afrekshópurinn stóð því ekki lengur undir nafni. Þess vegna var ákveðið að taka alla inn í starfið eins og það var skilgreint sem afreksstarf áður, þannig að þeir fáu sem eftir voru í almenna starfinu fá nú t.d. fría bolta til að æfa sig, þrjár æfingar í viku Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 17:40

LPGA: Na Yeon Choi leiðir fyrir lokahring Sime Darby mótsins

Það er Na Yeon Choi, frá Suður-Kóreu, sem leiðir fyrir lokahring Sime Darby mótsins í Malasíu, sem leikinn verður á morgun. NY Choi er búin að spila á 13 undir pari, 200 höggum (65 67 68).  Landa NY, Inbee Park er aðeins 2 höggum á eftir á samtals 11 undir pari og ein í 2. sæti. Ein í 3. sæti er Karrie Webb frá Ástralíu á samtals 9 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3 dag Sime Darby mótsins SMELLIÐ HÉR: