Ragnheiður Jónsdóttir | október. 13. 2012 | 16:45

Evróputúrinn: Bernd Wiesberger leiðir fyrir lokadag Portugal Masters

Er Ross Fisher að kasta frá sér sigrinum á síðustu metrunum?  Englendingurinn, Ross Fisher, er búinn að leiða alla 3 daga mótsins en í dag tókst Austurríkismanninum Bernd Wiesberger að komast upp fyrir Fisher þó Fisher hafi verið með 3 högga forystu í gær.

Bernd Wiesberger er sem sagt efstur fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun og víst að stefnir í mikið einvígi milli hans og Fisher.

Wiesberger lék á samtals 13 undir pari, 200 höggum (70 65 65) en Fisher er á 12 undir pari, 201 höggi (65 67 69).

Þriðja sætinu deila Richard Finch, Michael Campbell og Shane Lowry samtals 9 undir pari, 204 höggum, hver; Finch (70 68 66); Campbell (68 69 67) og Lowry (67 70 67).

Miguel Angel Jimenez og Mark Foster deila 6. sætinu og eru skammt undan á 8 undir pari, 205 höggum hvor.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Portugal Masters SMELLIÐ HÉR: